Birgir Guðjónsson, formaður Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH), mótmælir þeim ummælum Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, í Morgunblaðinu í gær að KVH sé farþegi í yfirstandandi kjaraviðræðum.
Meira
Kuldinn í háloftunum að undanförnu hefur gert það að verkum að starfsmenn Air Iceland Connect, áður Flugfélags Íslands, hafa nokkrum sinnum þurft að draga fram afísingarbúnað áður en flugvélarnar fara í loftið frá Reykjavíkurflugvelli.
Meira
„Ég þakka samvinnu foreldrafélagsins Breiðra brosa og Félags langveikra barna og þrautseigju okkar foreldra að stjórnvöld hafa nú breytt reglugerð til hagsbóta fyrir börn með skarð í gómi,“ segir Ragnheiður Sveinþórsdóttir, sem er móðir drengs á níunda ári sem fæddist með skarð í harða gómi.
Meira
Logi Einarsson þingmaður er ásamt Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanni utanríkismálanefndar, og fleiri norrænum þingmönnum í heimsókn í Malaví. Heimsóknin er skipulögð af UNICEF og fleiri aðilum í þróunarsamvinnu.
Meira
Viðbrögð í þingsal voru blendin og andrúmsloftið þungt þegar Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson, þingmenn Miðflokksins, tóku á ný sæti á Alþingi í gær.
Meira
Hnitrýni Á Reykjavíkurleikunum, sem hófust í gær og standa til 3. febrúar, er hnit meðal átján greina sem keppt er í. Ungir áhorfendur fylgdust einbeittir með keppninni í TBR-húsinu í...
Meira
Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Konur gegna stærra hlutverki varðandi endurröðun litninga, en karlar eiga stærri þátt í stökkbreytingum sem geta leitt til sjaldgæfra sjúkdóma í æsku.
Meira
Á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins voru kynntar fjárfestingar á vegum hins opinbera fyrir um 130 milljarða í innviðum á Íslandi í ár. Það er um 50 milljörðum króna meira en í fyrra sem er 60% aukning.
Meira
Stefnt er að því að sementsflutningaskipið Fjordvik yfirgefi Hafnarfjarðarhöfn í síðasta lagi um miðjan febrúar. Skipinu verður þó ekki siglt héðan heldur verður því fleytt inn í siglandi flotkví (Roll-Dock) og flutt til niðurrifs í Belgíu.
Meira
Klamydíusýkingum fækkaði umtalsvert á síðasta ári frá því sem var árin á undan, samkvæmt embætti sóttvarnalæknis. Þá dró einnig úr tilfellum af sárasótt á árinu. Hins vegar fjölgaði lekandtilfellum og HIV-smitum á árinu 2018.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Þorrinn gengur í garð í dag. Sífellt algengara verður að veitingamenn bjóði upp á annars konar veitingar en hefðbundinn þorramat á þorrablótum. Lambalæri þykir nær sjálfsagt og margir líta ekki við súrmat.
Meira
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Einstaklingar sem voru utangarðs og/eða heimilislausir árið 2017 voru 349 og hafði fjölgað um 228 frá 2009. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Velferðarvaktarinnar.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að veita Landsneti framkvæmdaleyfi til að færa Hamraneslínur frá íbúðarhúsum við Skarðshlíð í Vallahverfi. Framkvæmdir geta þá hafist þegar útboðum lýkur.
Meira
Afmælisdagurinn verður lúxus. Við hjónakornin ætlum að skreppa barnalaus austur í Mývatnssveit og vera þar á hóteli eina nótt. Njóta þess þar að slappa af, fara í gönguferðir og gera eitthvað skemmtilegt.
Meira
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar tekur jákvætt í að stærð og lögun fyrirhugaðrar kirkju Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar Mýrargötu 21 verði breytt samkvæmt svonefndri tillögu A.
Meira
Bandaríkin, Bretland og nokkrar af helstu þjóðum Suður-Ameríku lýstu því yfir í gær að þær litu á Juan Guaido, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem starfandi forseta Venesúela, en hann sór embættiseið á miðvikudaginn með vísan í ákvæði stjórnarskrár...
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er rétt að við gerðum athugasemd við þessi nöfn,“ segir Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, þýðandi og útgefandi hjá bókaútgáfunni Kveri.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Nicolas Maduro, forseti Venesúela, hefur slitið öllum tengslum við Bandaríkin eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti, viðurkenndi Juan Guaido, þingforseta og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem forseta landsins.
