Greinar föstudaginn 25. júní 2021

Fréttir

25. júní 2021 | Erlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

64 létust í loftárás í Tigray-héraði

Að minnsta kosti 64 létust og 180 særðust í loftárás eþíópíska hersins á markað í Tigray-héraði í norðurhluta Eþíópíu. Talsmaður hersins sagði að skotmark árásarinnar hafi verið uppreisnarmenn. Meðal látinna eru þó börn og óbreyttir borgarar. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 239 orð | 1 mynd

Allir farþegar skipsins komu hingað með flugi

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Reykjavíkur í gærmorgun. Það var Viking Sky sem lagðist að bryggju við Skarfabakka og hefur viðdvöl þar fram á sunnudag. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 156 orð

Atvinnuleysi minnkaði á milli mánaða

Atvinnuleysi á vinnumarkaðinum dróst saman um 2,8 prósentustig á milli mánaðanna apríl og maí samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands sem birt var í gær. Mældist atvinnuleysið 5,8% í könnun Hagstofunnar. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 542 orð | 2 myndir

Auðvitað jólaball í júní

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Allt virðist leyfilegt til orðs og æðis um þessar mundir og ekkert kemur á óvart. Ekki einu sinni jólaball í júní enda aðeins sex mánuðir til jóla. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 213 orð

Árangurinn vekur athygli

Guðni Einarsson gudni@mbl. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 338 orð | 1 mynd

„Mjög gott mæðraeftirlit“

Tíðni ungbarnadauða er mjög lág hér á landi, eða þrisvar sinnum lægri en meðaltíðni í löndum Evrópusambandsins, samkvæmt nýjum gögnum Eurostat sem birtust í Morgunblaðinu á þriðjudag. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 226 orð | 1 mynd

Dæla vatni í Hvaleyrarvatn

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er eitt helsta útivistarsvæði okkar Hafnfirðinga. Það skiptir okkur máli að vatnið sé fallegt en ekki eitt drullusvað,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 21 orð | 1 mynd

Eggert

Vinna Framkvæmdir standa nú yfir á Tryggvagötu. Ætla má að góða veðrið megi nýta í fleira en að fara í... Meira
25. júní 2021 | Erlendar fréttir | 326 orð | 1 mynd

Eigi ekki lengur heima í ESB

Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna skiptust á að gagnrýna stjórnvöld í Ungverjalandi á leiðtogafundi sínum í Brussel í gær. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 326 orð | 2 myndir

Fá lóð til landeldis í Viðlagafjöru

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hagstæður hiti sjávar við Vestmannaeyjar skapar góðar aðstæður til að ala lax í kerum á landi. Meira
25. júní 2021 | Erlendar fréttir | 115 orð | 1 mynd

Fjölda saknað eftir að hús hrundi

Kona lést og hátt í hundrað var saknað í gær eftir að tólf hæða íbúðarhús í bænum Surfside í Flórída-ríki hrundi að hluta til. Leituðu björgunarmenn logandi ljósi í rústunum að eftirlifendum í kjölfar hrunsins, en um 55 íbúðir eyðilögðust í því. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 296 orð

Fleiri konur en karlar í nefndum

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Fleiri konur en karlar sátu í nefndum á vegum ráðuneyta í fyrra. Hlutfallið var 51% konur á móti 49% karla. Er þetta annað árið í röð sem fleiri konur en karlar sitja í nefndum ráðuneyta. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Framtíðin björt fyrir Icelandair

„Að því gefnu að þetta gangi eftir og verði samþykkt fá þeir stjórnarmann. Og þá þarf einhver að víkja. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 191 orð | 1 mynd

Háttsemin ámælisverð

Eftirlitsnefnd með starfsháttum lögreglu hefur komist að þeirri niðurstöðu að háttsemi tveggja lögregluþjóna, á vettvangi í Ásmundarsal á Þorláksmessukvöld, geti talist ámælisverð og tilefni sé til að senda þann þátt málsins til meðferðar hjá... Meira
25. júní 2021 | Erlendar fréttir | 99 orð | 1 mynd

