Víðavangshlaup ÍR 2025 var ræst í Vonarstræti í gær og var hlaupið um miðbæinn í góðu veðri. Þetta er 110. víðavangshlaup ÍR. Góð þátttaka var og tóku 719 manns þátt í 5 km hlaupinu og einnig voru 130 skráðir í skemmtiskokkið sem er 2,5 km
Meira
Andri Rafn Yeoman úr Breiðabliki varð í fyrrakvöld fimmti leikmaðurinn frá upphafi til að spila 300 leiki í efstu deild karla í fótbolta hér á landi og aðeins annar til að ná 300 leikjum í deildinni fyrir sama félagið, á eftir Daníel Laxdal
Meira
Hitnað hefur í kolunum á milli Indlands og Pakistans síðustu daga eftir hryðjuverk í Kasmírhéraði fyrr í vikunni þar sem 26 ferðamenn létu lífið. Indversk stjórnvöld saka þau pakistönsku um að hafa staðið að árásinni og óttast er að árásin muni…
Meira
Alls 930 börn úr 18 íþróttafélögum eru skráð til leiks í Andrésar-Andar leikunum á skíðum sem nú standa yfir í Hlíðarfjalli við Akureyri. Aðstæður í fjallinu þykja með ágætum, en þangað hefur snjór verið fluttur svo leikarnir geti farið fram með eðlilegum hætti
Meira
Forsetar nemendafélaga í framhaldsskólum eru ósáttir við frumvarp um breytingar á lögum um framhaldsskóla sem myndi gera félögunum skylt að hlýða skólastjórnendum í einu og öllu. Þeir lýsa áhyggjum af „barnavæðingu“ menntaskólans
Meira
„Það eru þrjátíu ár frá snjóflóðunum í Súðavík í janúar 1995 og Flateyri í október sama ár,“ segir Finnur Þór Vilhjálmsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðanna á Súðavík. Málþingið Ofanflóð 2025 verður haldið á Ísafirði dagana 5.-6
Meira
Það var hart barist í Skákkeppni stofnana og fyrirtækja sem haldin var síðasta miðvikudagskvöld hjá Taflfélagi Reykjavíkur í Faxafeni. Mótið var sjö umferðir og teflt samkvæmt svissneska Monrad-kerfinu með tímamörkunum 5+3, þ.e
Meira
Auglýsingastofan Pipar\TBWA hlaut á dögunum Lúðurinn, verðlaun ÍMARKS, samtaka auglýsinga- og markaðsfólks, fyrir herferðina Ekki taka skjáhættuna, m.a. í flokki almannatengsla. Herferðin var unnin í samstarfi við tryggingafélagið Sjóvá og Samgöngustofu
Meira
Skeifudagurinn fór fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í gær, sumardaginn fyrsta. Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir vann Morgunblaðsskeifuna þetta árið og sópaði auk þess að sér fjölda annarra verðlauna
Meira
Viðbragðsaðilar á Gasaströndinni segja Ísraelsher hafa drepið minnst 55 í loftárás í gær. Herinn hefur hótað enn umfangsmeiri árás verði gíslunum, sem numdir voru á brott í október 2023, ekki sleppt úr haldi Hamas-hryðjuverkasamtakanna í bráð
Meira
Heyra mátti sprengingar víða í Kænugarði er rússneskum flugskeytum rigndi yfir úkraínsku höfuðborgina aðfaranótt fimmtudags. Tólf fórust og hátt í hundrað særðust í árásinni sem er sögð sú umfangsmesta í marga mánuði
Meira
Þótt fjöldi fólks hafi flust búferlum frá Grindavík vegna náttúruhamfara þá eru kylfingar í Golfklúbbi Grindavíkur í góðri sveiflu að því er virðist. Þar eru félagar í kringum 300 talsins eftir að farið var í átak til að halda félögum og fá gamla til baka
Meira
Kennari, skrifstofumaður, veiðimenn og trukkabílstjóri. Þetta er bakgrunnur þeirra góðu félaga sem skipa karlakórinn Saqqarsik frá Qaqortoq á Suður-Grænlandi sem nú er á Íslandi. Þeir hafa víða komið fram síðustu daga; voru í Hallgrímskirkju á síðasta degi vetrar og í gær meðal annars í Skálholti
Meira
Gríðarlegur uppgangur helsingjastofnsins á Suðausturlandi er farinn að ógna afkomu bænda. Svo rammt kveður að fjölgun gæsategundarinnar að stórsér á afurðum bænda og samkeppni um beit í úthaga og á túnum er orðin slík að í sumum tilvikum þarf að…
Meira
Herskip bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) hófu að koma til hafnar í Reykjavík í gærmorgun. Ástæða komunnar er kafbátaeftirlitsæfingin Dynamic Mongoose sem hefst eftir helgi og er haldin á vegum Atlantshafsbandalagsins
Meira
Síaukin og há útgjöld til grunnskólakerfisins hafa ekki leitt til þess að námsárangur íslenskra grunnskóla barna fari batnandi. Nauðsynlegt er að innleiða reglulega og samræmda mælikvarða á árangur til að hægt sé að byggja upp skilvirkt og gott menntakerfi
Meira
