Það þykir ólíklegt að Seðlabanki Íslands kalli til aukafundar í peningastefnunefnd fyrir næsta reglulega fund í maí, þrátt fyrir versnandi efnahagsástand víða um heim og mikinn óróa á mörkuðum. Peningastefnunefndin hefur lækkað stýrivexti tvisvar á…
Meira
Reykjavíkurborg hefur óskað eftir að útskýra svar samskiptastjóra borgarinnar, til Morgunblaðsins, um að engin áformuð uppbygging væri fram undan núna við tjörnina í miðju Seljahverfis. Til stendur að vinna deiliskipulag af reitnum þar sem fram kemur umfang bygginga, staðsetning og fjöldi íbúða
Meira
Nýjum Bókaklúbbi Spursmála hefur verið ýtt úr vör. Á þeim vettvangi verður ný bók kynnt til leiks í hverjum mánuði og fjallað um efni hennar og innihald með greinaskrifum og viðtölum og þá verður efnt til viðburða þar sem rætt er við höfunda,…
Meira
Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki er sá þingmaður sem mest hefur talað í ræðustól Alþingis á yfirstandandi þingi, 156. löggjafarþinginu. Alþingiskosningarnar fóru fram 30. nóvember 2024 og þingið kom saman 4
Meira
Geldinganes á Sundunum við Reykjavík getur talist vera hvort heldur sem er eyja eða útnes. Frá fastalandi við Strandveg í Grafarvogshverfi í Reykjavík er slóði niður að því eiði eða hafti sem tengir staðinn við fastalandið
Meira
„Staðan verður tekin aftur á nýju ári,“ segir Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., en engar hvalveiðar verða í sumar á vegum fyrirtækisins. „Afurðaverðsþróun í okkar aðalmarkaðslandi, Japan, hefur verið óhagstæð að undanförnu og fer…
Meira
Engar hvalveiðar verða í sumar á vegum Hvals hf. og segir Kristján Loftsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins við Morgunblaðið að ástæða þess sé aðstæður í heimsmálum. „Afurðaverðsþróun í okkar aðalmarkaðslandi, Japan, hefur verið óhagstæð að…
Meira
Farfuglarnir eru margir hverjir komnir til landsins, en eins og fram kom nýverið í Morgunblaðinu var heiðlóan með þeim fyrstu að mæta. Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur og fréttaritari Morgunblaðsins, segir farveður hafa verið fínt undanfarið, á meðan hæð var milli Íslands og Evrópu
Meira
Heimastjórn Djúpavogs, ein af nefndum í stjórnkerfi sveitarfélagsins Múlaþings, telur að bæta þurfi fjarskiptasamband víða í grennd við Djúpavog. Slíkt sé aðkallandi í ljósi síaukinnar umferðar á þeim slóðum
Meira
Icelandair hóf á fimmtudaginn að fljúga til Nashville í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum. Þar með bætist enn í þá áfangastaði sem flugfélagið flýgur til í Bandaríkjunum og eru þeir nú 18 talsins. Áætlað er að flogið verði til borgarinnar fjórum sinnum í viku þangað til í lok október
Meira
Í álitsgerð fjármálaráðs vegna fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026-2030 er dregið í efa að ný stöðugleikaregla ríkisstjórnarinnar stuðli að lækkun skulda og að hún sé nægilega ströng. „Fjármálaráð hefur oft varað við því að…
Meira
Bohemian Hotels hafa samið við Hilton-hótelkeðjuna, eina þá stærstu í heimi, um að opna Tempo-hótel í Bríetartúni. Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Bohemian Hotels, segir hótelið munu heita Tempo by Hilton Reykjavík
Meira
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að bandamenn Úkraínu þyrftu að skýra betur út hvernig mögulegt herlið frá ríkjum Evrópu, sem Bretar og Frakkar hafa haft forgöngu um, myndi líta út. „Við þurfum að skilgreina skýr smáatriði um…
Meira
Donald Trump tilkynnti í vikunni 90 daga frestun á nýjum tollum fyrir mörg ríki, í þeirri von að skapa svigrúm til viðræðna um sanngjarnari viðskiptaskilmála. Þó voru ekki öll lönd undanskilin – sum greiða áfram verulega tolla og Kína stendur frammi fyrir harðari aðgerðum en áður
Meira
„Tíðin er góð og bændur eru farnir að huga að vorverkum. Þeir eru því farnir að kalla eftir að fá áburðinn svo ég má hafa mig allan við. Ég þarf að klára þetta allt helst fyrir miðjan maí,“ segir Pétur Daníelsson vörubílstjóri á Hvammstanga
