Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Á fimmtudaginn næsta mun Brandr vörumerkjastofa veita bestu íslensku vörumerkjunum 2020 viðurkenningu í fjórum flokkum, en að sögn Friðriks Larsen, dósents við Háskóla Íslands og eiganda Brandr, er þetta í fyrsta sinn á Íslandi sem slíkar viðurkenningar eru veittar. Verðlaunahátíðin verður haldin á netinu en vörumerkin eru flokkuð eftir fyrirtækjamarkaði og einstaklingsmarkaði og stærð fyrirtækja, hvort þar starfi fleiri eða færri en 50 manns. Vörumerkin tuttugu og átta sem tilnefnd hafa verið má sjá á myndinni hér til hliðar.
Meira