Greinar laugardaginn 19. apríl 2025

Fréttir

19. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 109 orð | 1 mynd

57 létust í átökum í Darfur-héraði

Að minnsta kosti 57 almennir borgarar létust í átökum stjórnarhersins og RSF-uppreisnarhersins í Darfur-héraði í Súdan á fimmtudag. Íbúar í borginni El-Fasher, sem eiga ekki kost á að flýja, óttast blóðbað í borginni nú þegar átökin hafa færst nær Meira
19. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 100 orð | 1 mynd

80 drepnir í árás Bandaríkjahers

Uppreisnarhópur Húta segir að 80 að lágmarki hafi farist í árás Bandaríkjahers á olíuhöfnina Ras Issa í Jemen. Bandaríski herinn sagði að tilgangur árásarinnar á höfnina hefði verið að stöðva birgðaflutninga og fjármögnun til Húta, en Bandaríkjamenn skilgreina hópinn sem hryðjuverkasamtök Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 418 orð | 1 mynd

„Þjóðin öll upplifði hann sem vin sinn“

80 ár voru liðin frá fæðingu söngvarans Vilhjálms Vilhjálmssonar hinn 11. apríl og var tímamótanna minnst með tónleikum í Hörpu. „Þetta er ævintýri líkast,“ segir söngkonan kunna Þuríður Sigurðardóttir um tónleikana, en hún söng með Vilhjálmi á sínum tíma eins og margir landsmenn þekkja Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 433 orð | 1 mynd

Áform Veitna í Heiðmörk orka tvímælis

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Reykjavíkur og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, geldur varhug við áformum Veitna um að banna bílaumferð almennings um Heiðmörk. Hún segir að menn þurfi að staldra við og tryggja… Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 450 orð | 1 mynd

Á líka við um Vestmannaeyjar

Framkvæmdastjóri Óbyggðanefndar segir í samtali við Morgunblaðið að nefndin sé ekki að taka afstöðu til einstakra krafna þrátt fyrir að nefndin telji að ríkið eigi almennt ekki tilkall til þeirra eyja og skerja sem fyrir landi liggja og eru innan tveggja kílómetra fjarlægðar frá fastalandinu Meira
19. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 349 orð | 1 mynd

Bandaríkin að gefast upp á viðræðum

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkin myndu hætta viðleitni sinni í þágu vopnahlés á milli Úkraínu og Rússlands nema einhver framvinda yrði í viðræðunum á næstunni. „Ef af einhverjum ástæðum annar aðilinn gerir þetta mjög… Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 117 orð | 1 mynd

„Upp mitt hjarta og rómur með“

Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar með allri sinni orðgnótt og mikla boðskap voru lesnir víða í kirkjum landsins í gær, á föstudeginum langa. Hefð er fyrir lestri þessum í kirkjunni á Skólavörðuholtinu í Reykjavík, en fáir hafa lýst píslargöngu … Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 332 orð | 1 mynd

Eðlilegt að fólk verði óánægt eftir uppsögn

Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir að starfsánægja hjá fyrirtækinu hafi aukist síðustu ár. Enn fremur segir hann að starfsmenn sem hafi lagt fram kvartanir gagnvart stjórnendum hafi fengið viðeigandi og viðurkennda málsmeðferð Meira
19. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 79 orð

Endurheimtu lík 909 fallinna hermanna

Stjórnvöld í Kænugarði tóku í vikunni á móti líkum 909 hermanna sem fallið hafa að undanförnu í árásum Rússa á landið. Þetta er í annað skiptið á þremur vikum sem Úkraínumenn og Rússar skiptast á jarðneskum leifum hermanna Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 147 orð

Erfiður vetur og veikindi enn mikil

Mikið hefur blossað upp af veikindum á höfuðborgarsvæðinu í vetur. Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur á upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir fólk mega líta meira til þeirra hreinlætisaðgerða sem jukust á tímum kórónuveirufaraldursins Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 310 orð | 1 mynd

Flestir gleymt stöðunni fyrir kvótakerfið

Þegar kvótakerfið var innleitt á Íslandi snemma á níunda áratug síðustu aldar var það eins konar „silver bullet“ fyrir greinina, sem var afar illa stödd og gríðarlega skuldsett. Stefán Þórarinsson var einn af þeim sem sáu um að koma kerfinu í framkvæmd á sínum tíma Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 82 orð

Fréttaþjónusta mbl.is um páska

Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 22. apríl. Öflug fréttaþjónusta verður á mbl.is um páskana og hægt að senda ábendingar um fréttir á netfangið frettir@mbl.is. Þjónustuver Árvakurs er opið í dag, laugardag, frá kl Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 244 orð | 2 myndir