Meira
Kristrún Frostadóttir var endurkjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í Grafarvogi í gær og hlaut hún 296 atkvæði af 300 eða 98,67%. Aðrir gáfu ekki kost á sér. Guðmundur Árni Stefánsson var endurkjörinn og sjálfkjörinn…
Meira
Fyrstu 10 dagar aprílmánaðar eru þeir langhlýjustu síðan mælingar hófust hér á landi. Trausti Jónsson veðurfræðingur vekur athygli á þessu á Moggablogginu. Skráðar veðurathuganir ná allt aftur til ársins 1845
Meira
Njarðvík hafði örugglega betur gegn Álftanesi á heimavelli og ÍR vann nauman sigur á Stjörnunni í Garðabæ í þriðju leikjum liðanna á Íslandsmóti karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Bæði Njarðvík og ÍR minnkuðu þannig muninn í einvígjum sínum í 2:1,…
Meira
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða fluttir í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa, 18. apríl, milli kl. 13 og 18.15. Lesarar að þessu sinni verða fimm, þau Grétar Einarsson kirkjuhaldari Hallgrímskirkju, Svanhildur Óskarsdóttir,…
Meira
Steven Fulop, borgarstjóri í Jersey City, sagði í gær að fjölskyldan sem fórst þegar útsýnisþyrla hennar hrapaði í Hudson-ána í fyrrakvöld hefði verið að fagna fertugsafmæli móðurinnar. Fjölskyldan, sem var frá Spáni, fórst öll í slysinu ásamt flugmanni þyrlunnar
Meira
Árlegir páskatónleikar hefjast klukkan 15 í Boðunarkirkjunni á Álfaskeiði 115 í Hafnarfirði á morgun, pálmasunnudag, og er aðgangur ókeypis sem fyrr. „Þetta eru upprisuhátíðartónleikar í tilefni páskanna og Boðunarkirkjan vill hafa frítt inn…
Meira
Fjármálaráð segir fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar vegna áranna 2026-2030 treysta um of á hagstærðir sem óvenju mikil óvissa ríkir um nú um stundir í fjármálastefnu sinni. Ríkisstjórnin hefur boðað hraðari afkomubata en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir og hraðari lækkun skuldahlutfalls
Meira
Fjármálaráð gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega hvað varðar framlagningu fjármálastefnu og fjármálaáætlunar vegna áranna 2026-2030. Fjármálastefna ríkisstjórnarinnar var lögð fram því sem næst samhliða fjármálaáætlun og telur…
Meira
„Þetta bréf er ekkert annað en staðfesting á kosningasvikum. Það er verið að hækka skatta á fjölskyldur um 2.700 milljónir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið
Meira
Mennta- og barnamálaráðuneytið tilkynnti í gær að það hefði farið þess á leit við Tækniskólann að nemendur Kvikmyndaskóla Íslands fengju boð um að innritast í skólann og ljúka námi sínu frá Tækniskólanum
Meira
Fjármálaráð segir það rýra trúverðugleika fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar að hún sé lögð fram samhliða fjármálaáætlun. Henni sé ætlað að standa sjálfstætt og leggja grunn að öðrum þáttum stefnumörkunar í opinberum fjármálum, það er fjármálaáætlun og fjárlögum
Meira
Uppskerutími er núna hjá kórfólki landsins þar sem alls konar tónleikar eru í boði. Nýlega var Karlakór Rangæinga með mjög vel heppnaða tónleika í Leikskálum í Vík í Mýrdal, en stjórnandi kórsins er Einar Þór Guðmundsson
Meira
„Uppskriftin að soðnu brauði kemur víst einhvers staðar héðan úr sveitunum og er ævagömul. Kona sem hér starfaði endur fyrir löngu átti á blaði hvað þyrfti í kökurnar. Eftir því var unnið og fólki líkaði varan alveg ljómandi vel,“ segir Ófeigur Marinósson í Kristjánsbakaríi á Akureyri
Meira
Par deilir rúmi á endurhæfingarstöð sem úkraínski milljarðamæringurinn Vjatseslav Saporósjets setti á fót í Kænugarði eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þangað leita hermenn til endurhæfingar og berjast þar við afleiðingar þeirra hræðilegu…
Meira
