Greinar fimmtudaginn 24. apríl 2025

Fréttir

24. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 133 orð

Apple og Meta fengu háar sektir

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í gær að sambandið hefði sektað bandarísku tæknirisana Apple og Meta fyrir brot á löggjöf sambandsins um neytendavernd og samkeppni. Apple fékk sekt upp á 500 milljónir evra eða sem nemur um 72,45… Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 226 orð | 1 mynd

Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður

Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2025. Arngunnur Ýr er sögð hafa skapað sér gæfuríkan feril til áratuga. Verk hennar hafa vakið athygli og hún haldið einka- og samsýningar hér heima, í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 127 orð | 1 mynd

Borgin endurnýjar þrjá gervigrasvelli

Borgarráð hefur samþykkt að heimilað verði innkaupaferli vegna endurnýjunar og lagfæringa á þremur gervigrasvöllum. Kostnaðaráætlun er 300 milljónir króna fyrir vellina þrjá. Um er að ræða aðalvöll (keppnisvöll) á íþróttasvæði ÍR í Mjódd, aðalvöll… Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 709 orð | 2 myndir

Búseti krefst niðurrifs á gímaldinu

Búseti krefst þess að græna gímaldið svonefnda við Álfabakka 2a verði fjarlægt og jarðrask afmáð. Byggingarfulltrúinn í Reykjavík afturkalli byggingarleyfi fyrir allt mannvirkið og allar framkvæmdir verði stöðvaðar Meira
24. apríl 2025 | Fréttaskýringar | 970 orð | 3 myndir

Byggingargallar alvarlegt vandamál

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, segir mikilvægt að sporna gegn göllum í nýbyggingum. Tilefnið er umfjöllun Morgunblaðsins að undanförnu um mikla galla í nýbyggingu í Vogabyggð í Reykjavík en í kjölfar… Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Dóttirin sögð neita sök í málinu

Konan sem grunuð er um aðild að andláti föður síns á Arnarnesi fyrr í mánuðinum var úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Ríkisútvarpið greinir frá því að konan hafi neitað sök í málinu en lögreglan hefur ekki viljað staðfesta það Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 129 orð | 1 mynd

Eimreiðin boðar komu sumarsins

Hinn árlegi sumarboði er kominn á sinn stað á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík. Starfsmenn Faxaflóahafna sóttu eimreiðina Minør í geymslu í vikunni og komu henni fyrir á sínum stað. Það hafa þeir gert árlega nálægt sumardeginum fyrsta Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Gleðilegt sumar!

Landsmenn fagna sumardeginum fyrsta í dag, rétt nýbúnir að fagna páskum og borða á sig gat af lambi, súkkulaðieggjum og fleira góðgæti. Eftir slíkar veislur var því kærkomið að koma blóðinu á hreyfingu í vikunni eins og nokkrir gerðu við Garðskagavita þegar farið var að halla af degi Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 140 orð | 1 mynd

Faxi kominn heim fyrir Sæluviku Skagfirðinga

Sæluvika Skagfirðinga, hin árlega menningarhátíð, verður sett með athöfn í Safnahúsinu á Sauðárkróki næstkomandi sunnudag. Meðal atburða þann dag er afhjúpun á endurnýjaðri styttu af hestinum Faxa, sem stóð við Faxatorg allt frá 1971 til 2023, er sveitarfélagið ákvað að taka hana niður og endurnýja Meira
24. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 122 orð | 1 mynd

Fjölmenni við Péturskirkjuna

Líkkista Frans páfa var í gær flutt til Péturskirkjunnar, þar sem það verður til sýnis fram að útför páfans á laugardaginn. Yfirvöld í Rómaborg sögðu að um 20.000 manns hefðu lagt leið sína á Péturstorgið hið minnsta í gær til þess að votta páfanum virðingu sína Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 282 orð | 1 mynd

Gáfu 120 milljóna afmælisgjöf

Kvenfélagið Hringurinn afhenti Barnaspítala Hringsins veglega gjöf í gær, 120 milljónir króna, við hátíðlega athöfn í Hringsal spítalans. Dögg Hauksdóttir, forstöðumaður kvenna- og barnaþjónustu á Barnaspítala Hringsins, tók við gjöfinni en viðstödd athöfnina voru m.a Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 167 orð | 1 mynd