Hálf milljón gesta sækir staðinn á ári

Dulúð og hið yfirskilvitlega verða rauðir þræðir grunnsýningar í gestastofu Snæfellsjökulsþjóðgarðs sem verið er að þróa og hanna. Sýningin verður í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Hin gestastofa þjóðgarðsins er á Malarrifi og þar eru sjósókn og sögnum gerð skil Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 142 orð | 1 mynd

Hlýjasta aprílbyrjun aldarinnar

Fyrri hluti aprílmánaðar hefur verið mjög hlýr í Reykjavík þótt örlítið hafi slegið á hlýindin síðustu daga. Meðalhiti í borginni hefur verið 5,6 gráður, sem er 2,7 gráðum ofan meðallags sömu daga fyrir árið 1991 til 2020 og 2,6 gráðum ofan meðallags síðustu tíu ára Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 393 orð | 2 myndir

Hnoðri snýr aftur

Tónlistar- og fjölskylduhátíðin Hnoðri fer fram á Húsavík í dag, annað árið í röð. Fjölbreytt úrval tónlistarmanna kemur fram og lofar Einar Óli Ólafsson, stofnandi hátíðarinnar og tónlistarmaður, góðri skemmtun Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 1105 orð | 3 myndir

Höggin dynja á landsbyggðinni

Að ala upp börn úti á landi hefur ýmsa kosti og er á margan hátt einfaldara en á höfuðborgarsvæðinu. Það er eðlilegt að þau leiti sér menntunar utan heimahaganna þegar þau vaxa úr grasi en vonin er alltaf að þau snúi til baka Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 458 orð | 3 myndir

Íbúðir leyfðar við Austurvöll?

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið á ný til meðferðar umsókn um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti. Helsta breytingin er sú að leyfðar verði íbúðir á efri hæðum húsanna Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 208 orð | 1 mynd

Kaupa einingar í skólaþorpið

Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkur hefur samþykkt að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Terra eininga ehf., í EES-útboði um færanlegar kennslustofur fyrir skólaþorp í Laugardal. Tilboð í ofangreindu útboði voru opnuð 19 Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 594 orð | 4 myndir

Konurnar við stjórnvölinn hjá ÚA

„Okkur gengur vel að manna starfsemina. Þetta er eftirsóttur vinnustaður og slíkt er góð meðmæli,“ segir Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Þar er Sunneva framleiðslustjóri og við hlið hennar er Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 584 orð | 2 myndir

Kórlög flutt af einlægni og hlýju

Í hugum áhugafólks um kórsöng eru vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur eflaust einn vorboða hér við nyrsta haf. Vortónleikarnir verða haldnir 23., 24. og 26. apríl í Langholtskirkju og þétta liðsmenn kórsins nú raðirnar Meira
19. apríl 2025 | Fréttaskýringar | 337 orð | 6 myndir

Lekavandamál í sex ára gömlu húsi

Vegfarendur í Vogabyggð hafa veitt því athygli að verið er að gera við fjölbýlishús í nýju hverfi. Við nánari skoðun kemur í ljós að verið er að gera við hús í Kuggavogi en byggingarár þess er skráð 2019 Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 330 orð | 1 mynd

Ljósið vinnur alltaf gegn myrkrinu

Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, segir að fleiri hafi sótt helgihald hjá kirkjunni í þessari dymbilviku en á síðustu árum. Áberandi sé að ungt fólk sæki í auknum mæli helgihald. „Það er vor í kirkjunni og einhver góð vakning í gangi núna,“ segir Guðrún í samtali við Morgunblaðið Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 56 orð | 1 mynd

Meistarar Boston sigurstranglegir

Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í Bandaríkjunum hefst í dag. Boston Celtics er líklegt til að verja titilinn, þrátt fyrir að liðið hafi endað í öðru sæti í Austurdeildinni á eftir Cleveland Cavaliers Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 130 orð | 1 mynd

Mótmæla lokuninni

Fyrirhugað er að loka útibúi Landsbankans á Seyðisfirði og er því harðlega mótmælt þar í bæ. Heimastjórn Seyðisfjarðar, sem er hluti af stjórnsýslu Múlaþings, segir ólíðandi að banki í eigu hins opinbera leiti ekki allra leiða til að halda úti þjónustu á landinu öllu Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 109 orð | 1 mynd

Norðurgarðurinn endurbyggður

Endurbygging Norðurgarðsins á Norðurbakkasvæðinu í Hafnarfirði er hafin og er stefnt að því að ljúka múr- og steypuvinnu í vor. Í haust verður svo sett trédekk á yfirborð hans og garðurinn formlega kláraður Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Píslarbað við Gróttu