„Hugmyndin er að hafa yfirsýn yfir uppbyggingarkosti næstu áratuga. Hafa faglegt mat að baki ákvörðun um kosti frekar en að hafa slíkt fast í reiptogi stjórnmála. Þar undir eru svæði eins og Geldinganes,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir,…
Meira
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að tollastefna sín væri að standa sig vel, þrátt fyrir þær miklu vendingar sem sést hafa á hlutabréfamörkuðum heimsins síðustu daga. „Þetta er mjög spennandi fyrir Bandaríkin og…
Meira
Maður á þrítugsaldri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á fimmtudag með kókaín í farangrinum en hann kom hingað til lands með flugi frá Spáni. Þá var maður á 19. aldursári handtekinn sama dag við komu til landsins frá Frakklandi
Meira
Samkomulag við lífeyrissjóði í vikunni markar endalok vanda sem staðið hefur í tvo áratugi. Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp til fjáraukalaga þar sem óskað er eftir heimild til að gefa út ríkisskuldabréf að hámarki 510 milljörðum króna vegna fyrirhugaðs uppgjörs á skuldbindingum ÍL-sjóðs
Meira
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Bohemian Hotels, segir uppbyggingu 170 herbergja hótels í Bríetartúni 3-5 munu hefjast á næstu vikum. Stefnt er að því að opna hótelið fyrir sumarið 2027 en það mun heita Tempo by Hilton Reykjavík
Meira
Bandaríkjaher tilkynnti í gær að ofurstanum Susönnuh Meyers hefði verið vikið úr starfi, en hún var áður yfirmaður Pituffik-herstöðvarinnar á Grænlandi. Er uppsögnin rakin til þess þegar J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna heimsótti herstöðina…
Meira
12. apríl 2025
| Innlendar fréttir
| 1072 orð
| 2 myndir
Það þykir ekki nýlunda að fylgst sé grannt með sendifulltrúum erlendra ríkja í Moskvu, en greint var frá því í síðasta mánuði að starfsfólk íslenska sendiráðsins í Moskvu hefði mátt þola ýmiss konar eftirlit og jafnvel ógnanir, og að þær hefðu…
Meira
Þýskaland verður að búa sig andlega og hernaðarlega undir vopnuð átök við Rússland í náinni framtíð. Rússnesk árás á Þýskaland er ekki útilokuð og því brýnt að byggja upp herinn eins hratt og kostur er
Meira
Tollar á Kína og í Kína eru nú komnir í hæstu hæðir, þegar horft er til beggja stórþjóða. Trump bendir á, að hann hefur ítrekað varað Kína við því, að ganga sífellt lengra á sinni leið, sem líkur standi til, að muni því miður enda illa.
Meira
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er fróður um sögu, ekki síst hagsögu, og gerði hana að sérstöku umræðuefni á ársfundi Seðlabankans í fyrradag. Þar var verslunarfrelsið í aðalhlutverki, og kemur ekki til af góðu
Meira
Einkasýning Auðuns Kvarans, I'd Rather be Somewhere Nice, stendur nú yfir í Gallerí Fyrirbæri á Ægisgötu 7 í Reykjavík. Segir í tilkynningu að verk hans byggist á rannsókn á hinu hverfula samspili einstaklinga og umhverfis þeirra
Meira
Eftir áralangt hlé snýr Blúshátíðin nú aftur til síns heima á Hilton Reykjavík Nordica og verður hún haldin samkvæmt hefð í dymbilvikunni, dagana 16. og 17. apríl. Blúsdagurinn setur hins vegar hátíðina laugardaginn 12
Meira
Þær Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósópran og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja þekkt ljóð eftir Schubert og Brahms á tónleikum sem bera yfirskriftina Tónskáldin úr austri – ljóðatónleikar í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,…
Meira
Stundum þegar maður heyrir skemmtileg eldri lög er fyrsta verk að athuga hvort þau sé að finna á helstu streymisveitum á við Spotify eða Apple Music. Þegar reynist snúið að finna slík lög á Spotify og Apple Music á YouTube það til að koma til bjargar
Meira
Stockfish í Bíó Paradís Vermiglio ★★★★½ Leikstjórn: Maura Delpero. Handrit: Maura Delpero. Aðalleikarar: Tommaso Ragno, Roberta Rovelli, Martina Scrinzi, Giuseppe De Domenico, Patrick Gardner og Rachele Potrich. 2024. Ítalía, Frakkland og Belgía. 119 mín.