Gengur úr Sósíalistaflokknum

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sagt skilið við Sósíalistaflokkinn. Það gerir hún eftir orðasennu þeirra Maríu Pétursdóttur, fyrrverandi formanns málefnastjórnar flokksins, í Facebook-hópnum Rauða þræðinum Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 231 orð

Gímaldið verði rifið

Búseti hefur lagt fram 17 síðna kröfugerð þar sem fram kemur krafa um að græna gímaldið svonefnda við Álfabakka í Mjódd verði fjarlægt og jarðrask afmáð. Byggingarfulltrúinn í Reykjavík afturkalli byggingarleyfi fyrir allt mannvirkið og allar framkvæmdir verði stöðvaðar Meira
24. apríl 2025 | Fréttaskýringar | 909 orð | 2 myndir

Gæti þurft 28 þúsund tonna kvóta

Alls bárust um 900 umsóknir um strandveiðileyfi vegna veiða í sumar en umsóknarfrestur rann út á miðnætti 22. apríl, upplýsir Fiskistofa. Nákvæmur fjöldi liggur ekki fyrir þar sem einhverjar umsóknir bárust með tölvupósti og á eftir að fara yfir þær Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 204 orð | 1 mynd

Hafnað að ógilda framkvæmdaleyfi

Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Landsnet og Sveitarfélagið Voga af kröfu hóps landeigenda um að ógilt verði með dómi framkvæmdaleyfi vegna lagningar Suðurnesjalínu 2. Málið var upphaflega höfðað af Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands og… Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 434 orð | 2 myndir

Heiðmörk áfram útivistarparadís

„Við viljum takmarka bílaumferð um viðkvæmustu svæðin til þess að tryggja hreint neysluvatn sem eru einstök gæði á heimsvísu. Helsta ógnin við þetta hreina vatn er bílar á grannsvæði,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna… Meira
24. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 309 orð | 1 mynd

Heita hefndum fyrir árásina í Kasmír

Indverskar öryggissveitir leituðu í gær ákaft að byssumönnum sem réðust á ferðamenn í Kasmírhéraði í fyrradag og felldu þar 26 manns. Er þetta mannskæðasta árás á óbreytta borgara sem framin hefur verið í héraðinu í um aldarfjórðung Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 283 orð | 3 myndir

Héldu nyrstu páskahátíð í heimi

Á Þórshöfn býr tónlistarkennarinn Tristan Michael Willems og núna fyrir páskana ákvað hann að deila menningu sinni og hefðum með nokkrum vinum sínum og bauð þeim í einstaka hátíð, páskahátíðina Pesach eða passover Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 141 orð | 1 mynd

Héraðsprestur á Suðurlandi

Biskup Íslands auglýsti nýlega eftir héraðspresti í Suðurprófastsdæmi með sérstakri þjónustu við Fellsmúlaprestakall. Séra Gunnbjörg Óladóttir hefur nú verið ráðin í starfið. Hún er fædd í Reykjavík 26 Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 408 orð | 1 mynd

Íslenskur kór syngur metalmúsík í fyrsta sinn

Senn styttist í tíu ára afmælistónleika Rokkkórs Íslands með Eiríki Haukssyni í Hörpu. Tvennir tónleikar verða á morgun, föstudaginn 25. apríl, og er nær uppselt á þá hvora tveggja. Á efnisskrá verða meðal annars nokkur af vinsælustu lögum Eiríks og auk þess verður kórinn með sér efni Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Jónas Ingimundarson kvaddur

Útför Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær að viðstöddu margmenni og hafði séra Hjálmar Jónsson umsjón með athöfninni. Jónas fæddist 30. maí 1944 á Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum og stóð á áttræðu þegar hann lést 14 Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 701 orð | 1 mynd

Nýtt alzheimerlyf fær markaðsleyfi

Gefið hefur verið út markaðsleyfi fyrir alzheimerlyfið Leqembi í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, þar á meðal á Íslandi, en lyfið hægir á hrörnun heilastarfsemi á upphafsstigum sjúkdómsins. Hugsanlegt er að meðhöndlun með lyfinu hefjist hér á landi í vetur eða í byrjun næsta árs Meira
24. apríl 2025 | Fréttaskýringar | 602 orð | 3 myndir