Veðurguðirnir léku sannarlega við gallhart sjósundsfólk í SJÓR, Sund- og sjóbaðsfélagi Reykjavíkur, sem byrjaði föstudaginn langa á því að skella sér í ískaldan sjóinn við Gróttu á Seltjarnarnesi. Kvölin og pínan felst í því að þar er enginn heitur pottur, enginn búningsklefi og engin sturta Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 303 orð | 2 myndir

Sumarsöngur í minningu Stefáns

Að kvöldi sumardagsins fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl næstkomandi, verða í menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði haldnir tónleikar til minningar um Stefán R. Gíslason, organista og kórstjóra. Í áratugi var Stefán driffjöður í margvíslegu tónlistarstarfi í Skagafirði eins og vel þekkt var á landsvísu Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Tóku við 147.000 tonnum í fyrra

Heildarmagn úrgangs sem Sorpa tók við á síðasta ári var minna en árið 2023. Alls tók Sorpa á móti 147 þúsund tonnum af úrgangi í fyrra en 156 þúsund tonnum árið 2023. Árið 2022 skiluðu 173 þúsund tonn af úrgangi sér Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 206 orð | 2 myndir

Trúarleg rit og ferðabækur áberandi á uppboði

„Uppboðið er ekki stórt í fjölda; 44 stykki. Bækurnar sem bjóðast nú eru hins vegar eftirsótt fágæti,“ segir Ari Gísli Bragason. Hann stendur að fornbókasölunni Bókinni, sem með Gallerí Fold stendur nú að netuppboði á bókum sem verða til sýnis í Gallerí Fold við Rauðarárstíg í Reykjavík eftir páska Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Tvö íslensk tónverk frumflutt á vortónleikum í Breiðholtskirkju

Vortónleikarnir Vaxtarverkir með Björgu Brjánsdóttur flautuleikara og Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur söngkonu verða haldnir í Breiðholtskirkju í dag á vegum tónleikasyrpunnar 15:15. Flutt verður tónlist fyrir flautu og rödd og frumflutt verða tvö… Meira
19. apríl 2025 | Fréttaskýringar | 583 orð | 2 myndir

Viðamikil skógrækt þarf í umhverfismat

Áform félagsins Heartwood Afforested Land ehf. um umfangsmikla skógrækt á jörðinni Villingavatni í Grímsnes- og Grafningshreppi við syðri enda Þingvallavatns fela í sér að gróðursett verði 2.000-2.500 tré á hvern hektara á því svæði sem nýta á til skógræktarinnar Meira
19. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 238 orð | 1 mynd

Þórunn Þórðardóttir bilaði við síldarmælingar

Bilun kom upp í öðrum rannsóknarleiðangri hafrannsóknaskipsins Þórunnar Þórðardóttur HF 300 þegar skipið var við síldarmælingar í Kolluál, vestan við Snæfellsnes. Skipið hafði þá nýlokið sínu fyrsta togararalli í lok mars Meira

Ritstjórnargreinar

19. apríl 2025 | Leiðarar | 670 orð

Sannleikur og fyrirgefning

Lærdómar páskaguðspjallsins Meira
19. apríl 2025 | Staksteinar | 176 orð | 2 myndir

Skattar og tungur tvær eða þrjár

Týr á Viðskiptablaðinu finnur að tungutaki Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra og félaga hans. Nefnir það „nýlensku“ líkt og hjá Stóra bróður í 1984 hans Orwells Meira

Menning

19. apríl 2025 | Menningarlíf | 1051 orð | 5 myndir

Að fást við eitthvað í sálardjúpinu

„Maður var alltaf öruggur, andrúmsloftið var þannig. Allir voru að tjá eitthvað persónulegt,“ segir Ágústa Oddsdóttir um upplifun sína af listþerapíu hjá Sigríði Björnsdóttur listþerapista en stutt er síðan Ágústa skrifaði bók um… Meira
19. apríl 2025 | Fjölmiðlar | 179 orð | 1 mynd

Að njóta þess að leika erkiþrjóta

Það er langt síðan ég hef séð leikara skemmta sér jafn vel við að leika erkiþrjóta og þau Pierce Brosnan, Helen Mirren og Tom Hardy gera í sjónvarpsþáttunum MobLand, sem nú er hægt að sjá í Sjónvarpi Símans Meira
19. apríl 2025 | Menningarlíf | 213 orð | 1 mynd

„Ómetanlegur menningararfur“

Í tilefni 75 ára afmælis Þjóðleikhússins verða allar leikskrár frá upphafi gerðar aðgengilegar á timarit.is og vef Þjóðleikhússins. „Leikskrárnar eru skannaðar inn og gerðar aðgengilegar á vefnum timarit.is Meira
19. apríl 2025 | Menningarlíf | 919 orð | 3 myndir