Meira
Trúarleg tónlist, sálmar og gospellög munu hljóma á tónleikum sem fram fara í Laugarneskirkju í Reykjavík á mánudaginn, hinn 14. apríl, klukkan 18. Aðgangur er ókeypis og segir í tilkynningu um viðburðinn að um sé að ræða tæplega klukkustundarlanga kyrrðarstund með tónlist í dymbilvikunni
Meira
Breska indípopphljómsveitin Pulp, undir forystu forsprakkans Jarvis Cockers, sendi frá sér yfirlýsingu í vikunni þess efnis að von væri á glænýrri plötu frá henni sem ber heitið More. AFP greinir frá og segir hljómsveitina, sem þekktust sé fyrir…
Meira
Sala á alþjóðlegum listamarkaði dróst saman um 12% árið 2024, samkvæmt Art Basel og UBS Global Art Market-skýrslunni sem birt var fyrr í vikunni. Í ársskýrslunni, sem talin er ein áreiðanlegasta vísbendingin um stærð og heilbrigði listamarkaðarins,…
Meira
Umbra kemur fram á Föstutónum á morgun, sunnudaginn 13. apríl, klukkan 20 í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ. Segir í tilkynningu að á tónleikunum kafi Umbra í veraldleg og trúarleg ljóð Hallgríms Péturssonar og leiti víða fanga hvað tónefni varðar
Meira
Hluti af svekkelsinu er hversu lélegar falsanir þetta eru. Þetta er bara ekki nógu vel gert og handbragðið barnalegt. Listaverk listamanna eru niðurstaða margra áratuga rannsókna.
Meira
Þórunn Bára hefur opnað einkasýningu sína Samhljómur – tilvísun í náttúru Surtseyjar í Gallerí Fold. Segir í tilkynningu að eldfjallaeyjan Surtsey hafi verið Þórunni Báru hugleikin um árabil og átt ríkan þátt í listsköpun hennar
Meira
Kennari: Það var óviturlegt að úthýsa biblíusögum úr kennslustofunni, og ég ætla að berjast fyrir því að þær verði teknar inn í skólana á ný. Engin bók hefur haft meiri áhrif á vestræna menningu og listir en einmitt biblían; fyrir svo utan það að…
Meira
Nú, þegar Bandaríkjamenn og Evrópubúar virðast ekki lengur skilja hvorir aðra, kemur í hugann gömul költmynd frá 1987, sem einmitt tekur á þessum menningar- og landfræðilega mun á þessum grónu samherjum
Meira
Flestar ráðstefnur eru lítið annað en bergmál almæltra tíðinda. Það átti þó ekki við um ráðstefnu sem RSE, Rannsóknamiðstöð í samfélags- og efnahagsmálum, og Austrian Economics Center héldu saman í Reykjavík 5
Meira
Flýtum jarðgangagerð með skuldabréfaútboði og borun um þrjá fjallgarða samtímis. Þetta þarf að gerast strax, svo brothættum byggðum blæði ekki út.
Meira
Gagnrýnendur vinnubragða ráðherrans eru þó helst talsmenn sveitarfélaga og atvinnufyrirtækja sem óttast almennan afkomubrest vegna ríkisstjórnarinnar.
Meira
Landsfundur Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands hófst í Reykjavík í gær. Á fundinum er fagnað 25 ára afmæli Samfylkingarinnar sem var formlega stofnuð 5. maí 2000 en hreyfingin bauð fyrst fram til Alþingis vorið 1999
Meira
Sr. Friðrik á það skilið að hann fái að njóta í opinberri umfjöllun réttlátrar umfjöllunar, vegna ómetanlegs framlags í löngu og farsælu ævistarfi.