Pattstaðan ekki rofin án stigmögnunar

Algjör pattstaða einkennir að mestu stríðið í Úkraínu og hefur gert lengi. Innrásarlið Rússlands hefur ekki þá getu og styrk sem þarf til að leggja Úkraínuher á vígvellinum. Á sama tíma hafa heimamenn ekki fengið þá aðstoð sem þarf frá Vesturlöndum til að brjóta niður sókn Rússa Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 143 orð | 1 mynd

Ríkisútvarpið hættir að senda út sjónvarpsfréttir klukkan 22

Ríkisútvarpið hættir að sjónvarpa fréttum klukkan 22 á kvöldin frá og með 2. júlí. Þá verða kvöldfréttirnar sýndar klukkan 20 í stað 19 en sú breyting tekur gildi 24. júlí. Frá þessu greinir Rúv. en breytingarnar voru kynntar starfsmönnum fréttastofunnar á fundi í gær Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 52 orð

Röng dagsetning

Í ViðskiptaMogganum í gær urðu þau leiðu mistök að rangt var farið með dagsetningu aðalfundar Landsvirkjunar í frétt á forsíðu. Fundurinn var haldinn 14. apríl en ekki 4. mars og því liðu um sjö vikur frá stjórnarfundi 21 Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 1140 orð | 3 myndir

Sameina krafta sína í að valdefla konur

Markmiðið er að hver og ein nái að vera besta útkoman af sjálfri sér og nái þessari útgeislun og ljóma. Báðar eiga þær erfitt ár að baki og vita hversu mikilvægt það er að huga að líkama og sál til að auka orku og útgeislun sína Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 75 orð | 1 mynd

Síðasta loftnetið tekið af þakinu

Guðlaugur J. Albertsson, fréttaritari Morgunblaðsins á Tálknafirði, náði mynd af því þegar síðasta sjónvarpsloftnet bæjarins var tekið niður. Eflaust hefur loftnetið staðið á þakinu árum saman án þess að þjóna þar nokkrum tilgangi enda langt síðan önnur og betri tækni leysti það af hólmi Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 538 orð | 1 mynd

Skýrt ákall um breytingar í borginni

Aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er enn eitt skýrt ákall borgaranna um breytingar í ráðhúsinu, en um leið áfellisdómur yfir hinum nýja meirihluta fimm flokka í Reykjavík. Þetta segir Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í… Meira
24. apríl 2025 | Fréttaskýringar | 622 orð | 3 myndir

Spaðarnir eru 70 metra langir

Starfsfólk Landsvirkjunar er að undirbúa viðamikla flutninga á vindmyllunum 28 sem munu mynda Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins. Þetta er mjög stórt verkefni þar sem margir þurfa að koma að, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 89 orð | 1 mynd

Tuttugu í haldi á Suðurnesjum

Tvær tán­ings­stúlk­ur sem hand­tekn­ar voru á Kefla­vík­ur­flug­velli í lok síðasta mánaðar fyr­ir stór­felld­an fíkni­efna­flutn­ing sitja enn í gæslu­v­arðhaldi en það renn­ur út 5. maí næst­kom­andi Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 922 orð | 1 mynd

Undirbúningur HM 31 er hafinn

Fyrir ári var greint frá því að Ísland yrði á meðal þeirra ríkja sem halda HM karla í handknattleik í janúar árið 2031 ásamt Danmörku og Noregi. Þótt enn séu tæp sex ár þar til keppnin fer fram er undirbúningurinn þegar hafinn að sögn Guðmundar B Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 60 orð | 1 mynd

Ungir einleikarar spila með Sinfó í Eldborg í Hörpu annað kvöld

Steinn Völundur Halldórsson básúnuleikari, Katrín Birna Sigurðardóttir sellóleikari og Bjargey Birgis­dóttir fiðluleikari stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands annað kvöld, föstudaginn 25. apríl, kl Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 488 orð | 1 mynd

Verðmæti nýrra Vatnsendalóða hleypur á milljörðum

Kópavogsbæ er skylt að skipuleggja nú þegar um 200 lóðir fyrir íbúðabyggð í landi Vatnsenda og jafnframt að ráðast í gatnagerð vegna þeirra, en enn er óljóst hvernig staðið verður að skipulagi vegna 100 lóða til viðbótar, en þar stendur seinkun á afléttingu vatnsverndar í vegi fyrir verkefninu Meira
24. apríl 2025 | Erlendar fréttir | 235 orð | 1 mynd