„Þetta er einstakt tækifæri“

„Þetta er einstakt tækifæri til að hlera það mest spennandi í leikritun framtíðarinnar,“ segir Matthías Tryggvi Haraldsson um leikritahátíð Þjóðleikhússins sem nefnist Guli dregillinn og haldin verður eftir viku Meira
19. apríl 2025 | Menningarlíf | 138 orð | 1 mynd

Færri verk sett á svið vegna niðurskurðar

Leikritum og söngleikjum, sem sett voru á svið á síðasta ári í helstu leikhúsum Bretlands sem njóta opinberra styrkja, fækkaði um tæpan þriðjung miðað við fyrir tíu árum. Árið 2024 voru 229 ný verk sett á svið samanborið við 332 árið 2014 Meira
19. apríl 2025 | Tónlist | 1563 orð | 6 myndir

Nokkur orð um óperudellu

Ég var tíu ára gamall þegar ég sá óperu á sviði í fyrsta sinn, það er að segja á köldu októberkvöldi árið 1985, en Þjóðleikhúsið hafði þá tekið Grímudansleik (Un ballo in maschera) eftir Giuseppe Verdi til sýningar Meira
19. apríl 2025 | Kvikmyndir | 1301 orð | 2 myndir

Spegill, spegill herm þú mér

Sambíóin og Smárabíó Mjallhvít / Snow White ★★½·· Leikstjórn: Marc Webb. Handrit: Erin Cressida Wilson, Jacob Grimm og Wilhelm Grimm. Aðalleikarar: Rachel Zegler, Gal Gadot, Andrew Barth Feldman, Andrew Burnap og Tituss Burgess. 2025. Bandaríkin. 109 mín. Meira
19. apríl 2025 | Menningarlíf | 97 orð | 1 mynd

Sýningaropnun í Úthverfu á Ísafirði

Sýningin A. Object verður opnuð í Gallerí Úthverfu á Ísafirði í dag kl. 16. Um er að ræða samsýningu tíu listamanna en sýningarstjóri er Joe Keys. Þeir sem eiga verk á sýningunni eru Linus Lohmann, Hekla Guðrúnardóttir Kollmar, Sigurður Atli… Meira
19. apríl 2025 | Menningarlíf | 57 orð | 1 mynd

Tilbrigði við þrjú korter af tungli

Ólöf Björg Björnsdóttir opnar sýninguna Þrjú korter af tungli í dag kl. 15 í 3 Veggjum Listrými, Himinbjörgum á Hellissandi. Í tilkynningu segir að Ólöf sé þekkt fyrir umbúðalaus og kraftmikil málverk sem eru á mörkum hins figúratíva og frjálsrar… Meira
19. apríl 2025 | Tónlist | 525 orð | 3 myndir

Vegur án enda …

Og söngrödd góða hefur hann. Löngunarfull rödd og innileg og tóni fögrum haldið. Meira
19. apríl 2025 | Menningarlíf | 140 orð | 1 mynd

Þula opnar annað rými á Hafnartorgi

Þula Hafnartorg, annað rými Þulu gallerís, verður opnað í dag við Bryggjugötu kl. 15. Um er að ræða vettvang sem sameinar sýningarrými og faglega ráðgjöf, segir í tilkynningu, en aðalrými Þulu er í Marshallhúsinu Meira

Umræðan

19. apríl 2025 | Aðsent efni | 753 orð | 3 myndir

Að teikna kirkjur í beinum línum og bogum

Hreyfing fylgjenda Jósefs áminnti arkitektinn um að ekkert í kirkjunni mætti vera tilraun til að gera meira og betra en verk Guðs. Meira
19. apríl 2025 | Pistlar | 553 orð | 4 myndir

Breyta þarf tilhögun Reykjavíkurskákmótsins

Við lok 38. Reykjavíkurskákmótsins sem lauk í Hörpu á þriðjudaginn hljóta stjórnarmenn SÍ að velta fyrir sér framtíð mótsins, sem var ekki eins vel skipað nú og oft áður. Framkvæmdin hefur fyrir löngu fundið ágætan farveg og þar er margt vel gert… Meira
19. apríl 2025 | Aðsent efni | 621 orð | 1 mynd

Fínt fyrir Norðmenn – afleitt fyrir Íslendinga

Það má fjölmargt læra af Norðmönnum en eitt af því er ekki hvernig skal hámarka verðmætasköpun úr takmarkaðri auðlind eins og fiskurinn í sjónum er. Meira
19. apríl 2025 | Aðsent efni | 283 orð | 1 mynd