Meira
Björgólfur Thor Björgólfsson segir að stærstu tæknifyrirtæki heimsins, einkum Amazon, Facebook og Google, hafi í raun „hreðjatak“ á gagnanotkun heimsins í dag og að leita þurfi leiða til að „brjóta þau upp“.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samgönguráðherra líst ágætlega á hugmyndir KEA sem býðst til að byggja viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli fyrir farþega í millilandaflugi og leigja ríkinu. Tekur fram að sér þyki þær spennandi.
Meira
Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Grímur Sigurðarson, verjandi Kjartans Bergs Jónssonar, fór í gær fram á að skjólstæðingur sinn yrði sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í innherjasvikamálinu í Icelandair.
Meira
Stærstu sóknir þjóðkirkjunnar, sem eiga og reka höfuðkirkjur landsins, eru orðnar svo fjársveltar vegna langvarandi niðurskurðar sóknargjalda að Jöfnunarsjóður sókna hefur í raun breyst í neyðarstyrktarsjóð sókna. Þetta kemur fram í minnisblaði Odds Einarssonar, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, um stöðu viðhalds fasteigna þjóðkirkjunnar og verkefni Jöfnunarsjóðsins.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verð á minkaskinnum heldur áfram niður öldudalinn, ef marka má söluna á fyrsta uppboði ársins hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn þar sem íslenskir minkabændur selja sína framleiðslu.
Meira
Þingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason tóku sæti á Alþingi á ný í gær eftir að hafa verið í leyfi þaðan síðan Klausturmálið svonefnda kom upp í lok nóvember. Urðu nokkur orðaskipti á þinginu í gær vegna endurkomu þeirra í þingsalinn.
Meira
Stærstu sóknir þjóðkirkjunnar, sem eiga og reka höfuðkirkjur landsins, eru orðnar svo fjársveltar vegna langvarandi niðurskurðar sóknargjalda að Jöfnunarsjóður sókna hefur í raun breyst í neyðarstyrktarsjóð sókna.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hafsteinn Filippusson, húsgagnasmiður í Ástralíu, hefur bjargað mörgum íslenskum sjónvarpsupptökum frá glötun og sett þær inn á Youtube, þar sem þær eru öllum aðgengilegar.
Meira
Félix Tshisekedi sór embættiseið sem forseti Austur-Kongó í gær. Mun þetta vera í fyrsta skipti í sögu landsins sem valdaskipti fara fram friðsamlega eftir óskipulegar og umdeildar kosningar.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins (SI), segir áætlaða fjárfestingu í innviðum fyrir 130 milljarða í ár munu vega á móti niðursveiflu í sumum greinum. Atvinnuleysi sé að aukast.
Meira
Páll Vilhjálmsson stingur á gömlu og viðkvæmu kýli: Þegar launamaður ræður sig í vinnu er hann ekki spurður hvaða stéttarfélagi hann vilji tilheyra – eða alls engu.
Meira
Denise Fergus, móðir James Bulger sem var myrtur af tveimur tíu ára piltum árið 1993 í Liverpool aðeins tveggja ára að aldri, segir að leikstjóri stuttmyndar sem gerð hefur verið um drengina sem frömdu ódæðið og er nú tilnefnd til Óskarsverðlauna, eigi...
Meira
Stan & Ollie Sannsöguleg mynd um Stan Laurel og Oliver Hardy, eða Steina og Olla, eitt vinsælasta gríntvíeyki kvikmyndasögunnar. Í kvikmyndinni er sjónum beint að ferli þeirra undir lokin. Leikstjóri er Jon S.
Meira
Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona opnaði í gær sýninguna Órætt landslag í Galleríi Gróttu á Seltjarnarnesi og stendur hún yfir til 24. febrúar. Galleríið er á 2. hæð Eiðistorgs, inni á bókasafni bæjarins.
Meira
Konulandslag er heiti gjörnings sem danshöfundurinn Anna Kolfinna Kuran fremur ásamt hópi kvenna í Mengi við Óðinsgötu í kvöld, föstudag, klukkan 21.
Meira
Tálgað undir hömrum, sýning á verkum Guðjóns R. Sigurðssonar, verður opnuð í Svavarssafni, listasafni Svavars Guðnasonar, í dag kl. 17 á Hafnarbraut 27 í Hornafirði.
Meira
Eftir Guðjón Jensson: "Um nokkurra ára skeið hafði ég meiri arð af hlutabréfunum en launaðri vinnu. Þetta þótti mér einkennilegt en auðvitað var ég, sem svo margir aðrir, gjörsamlega grunlaus um hvernig þetta endaði."