Meira
Tíu skákmenn voru með fullt hús vinninga eftir fyrstu þrjár umferðir Reykjavíkurmótsins sem fram fer í Hörpu og lýkur á þriðjudaginn. Enginn íslenskur skákmaður var í þeim hópi en fjölmargir komu í humátt á eftir með 2½ vinning, keppendur sem …
Meira
Björn Ingi Finsen fæddist á Akranesi 10. júlí 1942. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Höfða 26. mars 2025. Foreldrar Björns voru Lilja Guðrún Þórhallsdóttir húsmóðir, ættuð úr Aðaldal í Þingeyjarsýslu, f
MeiraKaupa minningabók
Hjörtur Bjarni Þorleifsson fæddist 26. mars 1970. Hann lést 4. ágúst 2024. Foreldrar hans voru Ingveldur Brimdís Jónsdóttir og Þorleifur Leó Ananíasson. Systkini Hjartar: Leó Örn og Telma Brimdís. Eiginkona Leós Alma Lára Hólmsteinsdóttir: Þeirra börn eru Hákon Freyr, f
MeiraKaupa minningabók
Kristófer Sverrir Sverrisson fæddist á Blönduósi 7. júní 1945. Hann lést á sjúkrahúsinu á Blönduósi 31. mars 2025. Foreldrar hans voru Elísabet Þórunn Sigurgeirsdóttir, f. 23. september 1926, d. 11. nóvember 2015, og Sverrir Kristófersson, f
MeiraKaupa minningabók
Seðlabankinn telur þörf á að styrkja gjaldeyrisvaraforðann og mun bankinn kaupa sex milljónir evra í hverri viku, jafnvirði um 870 milljóna króna. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu seðlabankastjóra, Ásgeirs Jónssonar, á ársfundi bankans í gær
Meira
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hélt erindi á ársfundi bankans á miðvikudag. Þar sagði hann meðal annars að þær raddir væru orðnar háværar að þjóðin hefði ekki efni á þjóðhagsvarúð sem hér hefur verið byggð upp undanfarin ár
Meira
Ugla er sannarlega fugl þótt skrýtin sé og öllum öðrum fuglum ólík. Hún er þannig gerð af fugli að nánast hvert einasta mannsbarn á jörðinni getur borið kennsl á hana og sagt ef það sér hana: „Þetta er ugla.“ Við getum ekki gert það við…
Meira
Spurt var um algengt orð heyrt í samtali og þótti torskilið: „Hún er héðan. Ég er aftur að norðan.“ Það var atviksorðið aftur. Hvort maðurinn væri að segja að hann hefði verið að norðan og væri það nú aftur? En þarna merkir orðið aftur á mótiMeira
Friðrik Steingrímsson fylgist með þingstörfum norðan úr Mývatnssveit: Inn á þingi'er allt í hnút og andinn galinn, þingmenn strunsa oftar út en inn í salinn
Meira
40 ára Hulda er Eskfirðingur en býr á Reyðarfirði. Hún er nuddari að mennt og stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Hún vinnur hjá Eimskip sem fulltrúi og sér um reikningagerð. Hulda situr í stjórn Skíðafélags Fjarðabyggðar SFF
Meira
Þrátt fyrir að páskar séu handan við hornið hafa margir Íslendingar enn ekki tekið niður jólaseríurnar. Söngkonan Regína Ósk og eiginmaður hennar, Svenni Þór, tóku sína loksins niður í vikunni – með hljóðnemastandi og öllu tilheyrandi
Meira
Jónas Tómasson fæddist 13. apríl 1881 á Hróarsstöðum í Fnjóskadal, S-Þing. Foreldrar hans voru Tómas Jónasson, f. 1835, d. 1883, og Björg Emilía Þorsteinsdóttir, f. 1848, d. 1915. Jónas nam orgelleik og söngfræði hjá Sigfúsi Einarssyni tónskáldi
Meira
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl
Meira
Sífellt betur kemur í ljós að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stefnir á stórfelldar skattahækkanir á fólk og fyrirtæki. Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra í Kópavogi líst ekki á stöðuna
Meira
Varmahlíð Arney Lind Einarsdóttir fæddist 6. ágúst 2024 kl. 18.22. Hún vó 3.758 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Einar Ólason og Þorbjörg Jóna Guðmundsdóttir.