Viðræðunum slegið á frest

Utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Úkraínu hættu í gær við fyrirhugaðan fund með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Lundúnum, en þar átti að ræða friðartillögur Bandaríkjastjórnar í Úkraínustríðinu Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 192 orð | 3 myndir

Vignir Vatnar lagði heimsmeistarann Carlsen

Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák, gerði sér lítið fyrir í fyrrakvöld og vann ríkjandi heimsmeistara, Magnus Carlson, á sterku netskákmóti, Title Tuesday. Carlsen er fimmfaldur heimsmeistari en þetta var í fyrsta sinn sem Vignir tefldi gegn Norðmanninum sterka Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Víðavangshlaup ÍR-inga í dag

Hið árlega Víðavangshlaup ÍR fer fram í 110. skipti í miðborg Reykjavíkur í dag og hefst klukkan 12. Hlaupnir eru fimm kílómetrar, upphaf hlaups og endir eru í Vonarstræti og er m.a. hlaupið í kringum Tjörnina Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 123 orð | 3 myndir

Þrír fulltrúar fara í útför páfans

Fjöldi þjóðarleiðtoga mun sækja útför Frans páfa sem lagður verður til hinstu hvílu á laugardaginn næsta. Frá Íslandi verða minnst þrír fulltrúar stjórnvalda, þau Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og … Meira
24. apríl 2025 | Innlendar fréttir | 152 orð

Þurfa að finna mörg þúsund tonna kvóta

Fleiri strandveiðibátar sækjast eftir því að taka þátt í veiðum sumarsins en nokkru sinni fyrr. Um 900 talsins skiluðu umsókn áður en frestur rann út á miðnætti 22. apríl, en ríkisstjórnin hefur heitið því að tryggja öllum bátum 48 veiðidaga í sumar Meira

Ritstjórnargreinar

24. apríl 2025 | Staksteinar | 156 orð | 1 mynd

Peningar vaxa á trjám Reykvíkinga

Týr í Viðskiptablaðinu hnaut um stórfrétt á dögunum: „Fjárhag Reykjavíkurborgar er borgið. Gott betur en það. Komið hefur á daginn að verðmæti skóglendis í borgarlandinu nemur 576 milljörðum króna.“ Og lífið brosi við… Meira
24. apríl 2025 | Leiðarar | 666 orð

Öfugsnúin skilaboð

Hvað má fórna miklu fyrir „fjölbreytileikann“? Meira

Menning

24. apríl 2025 | Menningarlíf | 101 orð | 1 mynd

Andetag verður aðeins sýnd einu sinni

Leiksýningin Andetag verður sýnd í Tjarnarbíói mánudaginn 28. apríl klukkan 20. Segir í tilkynningu að um sé að ræða áhrifaríka og hugljúfa sýningu um þá eftirsjá sem við berum með okkur að loknu lífi Meira
24. apríl 2025 | Tónlist | 637 orð | 3 myndir

Beint frá hjartanu

Ekki bara besta lag Bryan Adams heldur besta lag allra tíma. Ég hágrét. Hefur ástin einhvern tíma verið orðuð jafn skýrt og fallega? Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 955 orð | 2 myndir

Ekki í þessu fyrir peninga og aura

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2025 voru veitt í Höfða í gær, síðasta vetrardag. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur afhenti verðlaunin sem veitt eru í þremur flokkum. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hlaut verðlaunin í flokki frumsaminna… Meira
24. apríl 2025 | Fólk í fréttum | 108 orð | 12 myndir

Flottustu hlutirnir fyrir vorið í verslunum núna

Algengt er að fólk fari í svokallaða vonhreingerningu á þessum tíma. Það þarf þó ekki mikið til að fríska upp á hlutina í kringum okkur. Eitthvert smotterí inn á heimilið eins og púðar eða keramik, ein sumarleg flík í fataskápinn eða bjartari litir í snyrtibudduna er feikinóg Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 154 orð | 1 mynd

Hammondhátíð Djúpavogs haldin í 17. sinn

Hammondhátíð Djúpavogs hefst í dag, fimmtudaginn 24. apríl, og stendur til sunnudagsins 27. apríl. Segir í tilkynningu að þetta sé í 17. sinn sem hátíðin er haldin og að í ár sé dagskráin einkar glæsileg Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 96 orð | 1 mynd