Hefja rannsókn á andláti McAfees

Spænsk stjórnvöld hófu í gær rannsókn á andláti Johns McAfee, höfundar tölvuvarnaforritsins McAfee, en hann lést í fyrrakvöld í fangaklefa sínum í Barcelona, þar sem hann beið þess að vera framseldur til Bandaríkjanna fyrir skattalagabrot. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 568 orð | 2 myndir

Ísland í forystu í baráttu við lifrarbólgu C

Fréttaskýring Guðni Einarsson gudni@mbl.is Markmið um þjónustuþekjun í átt að útrýmingu lifrarbólgu C sem meiri háttar lýðheilsuvanda náðust á Íslandi á fyrstu þremur starfsárum Meðferðarátaks gegn lifrarbólgu C sem hófst 2016. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 839 orð | 3 myndir

Kaupin í Icelandair styrkleikamerki

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group, kveðst ganga sáttur frá borði enda sé framtíðin hjá flugfélaginu björt. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 216 orð

Laxar fiskeldi getur nú tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið við...

Laxar fiskeldi getur nú tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið við laxeldi á nýjum staðsetningum í Reyðarfirði. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 368 orð | 2 myndir

Leikar hefjast hjá Play með fyrstu ferð og útboði

Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Flugvél flugfélagsins Play tók af stað í jómfrúarferð sína í gær frá Keflavíkurflugvelli. Ferðinni var heitið til Lundúna og voru í vélinni um 100 farþegar. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 326 orð | 1 mynd

Lyftistöng fyrir starfsmenn

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég þekki ekki fortíðina, en þessi samningur er allavega vel yfir meðaltalinu. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 494 orð | 2 myndir

Nýr kafli að hefjast á Seyðisfirði

Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 270 orð

Óskar eftir nauðasamningi

Rútufyrirtækið Allrahanda Gray Line ehf. hefur gert áætlun til næstu þriggja ára um endurreisn félagsins í kjölfar erfiðleika af völdum kórónuveirunnar. Hefur félagið óskað eftir nauðasamningi fyrir héraðsdómi en greiðsluskjól þess rennur út í dag. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 225 orð | 1 mynd

Sárin tekin að gróa, hálfu ári eftir hamfarir

Rétt um hálft ár er liðið frá því þrjár aurskriður féllu úr hlíðum Seyðisfjarðar og bærinn var rýmdur í heild sinni skömmu fyrir jól. Úrkoman sem féll á bæinn á tíu dögum samsvaraði úrkomu heils árs í Reykjavík. Meira
25. júní 2021 | Erlendar fréttir | 311 orð | 1 mynd

Segir nóg komið af lögræðissviptingu

„Ég vil bara fá líf mitt til baka. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 227 orð | 1 mynd

Töfrar fram súkkulaðimola

Sigurður Ægisson sae@sae.is Frida súkkulaðikaffihús á Siglufirði er fimm ára í dag og verður því fagnað með þriggja daga afmælishátíð. Meira
25. júní 2021 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Útför Gunnars Birgissonar

Útför Gunnars Birgissonar, fyrrverandi alþingismanns og bæjarstjóra, fór fram í Lindakirkju í Kópavogi í gær. Athöfninni var einnig streymt í beinni útsendingu í Samskipahöllinni, reiðhöll hestamannafélagsins Spretts. Meira

Ritstjórnargreinar

25. júní 2021 | Staksteinar | 213 orð | 2 myndir

Ekki bara lögmaður

Örn Arnarson, fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðsins, fjallaði meðal annars um alþingiskosningar, frambjóðendur og vanda fjölmiðla í því sambandi í pistli sínum í gær. Þar segir: „Það styttist óðum í alþingiskosningar. Meira
25. júní 2021 | Leiðarar | 405 orð

Nýr kafli fyrir Katalóníu?