Meira
Auður Hauksdóttir fæddist 12. apríl 1950 á Landspítalanum og ólst upp í Hafnarfirði. Skólagöngu sína hóf hún í Barnaskóla Hafnarfjarðar, þaðan sem leiðin lá í Flensborgarskólann. „Eins og flestir vann ég á sumrin frá unga aldri, sem reyndist…
Meira
Birnir Freyr Hálfdánarson bætti 19 ára gamalt Íslandsmet á fyrsta degi Íslandsmótsins í 50 metra laug í Laugardalslaug í gærkvöldi. Birnir kom í mark á 53,29 sekúndum í 100 metra flugsundi og bætti met Arnar Arnarsonar frá 2006 um rúmlega tíu hundraðshluta úr sekúndu
Meira
Breiðablik ver Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta á komandi tímabili ef spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna Bestu deildarinnar rætist. Var spáin opinberuð á kynningarfundi deildarinnar í gær
Meira
„Mér fannst þær komast ágætlega frá þessu,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í handknattleik og reynslubolti úr efstu deild, en hún var valin besti leikmaður úrvalsdeildarinnar árið 2015, um leiki íslenska landsliðsins um sæti á HM gegn Ísrael á Ásvöllum
Meira
Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson hefur framlengt samning sinn við Álftanes og verður hann hjá félaginu næstu tvö ár. Haukur, sem er 32 ára, kom til Álftaness fyrir síðustu leiktíð og hefur átt stóran þátt í upprisu liðsins, sem var nýliði í efstu deild er landsliðsmaðurinn kom til félagsins
Meira
Norður-Írinn Rory McIlroy sýndi vígtennurnar í gær þegar hann lék annan hringinn á Masters-mótinu í golfi á 66 höggum. McIlroy blandaði sér í baráttu efstu manna með spilamennskunni í gær en hann er samtals á 6 undir pari
Meira
Njarðvík og ÍR unnu bæði mikilvæga sigra í einvígjum sínum í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Bæði lið áttu á hættu að vera sópað í sumarfrí en unnu sína fyrstu sigra og eru því enn á lífi í einvígjunum tveimur
Meira
Egypski framherjinn Mohamed Salah hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Liverpool. Salah, sem gekk í raðir Liverpool frá Roma árið 2017, hefur á tíma sínum hjá enska félaginu skorað 243 mörk og lagt upp 109 í 394 leikjum
Meira
Íslandsmótið í hópfimleikum fór fram í gær í fimleikahúsinu á Akranesi. Þar gerði lið Stjörnunnar sér lítið fyrir og vann þrefalt. Kvennalið Stjörnunnar hrósaði sigri með 51.950 stig og er þetta í sjöunda sinn í röð sem liðið vinnur Íslandsmeistaratitilinn
Meira
Valur hafði betur gegn Breiðabliki, 1:0, í leiknum um meistara meistaranna í knattspyrnu kvenna á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Valur varð bikarmeistari á síðasta tímabili eftir sigur á Breiðabliki í úrslitaleik á meðan Breiðablik varð Íslandsmeistari…
Meira
Eftir að Chester Bennington, annar forsöngvara bandaríska rokkbandsins Linkin Park, svipti sig lífi sumarið 2017 höfðu þeir bandingjar sem eftir lifðu lítinn áhuga á því að halda áfram að músísera. Það breyttist þegar þeir fengu söngkonuna Emily Armstrong til liðs við sig á síðasta ári
Meira
Þau samtöl hafa komið mér í skilning um að þessi þjóð uppvakninga hefur verið búin undir það að ráðast á okkur undanfarin tuttugu eða þrjátíu ár.