Hádegistónleikar í Fríkirkjunni við Tjörnina

Þau Ellert Blær Guðjónsson barítón og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari flytja ljóðaflokkinn Dichterliebe (Ástir skáldsins) eftir Robert Schumann við ljóð Heinrichs Heine í dag, fimmtudaginn 24. apríl, sumardaginn fyrsta, á tónleikum sem fram fara í Fríkirkjunni við Tjörnina Meira
24. apríl 2025 | Fjölmiðlar | 214 orð | 1 mynd

Hringdi inn á eigin sjónvarpsstöð

Stemningin í íslensku sjónvarpi er hvergi eins hátimbruð og á Samstöðinni en þar sitja ábúðarfullir menn við hringborð og brjóta stór og smá mál til mergjar að því er virðist allan sólarhringinn. Fullir af sjálfstrausti og uppsafnaðri visku Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 129 orð | 1 mynd

Ljósmyndasýning Önnu Maríu opnuð í dag

Ljósmyndasýning Önnu Maríu Bogadóttur, sem ber yfirskriftina Jarðsetning – óumflýjanlegt upphaf, verður opnuð í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 14 í Slökkvistöðinni Gufunesi Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 144 orð | 1 mynd

Nemendur setja upp Töfraflautu Mozarts

Nemendur í óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýna afrakstur starfsins í vetur í húsnæði Leikfélags Kópavogs að Funalind 2, annað kvöld, föstudaginn 24. apríl, sem og 25. apríl, kl. 19.30. Segir í tilkynningu að sýningin segi frá hópi af ungu… Meira
24. apríl 2025 | Fólk í fréttum | 874 orð | 10 myndir

Svona fagna Íslendingar sumrinu

Fáir dagar eru jafn rækilega tengdir íslenskri bjartsýni og sumardagurinn fyrsti. Hvort sem sólin skín glatt eða snjókoman minnir okkur á að við búum á norðurhjara veraldar leyfum við okkur að trúa því staðfastlega að sumarið sé komið – allavega samkvæmt dagatalinu Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 321 orð | 1 mynd

Vaðið í blóði

Sámal Joensen – Mikines var brautryðjandi færeyskra myndlistarmanna og hefur mikilvægi hans fyrir færeyska list verið líkt við hlutverk Jóhannesar S. Kjarvals hér á landi. Árið 1928 var hann fyrstur Færeyinga til að afla sér myndlistarmenntunar við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn Meira
24. apríl 2025 | Menningarlíf | 1584 orð | 2 myndir

Þarf enn að klípa mig í handlegginn

Þessari stóru millistétt hættir til að gleyma að það er fólk þarna úti sem hefur það ekki jafn gott. Meira

Umræðan

24. apríl 2025 | Aðsent efni | 682 orð | 1 mynd

Að breyta reglum og markmiðum í miðjum leik

Þeir sem staðsetja sig og fjölskyldu í hverfi borgarinnar hafa mátt þola að borgaryfirvöld ráðist inn á friðhelgi fjölskyldulífs. Meira
24. apríl 2025 | Aðsent efni | 831 orð | 1 mynd

Endaspretturinn fram undan

Endasprettur útrýmingar riðuveiki með nýtingu ARR-breytileikans er að hefjast. Meira
24. apríl 2025 | Pistlar | 412 orð | 1 mynd

Er ég staddur í leikskóla eða háskóla?

Frá því að ég fékk þann heiður að taka sæti á Alþingi okkar Íslendinga hef ég nánst frá fyrsta degi fengið spurninguna: „Hvernig er svo að vera þingmaður?“ Til að byrja með átti ég erfitt með að svara spurningunni Meira
24. apríl 2025 | Aðsent efni | 627 orð | 2 myndir

Kaldur veruleiki: 30,5% umframdauðsföll 2022

Umframdauðsföll, skortur á gagnsæi, aukaverkanir og ólögleg notkun Process 2 krefjast tafarlausrar óháðrar rannsóknar. Meira
24. apríl 2025 | Aðsent efni | 618 orð | 1 mynd

Kínverska heimsveldið

Kannski erum við loksins tilbúin að læra af takti heimsvelda – ekki til að drottna, heldur til að vinna saman. Meira
24. apríl 2025 | Aðsent efni | 565 orð | 1 mynd