Meira
Eftir Elías Elíasson: "Þriðji orkupakkinn mun veita ESB raunyfirráð yfir íslenskum auðlindum sem gera eignarrétt okkar að sýndarrétti þegar fram líða stundir."
Meira
Frá því mér var úthlutaður rammi á tíu daga fresti á leiðarasíðu Morgunblaðsins, í aðdraganda þingkosninga 2017, hef ég iðulega verið spurð að því hvernig ég hafi geð í mér að skrifa í þennan fjölmiðil.
Meira
Eftir Ólaf Ísleifsson: "Við munum standa vörð um fullveldi og auðlindir þjóðarinnar og lífsrétt ófæddra barna með áherslu á félagsleg úrræði fyrir mæður í vanda."
Meira
Eftir Jón Þór Þorvaldsson: "Tilvera bænda og framleiðsla þeirra eru grundvöllur þess að við getum einbeitt okkur að öðrum hlutum sem skipta máli eins og húsaskjóli, fjölskyldu og tilfinningum."
Meira
Eftir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson: "Ásakanir Kastljóss á hendur nafngreindum fyrirtækjum voru falskar og rangar en tímasettar í samhengi við framlagningu veiðigjaldafrumvarpa."
Meira
Eftir Stefaníu Jónasdóttur: "Landamæralaus þjóð tapar landi sínu og einkennum – og það mun verða því að börnum okkar er ekki kennt eða innrætt í uppeldinu að þau eigi sér land og haf til að elska og varðveita."
Meira
Árni Vilberg Sigurðsson múrari fæddist í Hafnarfirði 8. október 1945. Hann lést á líknardeild Landspítalans 13. janúar 2019. Foreldrar Árna voru hjónin Jólín Ingvarsdóttir, f. 1. nóvember 1924, d. 10.
MeiraKaupa minningabók
Elsa Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 25. september 1956. Hún andaðist á líknardeild Landspítalans 10. janúar 2019. Foreldrar hennar voru Jóhanna M. Guðjónsdóttir (Magga), f. í Vestmannaeyjum 6. september 1923, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
Hörður Sævar Óskarsson fæddist 4. júlí 1932 á Siglufirði. Hann lést 17. janúar 2019 á Landspítalanum í Reykjavík. Foreldrar Harðar voru Óskar Garibaldason, formaður Vöku á Siglufirði, f. 1908, d. 1984, og Anney Ólfjörð Jónsdóttir frá Ólafsfirði, f.
MeiraKaupa minningabók
Jóna fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1927. Hún lést 13. janúar 2019. Foreldrar hennar voru Sveinn Guðbrandur Björnsson frá Stafshóli í Fljótum, Skagafirði, f. 14.7. 1897, d. 13.11. 1966, og Stefanía Einarsdóttir, f. í Reykjavík 23.10. 1897, d. 26.3.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Þorberg Haukdal Jónsson fæddist í Haukadal í Dýrafirði 20. nóvember 1920. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 10. janúar 2019. Foreldrar hans voru hjónin í Höll, þau Ástríður Jónína Eggertsdóttir húsfreyja, f. 18. júní 1888, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
Signý Gunnarsdóttir fæddist á Bangastöðum í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu 17. janúar 1939. Hún lést á líknardeild Landspítalans 18. janúar 2019. Foreldrar hennar voru Gunnar Jónatansson, f. 5. maí 1877, d. 25.
MeiraKaupa minningabók
Svanfríður Sverrisdóttir fæddist á Akureyri 7. apríl 1952. Hún lést 13. janúar 2019. Foreldrar hennar voru María Sigríður Helgadóttir, f. 22. maí 1920, d. 27. maí 2010, og Sverrir Þorgrímur Jónsson, f. 22. janúar 1916, d. 4. maí 1977.
MeiraKaupa minningabók
Teitur Jensson fæddist 9. maí 1929 í Selárdal. Hann lést á Hrafnistu DAS Boðaþingi 9. janúar 2019. Foreldrar hans voru Jens Gíslason (1891-1949) og Ingveldur Benediktsdóttir (1898-1963). Systkini hans voru Sigurfljóð Guðmunda, f. 1919, Gísli Ragnar, f.
MeiraKaupa minningabók
Antoníus Þorvaldur Ólafsson fæddist í Reykjavík 6. ágúst 1936. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar 2019. Foreldrar hans voru Selma Antoníusardóttir, húsmóðir og kaupkona frá Byggðarholti í Vestmannaeyjum, f. 1912, d.
