Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég ætla að tala um allt í kringum þessa þætti sem mér finnst merkilegt, til dæmis hversu karllægir þættirnir eru, enda skrifaðir af körlum og framleiddir af körlum. Hreyfiaflið er karlarnir, Jock er patríarkinn, sterkur föðurlegur leiðtogi sem tekur allar helstu ákvarðanir, þó svo að Ellie kona hans standi ágætlega í lappirnar,“ segir Karl Ferdinand Thorarensen, sem ætlar að vera með örnámskeið í september um sjónvarpsþættina Dallas.
Meira