Náðun níumenninganna er vonandi bara fyrsta skrefið Meira
25. júní 2021 | Leiðarar | 187 orð

Til fyrirmyndar

Langir kjarasamningar skapa eftirsóknarverðan stöðugleika Meira

Menning

25. júní 2021 | Kvikmyndir | 128 orð | 1 mynd

Branagh og Wright sýna í Toronto

Nýjustu kvikmyndir leikstjóranna Kenneths Branagh og Edgars Wright verða meðal þeirra sem fumsýndar verða á kvikmyndahátíðinni í Toronto sem haldin verður í september. Meira
25. júní 2021 | Myndlist | 90 orð | 1 mynd

Eldblómagarður opnaður formlega

Litrík blóm Eldblómagarðsins í Hallargarðinum hafa sprungið út síðustu daga og verður garðurinn opnaður formlega í dag kl. 17. Meira
25. júní 2021 | Tónlist | 130 orð | 1 mynd

Hannigan í Hörpu á næsta ári

Kanadíska sópransöngkonan Barbara Hannigan syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvennum tónleikum í Eldborg á opnunarhelgi Listhátíðar í Reykjavík á næsta ári, 3. og 4. júní 2022. Hannigan mun einnig stjórna hljómsveitinni. Meira
25. júní 2021 | Menningarlíf | 707 orð | 4 myndir

Óvenjumargir hápunktar á árinu

Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl. Meira
25. júní 2021 | Myndlist | 441 orð | 2 myndir

Skynjun gesta í forgrunni

Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl. Meira
25. júní 2021 | Fjölmiðlar | 189 orð | 1 mynd

Stríðandi fylkingar í San Francisco

Ég lauk nýverið við aðra seríu bandarísku þáttaraðarinnar Warrior og má til með að mæla heilshugar með henni. Hún segir frá kínverskum innflytjendum í San Francisco-borg í Bandaríkjunum á síðari hluta 19. aldar. Meira
25. júní 2021 | Leiklist | 46 orð | 1 mynd

Söngleikur um Thelmu og Louise

Callie Khouri, handritshöfundur kvikmyndarinnar Thelma & Louise frá árinu 1991, greinir frá því í samtali við Hollywood Reporter að hún sé að skrifa söngleik upp úr hinni rómuðu kvikmynd. Meira

Umræðan

25. júní 2021 | Aðsent efni | 350 orð | 1 mynd

Hlustuðum á hálendisfólkið

Eftir Vilhjálm Árnason: "Það er enginn betur til þess fallinn að sjá um hálendið en fólkið sem hefur hugsað um það hingað til." Meira
25. júní 2021 | Aðsent efni | 806 orð | 3 myndir

Sparnaður við útreikninga á losun gróðurhúsalofttegunda við nýbyggingar

Eftir Sigurð Ingólfsson: "400 milljóna kr. árlegur kostnaður við útreikninga á losun CO2 gufar að mestu upp hér á landi ef BYGG-kerfið verður notað við útreikningana á 2.000 íbúðum." Meira
25. júní 2021 | Aðsent efni | 1050 orð | 1 mynd

Viðurkennd sérstaða landbúnaðarframleiðslu

Eftir Björn Bjarnason: "Til að starfsskilyrði landbúnaðar hér séu sambærileg og í nágrannalöndunum ber að tryggja svigrúm innlendra framleiðenda. Á þetta skortir." Meira
25. júní 2021 | Pistlar | 428 orð | 1 mynd

Þeir verst settu bíða enn

Ríkisstjórnin hefur viðhaldið þeim stórfurðulega, bútasaumaða óskapnaði sem almannatryggingakerfið er orðið að. Meira

Minningargreinar

25. júní 2021 | Minningargreinar | 1075 orð | 1 mynd

Aðalheiður Sigvaldadóttir

Aðalheiður fæddist 20. júlí 1943. Hún lést 8. júní 2021. Útför Aðalheiðar var gerð 22. júní 2021. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 988 orð | 1 mynd

Bragi Níelsson

Bragi Níelsson var fæddur á Seyðisfirði 16. febr. 1926. Hann lést þann 13. júní 2021 á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Foreldrar Braga voru Níels Sigurbjörn Jónsson, f. 19.3. 1901, d. 24.1. 1975, verkamaður og Ingiríður Ósk Hjálmarsdóttir, f. 8.7. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 900 orð | 1 mynd