Með eilíft sumar í hjarta

Kærleikans Guð vaki yfir okkur öllum, leiði og verndi með anda sínum og fyrirheitum, sköpunar- og upprisukrafti sínum og innblæstri. Lifi lífið! Meira
19. apríl 2025 | Pistlar | 468 orð | 2 myndir

Nokkrir punktar um páska

Í dag er 19. apríl, ekki „19. Apríl“, og það er laugardagur fyrir páska – ekki „Laugardagur“ fyrir „Páska“. Í gær var föstudagurinn langi, ekki „Föstudagurinn Langi“, og í fyrradag skírdagur en… Meira
19. apríl 2025 | Aðsent efni | 293 orð

Samtal í Hámu

Dr. Gabriel Stein, fjárfestir í Lundúnum, flutti erindi á málstofu Hagfræðistofnunar mánudaginn 7. apríl 2025. Að því loknu fengum við okkur kaffi í Hámu, matstofu Háskólans. Að borði okkar komu tvö kurteis ungmenni, piltur og stúlka, sögðust vera frá Noregi og vildu fá að setjast hjá okkur Meira
19. apríl 2025 | Aðsent efni | 392 orð | 1 mynd

Sterk gildi á óvissutímum

Um þessar mundir eru blikur á lofti – en líka tækifæri. Sjálfstæðisstefnan býður upp á leið fram á við. Meira
19. apríl 2025 | Pistlar | 861 orð | 1 mynd

Um páska

Þannig verða páskarnir ekki aðeins hátíð um það sem eitt sinn gerðist, heldur lifandi veruleiki sem gefur okkur styrk og kjark til að mæta hvers kyns aðstæðum í trausti til Guðs. Meira
19. apríl 2025 | Pistlar | 427 orð | 1 mynd

Uppgjöf eða alvöru markmið?

Michael Jordan er líklega einn þekktasti íþróttamaður sögunnar. Hann á að baki 15 keppnistímabil í NBA-körfuknattleiksdeildinni og sex meistaratitla. Utan vallarins hefur hann ekki síður átt mikilli velgengni að fagna Meira

Minningargreinar

19. apríl 2025 | Minningargreinar | 1557 orð | 1 mynd

Bjarney María Gústafsdóttir

Bjarney María Gústafsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 7. febrúar 1953. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á krabbameinsdeild Landspítalans 5. apríl 2025. María var einkabarn hjónanna Gústafs Sigurjónssonar, f Meira  Kaupa minningabók
19. apríl 2025 | Minningargreinar | 1812 orð | 1 mynd

Hafdís Björk Jóhannesdóttir

Hafdís Björk Jóhannesdóttir fæddist 27. september 1942. Hún lést 28. mars 2025. Útför Hafdísar Bjarkar fór fram 16. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
19. apríl 2025 | Minningargreinar | 1595 orð | 1 mynd

Kristjana Sigmundsdóttir

Kristjana Sigmundsdóttir fæddist 28. júlí 1956. Hún lést 29. mars 2025. Útför Kristjönu fór fram 15. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

19. apríl 2025 | Viðskiptafréttir | 527 orð | 2 myndir

Frá Íslandi til Taívan

Bandaríski tæknirisinn Google og sænska fjárfestingarfyrirtækið Baseload Capital hafa skrifað undir sögulegan orkusölusamning um nýtingu jarðhita í Taívan – fyrsta samning sinnar tegundar sem Google gerir í landinu Meira
19. apríl 2025 | Viðskiptafréttir | 238 orð | 1 mynd

Fundu 120 starfsmenn á mettíma

Stafræna markaðsstofan Ceedr hefur verið tilnefnd til Evrópsku leitarverðlaunanna (e. European Search Awards) fyrir verkefni sem fyrirtækið vann síðastliðið haust í samvinnu við auglýsingastofuna TBWA Copenhagen, fyrir nýtt sporvagnakerfi í Kaupmannahöfn Meira

Daglegt líf

19. apríl 2025 | Daglegt líf | 1287 orð | 2 myndir

Skítur er ekki sama og skítur

Margt fólk hefur einvörðungu komið í félagsheimili til að fara þar á sveitaböll og þeir hinir sömu halda að félagsheimilin hafi dáið eftir að slík böll voru aflögð, en hlutverk félagsheimila er margslungið Meira

Fastir þættir

19. apríl 2025 | Í dag | 58 orð

4006

Sjarmerandi sögn að trútínera: fjalla um, meta. Að sögn Orðsifjabókar er hún stakorð, en það er orð sem kemur aðeins einu sinni fyrir í heimildum. Í þessu tilfelli bréfi íslensks embættismanns á 19 Meira
19. apríl 2025 | Í dag | 305 orð