Sýning myndlistarkonunnar Lindu Berkley, gestalistamanns Gilfélagsins í aprílmánuði, verður opnuð í Deiglunni á Akureyri á morgun, laugardaginn 26. apríl, klukkan 14 en Berkley er frá norðvesturströnd Kyrrahafsins
Meira
Breskir og franskir hermenn æfa nú saman í frönsku Sissonne-herbúðunum, en þær eru skammt norðan við borgina Reims í norðausturhluta Frakklands. Munu heræfingarnar standa yfir í tvær vikur. Herirnir tveir hafa m.a
Meira
Nýjar niðurstöður úr könnunum á vegum embættis landlæknis sýna að þrír af hverjum fjórum fullorðnum ná opinberum ráðleggingum um hreyfingu. Ákveðnir hópar, einkum þeir sem búa við skertar fjárhagslegar aðstæður, eigi þó erfiðara með að koma hreyfingu inn í daglegt líf
Meira
„Þetta er hér úti um öll tún.“ Þannig bregst Bjarni Haukur Bjarnason, bóndi á Kálfafelli í Suðursveit, við fyrirspurn blaðamanns þegar slegið er á þráðinn austur og spurt um stöðu helsingjans á svæðinu
Meira
Menntskælingar lýsa áhyggjum af stjórnarfrumvarpi menntamálaráðherrra um breytingar á framhaldsskólalögum. Þar er m.a. kveðið á um að nemendum beri „að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í öllu því sem skólann varðar, þar á meðal í starfi á vegum nemendafélaga framhaldsskóla“
Meira
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Slipptöku Driftar EA fyrir árið 2025, en þar fá frumkvöðlar aðgang að fjórum vinnustofum til þróa hugmynd sína áfram, dagana 11.-26. júní nk. á Akureyri. Þá kynna frumkvöðlar hugmyndir sínar og nokkur verkefni…
Meira
Fyrsta skóflustungan að nýrri viðbót við Tennishöllina í Kópavogi, sem mun hafa sex padelvelli, var tekin í hádeginu í gær. Padelíþróttin er ört vaxandi um allan heim og árið 2019 voru tveir padelvellir opnaðir í Tennishöllinni, en nú er svo komið…
Meira
Sumarið er formlega gengið í garð eftir langan og dimman vetur og fengu íbúar höfuðborgarsvæðisins glampandi sól í tilefni dagsins. Landsmenn um land allt gerðu sér glaðan dag og skelltu sér margir út og nutu veðurblíðunnar, þá sjaldan sem það er í boði
Meira
Tólf fórust í einni umfangsmestu loftárás Rússa á Kænugarð í tæpt ár. Tugir til viðbótar eru særðir. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa m.a. annars hafa beitt flugskeyti frá Norður-Kóreu í árásunum
Meira
Nýr eigandi Faktorshússins á Flateyri hyggst flytja húsið úr sjávarplássinu og finna því nýjan stað annars staðar á landinu, annaðhvort á Vestfjörðum eða utan þeirra, þar sem það verður gert upp. Hann hefur mikla trú á húsinu, sem er sögufrægt en komið til ára sinna
Meira
Sveitarsjóður Ölfuss var eftir síðasta ár gerður upp með nærri 1.677 millj. króna afgangi. A-hlutinn, það er hinn almenni rekstur sveitarfélagsins, var í plús sem nemur 1.267 millj. kr. og hefur þeim fjármunum, að því er segir í skýringum með…
Meira
Samtök iðnaðarins fjalla á vef sínum um nýja skýrslu Alþjóðabankans sem byggist á könnunum sem bankinn leggur fyrir stjórnendur fyrirtækja í 160 löndum, þar með talið hér á landi. Í skýrslunni er ýmislegt fróðlegt, til að mynda að…
Meira
Ríkisútvarpið tilkynnti þegnum sínum í vikunni að í sumar færu kvöldfréttir sjónvarps aftur á sinn gamla tíma kl. 20.00. Þá yrðu tíufréttir aflagðar. Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv. segir þetta viðbrögð við breyttu neyslumynstri, en dagar …
Meira
Fyrir stuttu kom út greinasafnið Fléttur VII sem hefur að geyma greinar um hinsegin Ísland í erlendu samhengi. Meðal greina í ritinu er grein eftir Rósu Maríu Hjörvar sem ber heitið „Minni Elíseusar: Hinsegin þræðir í Gróðri jarðar, Sjálfstæðu …
Meira
Listamaðurinn Jón Thor Gíslason opnaði sýningu sína í gær, á sumardaginn fyrsta, í Gallerí Fold. Segir í tilkynningu að á sýningunni sýni hann bæði málverk og teikningar en sýningin, sem er í forsal Gallerís Foldar, stendur yfir til 10
Meira
Sýning Sigurborgar Stefánsdóttur, Krákustígar, stendur nú yfir í Grafíklistasalnum. Segir í tilkynningu að þessi sýning á málverkum hennar endurspegli þá krákustíga sem myndlistin geti farið um, því oft sé leiðin að endanlegu verki snúin
Meira
Skáldsaga Þegar við hættum að skilja heiminn ★★★·· Eftir Benjamín Labatut. Sigrún Ástríður Eiríksdóttir þýddi. Benedikt bókaútgáfa, 2024. Kilja, 228 bls.