Guðberg Ellert Haraldsson

Guðberg Ellert Haraldsson fæddist 30. september 1927. Hann lést 9. júní 2021. Útförin fór fram 22. júní 2021. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 1241 orð | 1 mynd

Guðrún Ágústa Sveinbjörnsdóttir

Guðrún Ágústa Sveinbjörnsdóttir fæddist 12. september 1934 í Litlu-Ávík. Hún lést 26. desember 2020 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hólmavík. Foreldrar Guðrúnar Ágústu voru Þórdís Jóna Guðjónsdóttir, f. 20.11. 1913, d. 10.7. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 1537 orð | 1 mynd

Gunnlaugur Björnsson

Gunnlaugur Björnsson var fæddur að Hrappsstöðum í Víðidal 24. mars 1937. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Akranesi 9. júní 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, sem ættuð var frá Gröf í Lundarreykjadal, f. 1892, d. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 521 orð | 1 mynd

Ingunn Halldórsdóttir

Ingunn Halldórsdóttir fæddist 16. september 1925. Hún lést 9. júní 2021. Útför Ingunnar fór fram 22. júní 2021. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 2077 orð | 1 mynd

Jóna Þorsteinsdóttir

Jóna Þorsteinsdóttir fæddist á Ketilsstöðum í Mýrdal 29. maí 1926. Hún lést á hjartadeild Landspítalans 10. júní 2021. Foreldrar Jónu voru Þorsteinn Gunnarsson frá Steig, f. 29. desember 1893, d. 10. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 2878 orð | 1 mynd

Jón Trausti Ársælsson

Jón Trausti Ársælsson fæddist í Ólafsvík 2. september 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 14. júní 2021. Hann var sonur hjónanna Ársæls Jónssonar frá Arnarstapa, f. 25.9. 1918, d. 12.8. 1996, og Önnu Sigrúnar Jóhannsdóttur, f. 3.6. 1919, d. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 3346 orð | 1 mynd

Magnús Sigurgeir Jónsson

Magnús Sigurgeir Jónsson fæddist á Ísafirði 29. janúar 1941. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 17. júní 2021. Foreldrar hans voru Jón Valgeir Guðmundur Magnússon sjómaður, f. 1905, d. 1951 og Sveinfríður Guðrún Hannibalsdóttir, f. 1913, d. 1998. Meira  Kaupa minningabók
25. júní 2021 | Minningargreinar | 91 orð | 1 mynd

Sveinn Eyjólfur Tryggvason

Sveinn Eyjólfur Tryggvason fæddist 26. maí 1972. Hann lést 30. maí 2021. Útförin fór fram 12. júní 2021. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

25. júní 2021 | Viðskiptafréttir | 426 orð | 2 myndir

Fyrirtæki lýsa áhyggjum af stöðu raforkumarkaðarins

Baksvið Logi Sigurðarson logis@mbl.is Meira
25. júní 2021 | Viðskiptafréttir | 141 orð | 1 mynd

Icelandair hækkaði mest í kauphöllinni

Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands hækkaði um 0,66% í gær. Langmest hækkaði verð á bréfum flugfélagsins Icelandair, eða um 7,53% í 386 milljóna króna viðskiptum. Eftir hækkunina kosta bréf félagsins nú 1,57 krónur hver hlutur. Meira

Fastir þættir

25. júní 2021 | Fastir þættir | 169 orð | 1 mynd

1. c4 Rf6 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. Rc3 0-0 5. e4 d6 6. Rge2 e5 7. 0-0 Rc6...