Af fyndni, lóðum og gátu

Bjarni Jónsson úrsmiður frá Gröf var hógvær í þessari vísu, sem hlýtur að teljast öfugmæli hjá þeim sem til hans þekktu: Ég er oftast ekkert fyndinn ætli ég mér að vera það þó í mig ekki vanti vindinn vitið er bara takmarkað Meira
19. apríl 2025 | Í dag | 725 orð | 4 myndir

„Hreyfing er mér lífsnauðsynleg“

Davíð Örn Ólafsson fæddist 19. apríl 1975 og ólst upp í Efra-Breiðholti. Hann gekk í Hólabrekkuskóla en segir að hverfið hafi verið skemmtilegur staður að alast upp á. „Það var stórkostlegt, þar sem þetta var frekar nýtt hverfi og fullt af… Meira
19. apríl 2025 | Í dag | 209 orð | 1 mynd

Katrín Svava Másdóttir

30 ára Katrín Svava fæddist í Reykjavík og ólst upp fyrstu tvö árin í Kópavogi en þá flutti fjölskyldan í Laugardalshverfið. Fjölskyldan flutti til Sviss þegar hún var níu ára gömul, þegar faðir hennar fór að vinna þar Meira
19. apríl 2025 | Í dag | 192 orð

Rautt eða svart V-AV

Norður ♠ ÁKD765 ♥ Á ♦ ÁD104 ♣ 82 Vestur ♠ 9 ♥ 86 ♦ G87532 ♣ Á763 Austur ♠ G832 ♥ K105 ♦ K96 ♣ K94 Suður ♠ 104 ♥ DG97432 ♦ – ♣ DG105 Suður spilar 4♥ Meira
19. apríl 2025 | Dagbók | 46 orð | 1 mynd

RÚV klukkan 22.35

Íslenskir spennuþættir byggðir á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Leikstjóri: Erlingur Thoroddsen. Með helstu hlutverk fara Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólof Halla Jóhannesdóttir, Elín Hall, Selma Björnsdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Halldóra… Meira
19. apríl 2025 | Í dag | 176 orð | 1 mynd

Skák

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 Ra5 9. Bc2 c5 10. d4 Dc7 11. d5 Rc4 12. b3 Rb6 13. a4 0-0 14. a5 Rbd7 15. Rbd2 Rh5 16. Rf1 g6 17. Bh6 Rg7 18. g4 Rf6 19. h3 Kh8 20 Meira
19. apríl 2025 | Árnað heilla | 166 orð | 1 mynd

Sveinn Skorri Höskuldsson

Sveinn Skorri Höskuldsson fæddist á Sigríðarstöðum í Hálshreppi í Suður-Þingeyjarsýslu 19. apríl 1930. Hann var elstur fimm barna hjónanna Sólveigar Bjarnadóttur og Höskuldar Einarssonar, bónda og hreppstjóra í Vatnshorni í Skorradalshreppi Meira
19. apríl 2025 | Dagbók | 78 orð | 1 mynd

Vinahópur fékk páskatösku K100

Það var líf og fjör í síðdegisþættinum Skemmtilegri leiðinni heim á K100 þegar spurt var hvað hlustendur hygðust gera um páskana. Þá hringdi inn vinahópur á leið á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði og sagðist hlakka mest til að sjá Írafár stíga á svið Meira

Íþróttir

19. apríl 2025 | Íþróttir | 503 orð | 2 myndir

Enn að átta mig á þessu

Eygló Fanndal Sturludóttir varð á fimmtudag fyrsti íslenski Evrópumeistarinn í ólympískum lyftingum er hún bar sigur úr býtum í -71 kg flokki á Evrópumótinu í Kisíná, höfuðborg Moldóvu. Eygló fékk gull í jafnhendingu er hún lyfti mest 135 kílóum og varð í öðru sæti í snörun með 109 kíló Meira
19. apríl 2025 | Íþróttir | 581 orð | 4 myndir

Miðjumaðurinn Thomas Partey missir af fyrri leik Arsenal gegn Paris SG í…

Miðjumaðurinn Thomas Partey missir af fyrri leik Arsenal gegn Paris SG í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu vegna leikbanns. Partey fékk gult spjald í seinni leik Arsenal gegn Real Madrid og fær því ekki að vera með í heimaleik Arsenal gegn PSG 29 Meira
19. apríl 2025 | Íþróttir | 205 orð | 1 mynd

Stjörnumenn sluppu með skrekkinn

Stjarnan var nokkrum sekúndum frá því að falla úr leik gegn Njarðvík úr 1. deildinni er liðin mættust í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta í gær. Njarðvík var með 3:2-forystu þegar ein mínúta var eftir af sjö mínútna uppbótartíma Meira
19. apríl 2025 | Íþróttir | 102 orð | 1 mynd

Valur og Fram byrja betur í undanúrslitum

Valur vann Aftureldingu á heimavelli, 35:33, í æsispennandi fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta á fimmtudag. Réðust úrslitin í framlengingu eftir mikinn hasar. Færeyingurinn Bjarni í Selvindi skoraði níu mörk fyrir Val Meira
19. apríl 2025 | Íþróttir | 1087 orð | 2 myndir

Ver Boston titilinn?

