Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Handboltaskyttan Gunnlaugur Hjálmarsson bar af á árum áður sem leikmaður ÍR, Fram og landsliðsins og var meðal annars valinn í heimsliðið að loknu heimsmeistaramótinu 1961, fyrstur Íslendinga. Handboltadómarinn Gunnlaugur Hjálmarsson var í fremstu röð í fjóra áratugi og heldri borgarinn Gunnlaugur Hjálmarsson er enn við sama heygarðshornið, þegar kemur að æfingum og uppbyggingu og blæs vart úr nös eftir verkefni dagsins. „Ég er að seinka andlátinu,“ segir hann.
Meira