1. c4 Rf6 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. Rc3 0-0 5. e4 d6 6. Rge2 e5 7. 0-0 Rc6 8. d3 Be6 9. h3 Rd7 10. Hb1 a5 11. a3 f5 12. Rd5 a4 13. Be3 Rc5 14. Kh2 Dd7 15. Rec3 Rd4 16. Bxd4 exd4 17. exf5 Bxf5 18. Re4 Rxe4 19. dxe4 Be6 20. f4 Ha5 21. Hc1 c6 22. Rb4 Hc5 23. Meira
25. júní 2021 | Í dag | 36 orð | 3 myndir

Batamenning í stað refsimenningar

Tolli Morthens vill gera fíkniefni lögleg og telur víst að eftir nokkrar kynslóðir verði framkoma nútímans í garð fólks með fíknisjúkdóma fordæmd. Hann telur lag að gera breytingar nú í anda þeirrar mannúðarbyltingar sem ríður... Meira
25. júní 2021 | Fastir þættir | 176 orð

Brostnar vonir. S-Allir Norður &spade;D109765 &heart;2 ⋄K4...

Brostnar vonir. S-Allir Norður &spade;D109765 &heart;2 ⋄K4 &klubs;10874 Vestur Austur &spade;KG4 &spade;Á3 &heart;D985 &heart;G4 ⋄DG7 ⋄1096532 &klubs;G53 &klubs;962 Suður &spade;82 &heart;ÁK10763 ⋄Á8 &klubs;ÁKD Suður spilar 6&klubs;. Meira
25. júní 2021 | Í dag | 89 orð | 1 mynd

Ekki mikið mál að kveðja Ísland

„Ég er reyndar ekki alfarin en mér líður vel þarna og það er ekkert sem krefst þess að ég komi reglulega til Íslands og það hefur bara verið bindandi að eiga einhverjar fasteignir á Íslandi og yfirleitt einhverjar eignir,“ segir Anna... Meira
25. júní 2021 | Í dag | 783 orð | 5 myndir

Elska kyrrðina og fegurðina í sveitinni

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir fæddist og ólst upp í Reykholti og á Brekkukoti í Reykholtsdal. Hún gekk í Kleppjárnsreykjaskóla og lauk þar grunnskólagöngunni. Meira
25. júní 2021 | Árnað heilla | 250 orð | 1 mynd

Jenný Þórkatla Magnúsdóttir

50 ára Jenný fæddist á sjúkrahúsinu í Keflavík og ólst upp í Njarðvíkunum og gekk í Njarðvíkurskóla. „Þetta var lítið samfélag þar sem allir þekktu alla og það var gott að vera krakki í Njarðvíkunum. Meira
25. júní 2021 | Í dag | 266 orð

Lífsins vatn og rósir í hjarni

Á Boðnarmiði rifjar Ólafur Helgi Theódórsson upp gamla vísu eftir Sigurð Kristjánsson, síðast á Grýtubakka í Höfðahverfi, – hann segir að hún hafi einhverra hluta vegna komið upp í huga sér. Meira
25. júní 2021 | Í dag | 60 orð

Málið

Algengt er að missa af einhverjum . T.d. vinafólki sem búið er að borða og drekka sig grænt af kaffi og bakkelsi og farið aftur heim á Stöðvarfjörð áður en maður losnaði úr umferðinni. Meira

Íþróttir

25. júní 2021 | Íþróttir | 85 orð | 1 mynd

Auður Íris tekur við Stjörnunni

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá ráðningu Auðar Írisar Ólafsdóttur og verður hún næsti þjálfari kvennaliðs félagsins. Stjarnan leikur í 1. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 71 orð | 1 mynd

Birkir sagður á leið til Tyrklands

Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur gert samkomulag við Adana Demirspor í Tyrklandi. Birkir mun gera tveggja ára samning við félagið. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Bæði Valsliðin komust áfram í Mjólkurbikarkeppnunum í gær

Valur tryggði sér í gær sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Valur fór til Vestmannaeyja í 8-liða úrslitum og lagði ÍBV að velli 1:0. Hinir þrír leikirnir í 8-liða úrslitunum eru á dagskrá í kvöld. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 127 orð | 1 mynd

Elín Metta í sviðsljósinu þegar Valur sló ÍBV út

Landsliðsmiðherjinn Elín Metta Jensen var í sviðsljósinu þegar ÍBV og Valur áttust við í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gær. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 72 orð | 1 mynd