Deildakeppninni í NBA er nú loksins lokið og getur NBA-áhugafólk nú einbeitt sér að „viðskiptahlið“ keppnistímabilsins eins og þeir kalla það hér vestra. Umspilið svokallaða fór fram í vikunni, en úrslitakeppnin sjálf hefst í dag með leik Indiana og Milwaukee klukkan 17 Meira

Sunnudagsblað

19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 52 orð

9 til 13 Heiðar Austmann Róleg og notaleg byrjun á sunnudeginum með músík…

9 til 13 Heiðar Austmann Róleg og notaleg byrjun á sunnudeginum með músík og molum. 13 til 16 Brynjar Már Sunnudagarnir eru betri með Brynjari Má. Helgarstemning eins og hún gerist best Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 941 orð | 3 myndir

A & B frá A til Ö

Arnar og Bjarki eru gjörólíkar manneskjur og það kemur vel í ljós í þessum þáttum, bæði það sem fólk sér og sér ekki. Bjarki er meiri jörð meðan Arnar er í háloftunum,“ segir Gunnlaugur Jónsson, höfundur heimildarmyndaflokksins A&B sem… Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 713 orð

Erum við að missa vitið?

Ef önnur samfélög á Vesturlöndum eru á sömu leið og Bandaríkin er það því ekki aðeins áhyggjuefni fyrir útgefendur bóka og dagblaða, heldur er það tilvistarógn við frjálslynt lýðræðissamfélag. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 392 orð

Ég heiti Ásdís og ég er skjáfíkill

Það sló mig aðeins þegar tvítugur sonur minn sagði við mig um daginn að hann vildi óska að hann gæti prófað að lifa í tilveru án snjallsíma. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 111 orð | 1 mynd

Hlúð að loðnu skrímsli

Ævintýri The Legend of Ochi er ný ævintýramynd í anda slíkra mynda úr áttunni, svo sem The Neverending Story og The Dark Crystal, sem frumsýnd verður í lok mánaðarins austan hafs og vestan. Sögusviðið er afskekkt eyja í Austur-Evrópu, þar sem loðið skrímsli, Ochi, er á stjákli í skóginum Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 771 orð | 7 myndir

Hockney hylltur

„Jafnvel í fyrra hélt ég að ég yrði ekki hér,“ sagði hann. „En hér er ég enn.“ Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 1621 orð | 1 mynd

Hugmyndirnar streyma stöðugt fram

Það hefur alltaf skipt mig miklu máli að ferðast og koma fram. Ég hef verið duglegur við það gegnum tíðina og það er að ég held aðalástæðan fyrir því að lögin mín lifa. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 433 orð | 4 myndir

Hugsun um að ganga á fjall

Þegar sýningin er skoðuð í heild sést nokkuð vel að málverkin og grafíkverkin eru farin að minna hvert á annað. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 838 orð | 5 myndir

Hvað með að prófa annað en Tenerife og Spán?

Á hverju ári fara nokkur hundruð Íslendingar til Tenerife og austurstrandar Spánar í hjólaferðir. Oftast er farið annaðhvort að hausti, til að koma æfingavetrinum af stað, eða um vor, til að ná almennilegu æfingamagni inn eftir vetraræfingarnar og fyrir sumarmarkmiðin eða keppnirnar Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 169 orð | 1 mynd

Hvorki rauður né dauður

„Land eða álfa, sem ekki er lengur fær um að tryggja eigin varnir, verður fljótt og sjálfkrafa öðrum háð. Í stað slagorðanna „Betra er að vera rauður en dauður“, sem vesturþýska friðarhreyfingin hefur tileinkað sér, kýs ég fremur… Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 1726 orð | 4 myndir

Innhverf manneskja sem elskar fólk

Er ég mögulega siðblind? hugsaði ég um tíma af því ég fylgdi ekki uppskriftinni að sorgarferli syrgjenda. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 479 orð | 2 myndir