Meira
Veisla „Hersheypark – mætið … ef ekki þá eruð þið ýmist dauð, í fangelsi eða eymingjar,“ sagði Tom Araya, söngvari og bassaleikari Slayer, á samfélagsmiðlum og henti í hvorki fleiri né færri en fimm upphrópunarmerki
Meira
Þeir eru aðeins með mynstur sem hægt er að skoða og uppgötva en þeir segja ekkert. Á bak við fánana er engin pólitík, engin ættjarðarást, ekkert.
Meira
Maður sér fyrir sér að Enver Hoxha sé eitt bros í gröf sinni í Albaníu en sjálfur skildi hann við þjóð sína í miðri áttunni einangraða og logandi hrædda við umheiminn.
Meira
Spenna Viola Davis stendur í stórræðum í sinni nýjustu kvikmynd, G20, sem Patricia Riggen leikstýrir. Hún leikur þar forseta Bandaríkjanna (ekki Donald Trump, heldur Danielle Sutton) sem staddur er á fundi helstu leiðtoga heims þegar hryðjuverkamenn taka liðið eins og það leggur sig í gíslingu
Meira
Flækjur Þrjú ungstirni, Daisy Edgar-Jones, Will Poulter og Jacob Elordi, fara með aðalhlutverkin í myndinni On Swift Horses eftir Daniel Minhan. Við erum að tala um períóðudrama sem gerist í Bandaríkjunum í fimmunni
Meira
Fyrstu tvær seríurnar af The White Lotus, eða Hvíta lótusnum, voru dúndurgóðar, um það ber flestum saman sem á annað borð hafa fyrir því að líta upp úr snjalltækjunum og kveikja á gamla, góða sjónvarpinu
Meira
Ef þú tekur einhvern sem fékk ristilkrabbamein sem greinist með meinvörp í tveimur líffærakerfum út fyrir ristil eru lífslíkurnar í kringum 5-10% eftir fimm ár.
Meira
Lestur hefur alltaf verið órjúfanlegur hluti af lífi mínu. Ég les til að læra, skilja, gleyma, muna, vinna, njóta – og hreinlega til að lifa af. Með lestri opnast nýir heimar því með tilstilli fjölbreyttra frásagna fáum við tækifæri til að sjá lífið frá sjónarhóli annars fólks
Meira
Greint var frá því á baksíðu Morgunblaðsins 13. apríl 1945 að góðir gestir úr Menntaskólanum á Akureyri hefðu komið í heimsókn í Menntaskólann í Reykjavík. Við erum að tala um Sigurð Guðmundsson skólameistara og fimm nemendur sem allir voru nafngreindir
Meira
Aðdáun Sænski kvikmyndagerðarmaðurinn Jonas Åkerlund leggur nú lokahönd á heimildarmynd um Metallica og er sjónarhornið nokkuð óvenjulegt – aðdáendur bandaríska þrassbandsins vítt og breitt um heiminn eru í forgrunni
Meira
Hvað ertu að mála? Ég er að mála abstrakt og fígúratíft að mestu og reyni að hugsa út fyrir rammann. Uppsprettan hjá mér er þessi þörf fyrir að skapa og vera í núinu. Myndlistin er eins og hugarjóga fyrir mig og ég næ algjörlega að núllstilla mig og jafnvel vinna úr tilfinningum í leiðinni
Meira
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segist hafa áhyggjur af þeirri skattavegferð sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir virðist vera á. Bendir hún á að það séu ekki aðeins sjávarútvegur og ferðaþjónusta sem eru í skotlínu skattheimtumanna heldur einnig almenningur
Meira
Ég brotnaði á fæti og særðist á hendi. Ég missti augað og er með brotnar tennur. En ég er á lífi og ég ætla að ná mér. Ég ætla að vera sterkur og ég ætla að ná mér.
Meira
„Núna, ef ég græt, þá er ég að gráta af þakklæti,“ sagði Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Vídalínskirkju, þegar sonur hennar, Bolli Már, hringdi í hana í morgunþættinum Ísland vaknar fyrr í vikunni
Meira
Margoft hefur komið fram í fjölmiðlum að stór hluti nemenda á yngsta stigi íslenskra grunnskóla nái ekki settum viðmiðum þegar kemur að lestrarfærni. Drengir hafa um árabil átt sérstaklega undir högg að sækja í skólakerfinu á Íslandi og víðar
Meira
Við kynnumst sjóræningjaöndinni Kuta og litlu frændum hans, Vík, Vok og Vak. Þeir búa á eyjaklasa og lenda í ýmsum ævintýrum. Guffi vaknar á nóttunni sem Giffi, farsæll listamaður og sigurvegari í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur
Meira
Hér er samfélag fólks sem er mjög sjálfstætt og sem veigrar sér ekki við að leysa vandamál. Hér látið þið oft það nægja sem þið eigið og greiðasemi er mikil meðal fólks.