Frábær hringur í Frakklandi

Haraldur Franklín Magnús, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, lét frábærlega á fyrsta keppnisdegi Open de Bretagne-mótsins í Frakklandi. Haraldur lék hringinn á 64 höggum og var á sjö höggum undir pari vallarins en mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 80 orð | 1 mynd

Heimsmethafi lætur gott heita

Helgi Sveinsson, fyrrverandi heims- og Evrópumeistari í spjótkasti, hefur ákveðið að leggja spjótið á hilluna. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 53 orð

Horfið frá reglunni um útivallarmörk

Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í gær að reglan um útivallarmörk í keppnum sambandsins yrði afnumin. Breytingin tekur gildi strax á komandi leiktíð. Reglubreytingin nær yfir Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina og nýju Sambandsdeildina. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 47 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur karla: Þorlákshöfn: Þór Þ. &ndash...

KÖRFUKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur karla: Þorlákshöfn: Þór Þ. – Keflavík 20:15 KNATTSPYRNA Mjólkurbikar kvenna, 8-liða úrslit: Selfoss: Selfoss – Þróttur R. 19:15 Kópavogsv. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 90 orð | 1 mynd

Magdeburg tryggði 3. sætið

Ómar Ingi Magnússon var markahæstur þegar Magdeburg tryggði sér þriðja sætið í þýsku bundesligunni í handknattleik í gær. Magdeburg gerði jafntefli 27:27 gegn Wetzlar á heimavelli og er þremur stigum á undan Füchse Berlín þegar lokaumferðin er eftir. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 901 orð | 1 mynd

Menn verða að þora að vera í kastljósinu

Körfuboltinn Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Friðrik Ingi Rúnarsson, sem var aðstoðarþjálfari Njarðvíkur á liðnu tímabili, hefur marga fjöruna sopið í körfuknattleiknum hér á landi, enda þjálfað meistaraflokka af báðum kynjum í meira en 30 ár. Síðustu tvö störf hans sem aðalþjálfari voru hjá karlaliði Þórs frá Þorlákshöfn tímabilið 2019/2020 og þar á undan karlaliði Keflavíkur tímabilið 2017/2018. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 296 orð | 1 mynd

Mjólkurbikar kvenna 8-liða úrslit: ÍBV – Valur 0:1 2. deild kvenna...

Mjólkurbikar kvenna 8-liða úrslit: ÍBV – Valur 0:1 2. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 68 orð | 1 mynd

Skoraði 48 stig fyrir Atlanta

Trae Young átti þvílíkan stórleik í liði Atlanta Hawks þegar Atlanta vann fyrsta leikinn gegn Milwaukee Bucks í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum aðfaranótt fimmtudagsins en liðin áttust við á heimavelli Milwaukee. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 15 orð | 1 mynd

Úrslitakeppni NBA Úrslit Austurdeildar: Atlanta Hawks – Milwaukee...

Úrslitakeppni NBA Úrslit Austurdeildar: Atlanta Hawks – Milwaukee Bucks 116:113 *Staðan er 1:0 fyrir... Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 251 orð | 1 mynd

Úrvalsdeildarlið bættust við

Fjögur úrvalsdeildarlið úr Reykjavík, Valur, KR, Víkingur og Fylkir, komust áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu en fjórir leikir voru spilaðir í 32 liða úrslitum keppninnar í gær. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 253 orð | 1 mynd

Það var hér um bil ómögulegt að samgleðjast ekki Dönum þegar þeir...

Það var hér um bil ómögulegt að samgleðjast ekki Dönum þegar þeir tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu karla með frábærum 4:1-sigri gegn Rússlandi í lokaumferð B-riðils keppninnar á mánudaginn. Meira
25. júní 2021 | Íþróttir | 70 orð | 1 mynd

Þýskaland Essen – RN Löwen 23:33 • Ýmir Örn Gíslason skoraði...

Þýskaland Essen – RN Löwen 23:33 • Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen en lék í vörninni. Magdeburg – Wetzlar 27:27 • Ómar Ingi Magnússon skoraði 8 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Kristjánsson er frá keppni. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.