Klemmudagar eru klúður

Í staðinn fyrir þrjá staka frídaga fengjum við sumarkomuhelgi, verkalýðshelgi og uppstigningarhelgi. Meira
24. apríl 2025 | Aðsent efni | 702 orð | 1 mynd

Meira um frelsið til að vera maður sjálfur

Dómurinn í Bretlandi miðast við ákvörðun kyns við fæðingu. Þannig eru karlar sem fæðast með ytri einkenni kvenna konur samkvæmt dómnum. Það orkar ekki síður tvímælis. Meira
24. apríl 2025 | Aðsent efni | 766 orð | 1 mynd

Þjóðareign, trúarbrögð og skattar

„Þjóðareign“ á fiskimiðum er pólitísk yfirlýsing, ekki eignarhald. Fiskistofnar eru auðlind sem ríkið hefur rétt til að stjórna. Meira

Minningargreinar

24. apríl 2025 | Minningargreinar | 534 orð | 1 mynd

Guðmundur Óskar Hermannsson

Guðmundur Óskar Hermannsson fæddist 25. maí 1950. Hann lést 16. mars 2025. Útför Guðmundar fór 1. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 394 orð | 1 mynd

Gunnar Már Torfason

Gunnar Már Torfason fæddist 26. júní 1924. Hann lést 5. apríl 2025. Útför Gunnars Más fór fram 15. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 773 orð | 1 mynd

Hafsteinn Bjargmundsson

Hafsteinn Bjargmundsson fæddist í Reykjavík 3. mars 1924. Hann lést á Landakotsspítala 15. janúar 2025. Móðir Hafsteins var Herdís Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 1886, d. 1970, ættuð frá Fossseli, Reykdælahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 545 orð | 1 mynd

Halldór Brynjar Ragnarsson

Halldór Brynjar Ragnarsson fæddist 18. maí 1937. Hann lést 28. febrúar 2025. Útför hans fór fram 14. mars 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 655 orð | 1 mynd

Hallgrímur Einarsson

Hallgrímur Einarsson fæddist á Urðum í Svarfaðardal 18. apríl 1951. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 8. apríl 2025. Foreldrar hans voru Einar Hallgrímsson, bóndi á Urðum, f. 23. maí 1921, d. 26. ágúst 2016, og Guðlaug Anna Guðnadóttir, húsfreyja á Urðum, f Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 537 orð | 1 mynd

Hjörleifur Haukur Guðmundsson

Hjörleifur Haukur Guðmundsson fæddist 22. janúar 1960. Hann lést 11. mars 2025. Útför Hauks fór fram 28. mars 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 6062 orð | 1 mynd

Jónas Ingimundarson

Jónas Ingimundarson fæddist 30. maí 1944. Hann lést 14. apríl 2025. Útför Jónasar fór fram 23. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 556 orð | 1 mynd

Kristján Gunnarsson

Kristján Gunnarsson fæddist 25. apríl 1948. Hann lést 24. mars 2025. Útför hans fór fram 8. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 407 orð | 1 mynd

Ómar Breiðfjörð

Ómar Breiðfjörð fæddist í Reykjavík 28. maí 1942 og ólst þar upp. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi 30. mars 2025. Foreldrar hans voru Amalía Karolína Jónsdóttir og John Harvey Lapsley Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 206 orð | 1 mynd

Sif Bjarnadóttir

Sif Bjarnadóttir fæddist 2. febrúar 1958. Hún lést 12. mars 2025. Útför Sifjar fór fram 4. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 515 orð | 1 mynd

Steinfríður Ólafsdóttir

Steinfríður Ólafsdóttir fæddist 27. júlí 1931. Hún lést 20. mars 2025. Útför hennar fór fram 4. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
24. apríl 2025 | Minningargreinar | 279 orð | 1 mynd

Steinþóra Ingimarsdóttir

Steinþóra Ingimarsdóttir fæddist 30. október 1937. Hún lést 30. mars 2025. Útför fór fram 8. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

24. apríl 2025 | Sjávarútvegur | 508 orð | 4 myndir

Allt fullt af grásleppu en minni kvóti

„Það er algjör snilld að róa á grásleppu í þessu veðri,“ segir Arnþór Hermannsson, skipstjóri á Sæþóri EA 101, en hann fór nýverið með bróður sínum Heimi og Þorgeiri Baldurssyni, ljósmyndara og sjómanni, á veiðar í einmuna blíðu Meira

