” Í einhverjum tilvikum skrifa heimilislæknar upp á vottorð um óvinnufærni vegna þess andlega áfalls sem uppsögnin er sögð hafa valdið, án þess að vart verði við að sjúklingurinn fái neina meðferð eða aðstoð vegna sinna andlegu veikinda. Upp hafa komið hreint ótrúleg mál, þar sem fólk fær uppáskrifað frá lækni að það sé óvinnufært í aðalvinnunni sinni, þar sem því var sagt upp, en vinnufært í aukastarfi.
Meira