MeiraKaupa minningabók
Húsnæðisverð á Íslandi hækkaði um 5,8% á þriðja ársfjórðungi 2018 frá því sem var á sama ársfjórðungi fyrra árs. Það er aðeins fyrir ofan þróunina í Evrópusambandinu sem og á evrusvæðinu en í hvoru tilfelli fyrir sig hækkaði húsnæðisverð um 4,3%.
Meira
Gugga, Guðbjörg Magnea Hákonardóttir, opnar málverkasýningu í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, á morgun, laugardag, kl. 14. Aðaláhrifavaldur í myndlist Guggu er íslenska landslagið, hún notar form, línur og liti náttúrunnar til að búa til myndir.
Meira
„Ég skemmti mér feiknalega vel við að þýða þessa bók og reyndi að deila gleði minni með samstarfsfólki mínu, með mismiklum árangri. Ætli ég hafi ekki verið talinn betur heima í nöldri og skömmum en aðrir og þess vegna verið fenginn til að þýða bókina,“ segir Bjarni Guðmarsson, þýðandi sjálfshjálparbókarinnar Tuð vors lands, lítillar bókar um ólundina sem nýlega kom út.
Meira
6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa landsmenn á fætur með gríni og glensi alla virka morgna. Sigríður Elva les traustar fréttir á hálftíma fresti. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn.
Meira
30 ára Bryndís er Reykvíkingur og er leiðsögumaður í Silfru hjá Adventure Vikings. Systkini : Þorgils Óttarr Erlingsson, f. 1986, og Magnús Guðjónsson, f. 1990. Foreldrar : Guðjón Magnússon, f.
Meira
40 ára Bylgja fæddist á Selfossi en ólst upp á Stokkseyri og í Hveragerði. Hún býr á Selfossi og er verslunarstjóri hjá Guðna bakara. Börn : Mikael Daníelsson, f. 1997, Charlotta Ýr Davíðsdóttir, f. 2000, og Linda María Bylgjudóttir, f. 2005.
Meira
Söngkonan Etta James fæddist á þessum degi árið 1938. Hún var af mörgum talin ein hæfileikaríkasta sálarsöngkona allra tíma. Einsöngvaraferill hennar hófst þegar hún komst á samning hjá útgáfufyrirtækinu Chess Records.
Meira
Garður Elmar Ingi Eyberg Jónsson fæddist 13. júní 2018 kl. 21.04. Hann vó 2.326 g og var 43 cm langur. Foreldrar hans eru Árný Þöll Ómarsdóttir og Jón Eyberg Helgason...
Meira
Hafsteinn Jónsson fæddist 25. janúar 1919 á Selbakka á Mýrum, A-Skaft. Foreldrar hans voru hjónin Jón Magnússon frá Eskey á Mýrum, f. 1889, d. 1962, bóndi á Höskuldsstöðum í Breiðdal, og Jóhanna Kr. Guðmundsdóttir, frá Skálafelli í Suðursveit, f.
Meira
Jóhann Rúnar Skúlason fæddist 25. janúar 1969 á Sauðárkróki og ólst þar upp. Hann gekk í grunnskóla á Sauðárkróki og útskrifaðist sem gagnfræðingur og fór síðar til Óðinsvéa að læra mjólkurfræði.
Meira
Hæpið er að segja vinsælan ferðamannastað „eftirsóttan“. Eftirsóttur getur vissulega átt við um hitt og þetta vinsælt: hönnunarvörur, skemmtikrafta, fisktegundir, skylmingakennara og a.m.k. 12 piparsveina á Akureyri, skv.
Meira
40 ára Randi er frá Lørenskog sem er rétt fyrir utan Ósló. Hún er reiðkennari og tamningamaður á Skáney í Reykholtsdal, og er auk þess menntaður hjúkrunarfræðingur. Maki : Haukur Bjarnason, f. 1981, reiðkennari, tamningamaður og bóndi.
Meira
Tónlistarkonan Carrie Underwood og eiginmaður hennar Mike Fisher eignuðust dreng síðastliðinn mánudag. Fyrir áttu þau soninn Isaiah sem verður fjögurra ára í febrúar. Underwood birti mynd af sér með nýja fjölskyldumeðlimnum á Instagram.
Meira
Nú hefur blessaður snjórinn komið sér vel fyrir á flestum stöðum landsins. Sumum til ama og öðrum til mikillar gleði. Víkverji telur að snjórinn laði fram það besta og versta í mannskepnunni og snjórinn geti verið mikill skaðvaldur en líka gleðigjafi.