Viðskipti

24. apríl 2025 | Viðskiptafréttir | 274 orð | 1 mynd

Kveður við nýjan tón í tollamálum

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið í skyn að mögulegur viðsnúningur sé fram undan í tollastríði Bandaríkjanna við Kína. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu á þriðjudag virtist Donald Trump staðfesta að háir tollar á kínverskar vörur myndu lækka … Meira
24. apríl 2025 | Viðskiptafréttir | 299 orð | 1 mynd

Lífeyrissjóðir selt mikið af hlutabréfum

Greiningarfyrirtækið Akkur – Greining og ráðgjöf tók saman breytingar á hluthafalistum. Þar kom meðal annars fram að Gildi lífeyrissjóður hafi selt fyrir um 1 milljarð króna í Eik, Heimum og Reitum í mars og keypt fyrir um 500 milljónir í Kviku Meira
24. apríl 2025 | Viðskiptafréttir | 489 orð | 1 mynd

Sala drifin áfram af rafbílum og bílaleigum

Eftir verulegan samdrátt í nýskráningum bíla árið 2024 virðist íslenski bílamarkaðurinn loks vera að rétta úr kútnum. Nýjustu tölur frá Bílgreinasambandinu og Samgöngustofu sýna að 2.272 nýir fólksbílar voru nýskráðir á fyrsta fjórðungi ársins 2025, … Meira

Daglegt líf

24. apríl 2025 | Daglegt líf | 1227 orð | 3 myndir

Takk íslensku kindur fyrir ullina góðu

Ég kann því mjög vel að vera með afurð af íslenskri sauðkind inni í minni sæng til að halda á mér hita yfir nóttina. Ég hljóp til um leið og ég heyrði að íslenskar ullarsængur væru fáanlegar, því íslenska ullin er stórkostlegt fyrirbæri, með þel og… Meira

Fastir þættir

24. apríl 2025 | Í dag | 49 orð

4009

Spurt var hvernig sögnin að hamstra væri til komin. Jú, ættingjar hins góðkunna gæludýrs hamsturs nota sumartímann til að safna sér vetrarforða. Sögnin er svo leidd af heiti dýrsins og merkir skv Meira
24. apríl 2025 | Í dag | 264 orð

Af Saka, prestum og pope

Fróðlegt er að lesa um vináttu prestanna og skáldbræðranna Guðmundar Erlendssonar í Felli og Hallgríms Péturssonar. Þórunn Sigurðardóttir gerir hana að umtalsefni í bók sinni Kurteisleg kvæði og dýrlegar diktanir sem kom út í fyrra Meira
24. apríl 2025 | Í dag | 1000 orð | 3 myndir

Áhugamálin mörg gegnum tíðina

Sævar Þór Sigurgeirsson fæddist 24. apríl 1945 á Skeggjastöðum í Miðfirði, V-Hún. Hann ólst þar upp, við hefðbundin sveitastörf á sumrin, til 19 ára aldurs, er fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Sævar stundaði nám við Héraðsskólann á Reykjum í… Meira
24. apríl 2025 | Í dag | 290 orð | 1 mynd

Elíza María Geirsdóttir Newman

50 ára Elíza er fædd og uppalin í Keflavík en búsett í Reykjavík í dag. Hún gekk í grunnskóla í Keflavík og er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún er með burtfararpróf frá Söngskóla Reykjavíkur og stundaði framhaldsnám í söng í London hjá Sigríði Ellu Magnúsdóttur Meira
24. apríl 2025 | Dagbók | 89 orð | 1 mynd

Festist í kviksandi og fann ástina

Bandarísku vinirnir Mitchell O'Brien og Breanne Sika höfðu þekkst í tvö ár þegar þau fóru að velta fyrir sér hvort vináttan gæti orðið að meiru og ákváðu að ganga meðfram ströndinni. Þar steig Mitchell á blett sem reyndist kviksandur og sökk upp að mitti Meira
24. apríl 2025 | Dagbók | 31 orð | 1 mynd

Hækkandi sól Hildar Björnsdóttur

Það hefur verið stormasamt í Ráðhúsi Reykjavíkur, en á hinn bóginn hefur sumrað skjótt hjá sjálfstæðismönnum undir forystu Hildar Björnsdóttur. Andrés Magnússon ræðir við hana um verkefnin og kosningar að ári. Meira
24. apríl 2025 | Í dag | 153 orð | 1 mynd