Meira
Homer er um fimm þúsund manna byggð á Kenaískaga í Alaska við Cook-flóa, um 200 kílómetra suðvestur af Anchorage, stærstu borg þessa víðfeðmasta ríkis Bandaríkjanna. Þar má finna litlu útgerðina Kaia Fisheries LLC sem hefur lagt áherslu á veiði á…
Meira
Þessi fyrsta nót er gerð fyrir sjókvíaeldi og er afrakstur samstarfs Nofir og fyrirtækjanna AKVA Group Egersund Net, Aquafil, Grieg Seafood og Hampiðjunnar. Saman hafa félögin þróað og framleitt nótina
Meira
Bandaríkin eru mesta innflutningsríki sjávarfangs á heimsvísu og er heildarverðmæti innfluttra sjávarafurða til Bandaríkjanna árlega á bilinu 25-28 milljarðar bandaríkjadala, jafnvirði um 3.500-3.700 milljarða íslenskra króna
Meira
Í meira en tvo áratugi hef ég haft áhuga á frekari vinnslu hér heima fyrir, skrifað greinar, hitt ráðherra og þingmenn og reynt að hafa áhrif á umræðuna. Yfirleitt hef ég talað fyrir daufum eyrum en blessunarlega er þetta loks að breytast
Meira
Mikil umræða hefur verið undanfarið um veiðigjöld, enda hefur ríkisstjórnin ákveðið að leggja til breytingar sem fela í sér umfangsmikla hækkun þeirra. Í því samhengi hefur ríkisstjórnin talað um „leiðréttingu“ og um að þjóðin eigi rétt…
Meira
Útfærsludagurinn er ekki ákveðinn, en ég geri mér vonir um, að sú ákvörðun verði tekin sem allra fyrst,“ sagði Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra í viðtali sem birt var í Morgunblaðinu 17
Meira
Eftir ítarlegt þróunar- og löggildingarferli í samvinnu við Arctic Fish í sláturhúsi fyrirtækisins í Bolungarvík hefur Matvælastofnun samþykkt sjálfvirka aðferð Aquabyte til að meta stöðu kynþroska í eldislaxi, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
Meira
Ég vil biðla til allra sem hafa hagsmuna að gæta að eiga gott samtal um þetta mál og hafa allar staðreyndir á hreinu áður en svona risastór ákvörðun er tekin.“ Þetta segir Tinna Gilbertsdóttir, formaður Kvenna í sjávarútvegi, þegar hún er…
Meira
Aldur togara heldur áfram að lækka en þeim hefur fækkað um tæpan fjórðung á undanförnum áratug. Á móti verða vélskip og opnir bátar sífellt eldri. Alls hefur fiskiskipum fækkað um 154 frá árinu 2014
Meira
Í skýrslu verkefnisins, Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur, sem birt var í ágúst 2023 segir: „Álagning veiðigjalda ætti að öðru óbreyttu að leiða til aukinnar hagræðingar, þar sem þau fyrirtæki sem ekki geta staðið undir gjaldinu…
Meira
Bæði Evrópusambandið og Taíland hafa sett sér það markmið að ljúka samningaviðræðum um fríverslunarsamning á þessu ári en síðast funduðu fulltrúar ríkjanna 31. mars og 1. apríl. Í tilefni af viðræðunum sendu Europêche frá sér yfirlýsingu þar…
Meira
Grásleppan freistar ekki lengur smábátasjómanna á Þórshöfn, aðeins einn stundar nú grásleppuveiðar frá Þórshöfn og lagði hann fyrstu netin um síðustu helgi. Það er Halldór Rúnar Stefánsson á Hólma ÞH-56 sem hefur stundað grásleppuveiðar samfleytt…
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.