Meira
25. janúar 1952 Sveinn Björnsson lést, 70 ára. Hann var sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn í nær tvo áratugi og kjörinn ríkisstjóri Íslands 1941. Þegar lýðveldið var stofnað, 17.
Meira
Afturelding komst í gærkvöld á toppinn í 1. deild kvenna í handknattleik, Grill 66 deildinni, með því að sigra ÍR, 22:21, í æsispennandi toppleik á Varmá í Mosfellsbæ.
Meira
Í Vesturbænum Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslandsmeistarar KR höfðu betur gegn Val, 96:89, er liðin mættust í 15. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í gærkvöldi.
Meira
Chelsea mætir Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins í knattspyrnu eftir að hafa lagt Tottenham að velli í vítaspyrnukeppni á Stamford Bridge í London í gærkvöld.
Meira
England Deildabikar, undanúrslit, seinni leikur: Chelsea – Tottenham 2:1 *Jafnt samanlagt, 2:2, en Chelsea sigraði 4:2 í vítaspyrnukeppni, og mætir Manchester City í úrslitaleik. City vann Burton 1:0 í fyrrakvöld og 10:0 samanlagt.
Meira
Þýska handknattleiksfélagið Kiel greindi frá því á vef sínum í gær að landsliðsmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson þyrfti að gangast undir aðgerð á öxl og verður hún framkvæmd hér á landi í dag.
Meira
Grill 66 deild kvenna HK U – Víkingur 24:21 Fjölnir – FH 25:23 Afturelding – ÍR 22:21 Staðan: Afturelding 131012334:25821 ÍR 121002356:26720 Fylkir 12813330:28117 Fram U 12714312:27315 Valur U 11713283:25015 FH 12615303:26613 HK U...
Meira
Thierry Henry, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka og leikmaður Arsenal, var í gær sendur í tímabundið leyfi frá störfum hjá Mónakó en hann tók við sem knattspyrnustjóri liðsins frá furstadæminu í október.
Meira
Í Bakverði í nóvember 2015 skrifaði ég eftirfarandi: „Ég gæti alveg séð fyrir mér að þjóðkirkjan fái byr í seglin eftir áratug eða svo. Jafnvel gæti kaþólsku kirkjunni á Íslandi vaxið fiskur um hrygg.
Meira
Ola Lindgren er hættur sem þjálfari sænska meistaraliðsins í handknattleik karla, Kristianstad. Félagið greindi frá því um miðjan mánuðinn að Lindgren myndi hætta þjálfun liðsins eftir tímabilið en nú er það orðið ljóst að hann hefur lokið störfum.
Meira
HM 2019 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Enginn leikmanna íslenska karlalandsliðsins í handknattleik náði sér verulega á strik í leikjunum þremur í milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins í Köln.
Meira
*Síðdegis í gær var leitinni að argentínska knattspyrnumanninum Emiliano Sala og enska flugmanninum David Ibbotson formlega hætt. Þeirra hefur verið saknað frá því á mánudagskvöld þegar flugvél þeirra hvarf yfir Ermarsundi. Leitað hefur verið á 1.
Meira
Undanúrslitaleikirnir á heimsmeistaramóti karla í handknattleik fara fram í Hamborg í Þýskalandi í dag og kvöld. Þangað eru liðin fjögur komin eftir að hafa leikið í milliriðlum í Herning í Danmörku og Köln í Þýskalandi.
Meira
RIG 2019 Kristján Jónsson kris@mbl.is Gústaf Adolf Hjaltason, forseti framkvæmdanefndar Reykjavíkurleikanna, er einn þeirra sem lagt hafa á sig mikla vinnu árum saman til að Reykjavíkurleikarnir geti dafnað.
Meira
Á meðan hefðbundnir stórmarkaðir eru að minnka hjá sér verslanirnar og fækka vörum bætast um 1.000 ný vörunúmer við hjá Heimkaupum í hverjum einasta mánuði.
Meira
Netverslun Origo hefur náð miklu flugi að undanförnu og segir Gísli Þorsteinsson að sjálfvirknivæðing og þróun Origo í stafrænum heimi sé rétt að byrja.
Meira
Rósant segir mikilvægt að sinna vefverslun Casa.is vel, uppfæra vöruúrvalið og svara fyrirspurnum. Sumir viðskiptavinir nota vefverslunina til að gera upp hug sinn og heimsækja svo eina af þremur búðum Casa.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.