Skák

1. c4 c5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 e6 6. g3 Db6 7. Rb3 Re5 8. e4 Bb4 9. De2 Bxc3+ 10. bxc3 d6 11. f4 Rc6 12. Ba3 e5 13. Bxd6 Bg4 14. Dd3 a5 15. c5 Da7 Staðan kom upp á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Hörpu en mótið var haldið í boði Kviku eignastýringar og Brims Meira
24. apríl 2025 | Í dag | 189 orð

Útspilið réð úrslitum A-NS

Norður ♠ G10862 ♥ 76 ♦ DG5 ♣ Á74 Vestur ♠ Á9 ♥ D10984 ♦ 108432 ♣ G Austur ♠ KD743 ♥ – ♦ Á96 ♣ K9865 Suður ♠ 5 ♥ ÁKG532 ♦ K7 ♣ D1032 Suður spilar 2♥ dobluð Meira

Íþróttir

24. apríl 2025 | Íþróttir | 217 orð | 1 mynd

Áslaug var best í annarri umferð

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, varnarmaður Víkings, var besti leikmaðurinn í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Áslaug gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu þegar Víkingar unnu stórsigur á Stjörnunni, 6:2, í Garðabæ í fyrrakvöld Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 213 orð | 1 mynd

„Ef áfram er unnið vel með henni með góðri umgjörð næstu árin sé ég…

„Ef áfram er unnið vel með henni með góðri umgjörð næstu árin sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hún fari alla leið og vinni gullið á stóra sviðinu.“ Þetta sagði Vésteinn Hafsteinsson afreksstjóri ÍSÍ þegar hann ræddi við RÚV síðasta… Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Eva úr leik en Ellie í staðinn

Knattspyrnukonan Eva Rut Ásþórsdóttir mun missa af öllu tímabilinu með Þór/KA en hún sleit krossband í hné í fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni gegn Víkingi á dögunum. Eva kom til Akureyrar frá Fylki í vetur en hún var fyrirliði Árbæjarliðsins Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 124 orð | 1 mynd

Eygló heiðruð vegna Evrópumeistaratitilsins

Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir var í gær heiðruð fyrir afrek sitt í síðustu viku þegar hún varð Evrópumeistari kvenna í -71 kg flokki í ólympískum lyftingum. Hún varð þar með fyrst allra Íslendinga Evrópumeistari í fullorðinsflokki í þessari íþrótt Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 68 orð | 1 mynd

Fjórtán íslensk mörk í fyrri leik

Fjórir íslenskir landsliðsmenn í handknattleik létu allir að sér kveða í stórleik Magdeburg og Veszprém í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Þetta var fyrri viðureign liðanna og endaði með jafntefli, 26:26, eftir Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 160 orð | 1 mynd

Handknattleiksdómararnir Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson fá stórt…

Handknattleiksdómararnir Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson fá stórt verkefni í kvöld þegar þeir dæma fyrri leik Pick Szeged frá Ungverjalandi og Barcelona frá Spáni í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 942 orð | 2 myndir

Hef upplifað allt með KR

„Þetta tók nokkur ár,“ sagði Perla Jóhannsdóttir, leikmaður KR í körfubolta, í samtali við Morgunblaðið. KR tryggði sér sæti í efstu deild á mánudagskvöld, eftir fjögurra ára fjarveru, er liðið sigraði Hamar/Þór, 72:63, á útivelli í… Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 75 orð | 1 mynd

Hulda vann með yfirburðum

Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG, Íslandsmeistari kvenna í golfi, sigraði í fyrrakvöld á úrslitamóti Summit League sem þá lauk í Arizona í Bandaríkjunum. Hulda vann þetta sama mót fyrir ári og náði því að verja titilinn Meira
24. apríl 2025 | Íþróttir | 75 orð | 1 mynd

Lakers jafnaði á heimavelli

Slóveninn Luka Doncic átti drjúgan þátt í sigri Los Angeles Lakers á Minnesota Timberwolves í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í fyrrinótt. Lakers vann, 94:85, og jafnaði metin í einvíginu í 1:1. Doncic skoraði 31 stig, tók 12 fráköst og átti níu stoðsendingar fyrir Lakers Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.