Í fótspor frægra jazzkvenna

Í svona lítilli senu sem djassinn er þá er ótrúlega mikilvægt að fá staðfestingu á því að það sem maður sé að gera hafi vægi. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 675 orð | 1 mynd

Kraftaverkið í trúnni

Það er frelsun að fylgja hugmyndafræði sem byggist á elsku og fyrirgefningu eins og kristinn kærleiksboðskapur gerir. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 63 orð | 1 mynd

Les Binks fallinn frá

Andlát Les Binks, sem var trommuleikari Judas Priest frá 1977-79, er látinn, 73 ára að aldri. Breska málmbandið greindi sjálft frá þessu í vikunni en ekki kom fram hvert banameinið var. Priest-liðar hrósuðu Binks að leiðarlokum fyrir vandaðan… Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 13 orð

Mikki, Mína og vinir þeirra eru á bóndabæ og sinna þar ýmsum…

Mikki, Mína og vinir þeirra eru á bóndabæ og sinna þar ýmsum störfum. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 78 orð | 1 mynd

Notar vafasamar aðferðir að vanda

Spenna „Þegar fyrrverandi yfirmaður Marybeth Medina er drepinn af óþekktum leigumorðingjum neyðist hún til að leita hjálpar hjá Christian Wolff. Með hjálp bróður síns, hins stórhættulega Brax, hefst hinn bráðsnjalli Chris handa við að leysa… Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 103 orð | 1 mynd

Ný bomba, nýtt lúkk og nýir tímar hjá Daða Frey

Eurovision-stjarnan Daði Freyr hefur sent frá sér lagið I Don’t Wanna Talk, sem er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu hans. Hann deildi laginu í vikunni og fylgdi því eftir með glænýju útliti sem hefur vakið mikla atygli Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 343 orð | 1 mynd

Óður til söngleikja

Hvaða söngleikjastælar eru þetta? Þetta er tónleikaröð sem við Sigga Eyrún höfum staðið fyrir í vetur á vegum Salarins í Kópavogi og er óður til söngleikjanna. Við tvö kynntumst í Jesus Christ Superstar árið 2007 og urðum bestu vinir og höfum unnið… Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 3761 orð | 1 mynd

Rétt mátulega djúpur

Ég hef verið að skemmta fólki kvölds og morgna og í hádeginu, á loðnuslútti, bankafundum, í rútum og í veislusölum. Ég hef skemmt drukknu fólki, edrú fólki, pirruðu fólki, makalausu fólki og fólki með mökum. Ég hef séð allt. Það eru oft öskur og læti. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 358 orð | 6 myndir

Skálduð og óskálduð gæðarit

Kápur Fitzcarraldo-bókaforlagsins eru einfaldar: engar myndir eru á kápum bókanna, allar kápur skáldverka eru bláar og allar kápur á óskálduðu hvítar. Í bókinni The Years eftir Annie Ernaux, sem heitir Les Années á frummálinu, og er ein sú besta sem … Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 657 orð | 1 mynd

Sókrates í Lágmúla

Hið sanna mannlíf á svæðinu er að finna norðvestur af dalnum, nánar tiltekið á bílastæðinu fyrir utan apótekið Lyfju í Lágmúla. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 101 orð

Tveir vinir hittast. „Á ég að segja þér Hafnfirðingabrandara?“ „Passaðu…

Tveir vinir hittast. „Á ég að segja þér Hafnfirðingabrandara?“ „Passaðu þig, ég er frá Hafnarfirði!“ „Ó, ekkert mál. Ég skal segja hann mjööög hægt!“ Sigga kemur inn á snyrtistofu. „Nú ætla ég að splæsa! Ég ætla að fá handsnyrtingu fyrir hægri… Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 138 orð | 2 myndir

Verður Liverpool meistari?

Liverpool verður Englandsmeistari í dag, páskadag, verði úrslit liðinu hagstæð. Bítlaborgarliðið hefur 13 stiga forskot á Arsenal þegar sex umferðir eru óleiknar en bæði lið verða í eldlínunni í dag Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 548 orð | 2 myndir

Vitur, skemmtileg og hæfileikarík

„Ég hef átt félaga sem ég íhugaði að giftast og íhuguðu að giftast mér. Vandamálið var að við fengum hugmyndina aldrei á sama tíma. Meira
19. apríl 2025 | Sunnudagsblað | 107 orð | 1 mynd

Þrass af gamla skólanum

Þrass Þrasssenan í San Francisco er sannarlega ekki dauð úr öllum æðum og á dögunum var kynnt nýtt band, Nefarious, sem samanstendur af gömlum brýnum af svæðinu. Söngvari er Katon W. De Pena úr Hirax, gítarleikarar Rick Hunolt úr Exodus og Doug… Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.