Meira
Það liggur í hlutarins eðli að viðhorf okkar og þekking breytist með tímanum. Það sem þótti sjálfsagt og viðtekið fyrir nokkrum áratugum getur verið fullkomlega úrelt í dag. Sem betur fer hafa viðhorf samfélagsins til þeirra sem þjást af fíknisjúkdómnum breyst mikið
Meira
Nemendur á unglingastigi velji sér verknám í lok 8. bekkjar og námið stjórnist af þeirri verknámsgrein sem þeir velja. Það er einstaklingsmiðað nám.
Meira
Það er nýjast að samskiptin út yfir pollinn til Bandaríkjanna eru hlaupin í harða kekki og þá bregður svo við að birtast taka greinar og athugasemdir í Evrópupressunni þar sem þessir gömlu samherjar okkar eru sýndir í öðru ljósi en áður og áhersla…
Meira
Arnar Gestsson fæddist 26. janúar 1966 í Vopnafirði. Hann lést á sjúkrahúsinu í Kolding, Danmörku, 10. apríl 2025. Foreldrar hans eru Inga Hanna Kjartansdóttir, f. 17. maí 1948, og Gestur Björnsson, f
MeiraKaupa minningabók
Björn Sigmundur Bjarnason fæddist í Hólakoti á Höfðaströnd 30. nóvember 1937. Hann lést á sjúkrahúsi Akureyrar 11. apríl 2025. Foreldrar Björns voru Anna Margrét Guðbrandsdóttir, f. 13.9. 1908, d. 11.4
MeiraKaupa minningabók
Diðrik Vilhjálmsson fæddist í Hamborg í Þýskalandi 22. júlí 1927. Hann lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi 5. apríl 2025. Foreldrar hans voru Hans Borchmann, f. 15. janúar 1897, d
MeiraKaupa minningabók
Halldór Guðmundsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1961. Hann lést á líknardeild Landspítalans 15. apríl 2025. Foreldrar hans voru Guðmundur Eyjólfsson læknir, f. 8. september 1916, d. 23. júní 1983, og Guðríður Mýrdal Sigurjónsdóttir, f
MeiraKaupa minningabók
Magnús Friðriksson fæddist á Hálsi í Svarfaðardal 31. janúar árið 1947. Hann lést á Tenerife 20. mars 2025. Magnús var sonur hjónanna Guðrúnar Jónínu Þorsteinsdóttur, f. 4.12. 1917, d. 5.1. 2018, og Friðriks Magnússonar, f
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Vestfjörð Sigurðsson fæddist á sjúkrahúsinu á Ísafirði 17. janúar 1945. Hann lést í sjúkraflutningabíl á leið sinni á líknardeildina 16. apríl 2025. Foreldrar hans voru Matthildur Valdís Elíasdóttir, f
MeiraKaupa minningabók
Sesselja Guðrún Kristinsdóttir fæddist í Reykjavík 10. febrúar 1935. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala 9. apríl 2025. Foreldrar hennar voru Kristinn Ágúst Eiríksson járnsmiður, f. 19.8. 1908, d
MeiraKaupa minningabók
25. apríl 2025
| Minningargrein á mbl.is
| 832 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Sigríður Svanhildur Sörensen fæddist 29. ágúst 1951 á Ísafirði. Hún lést 11. apríl 2025. Foreldrar Svanhildar eru Erling Sörensen, f. 24.9. 1929, d. 19.2. 2020, og Arnfríður Hermannsdóttir, f. 3.3. 1930
MeiraKaupa minningabók
Símon Georg Rafnsson fæddist 30. júní árið 1947 á heimili foreldra sinna í Austurkoti á Vatnsleysuströnd. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 5. apríl 2025. Foreldrar hans voru Rafn Símonarson og Valgerður Guðmundsdóttir
MeiraKaupa minningabók
Í nýrri mánaðarskýrslu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kemur fram að sölutími nýrra íbúða sé mun lengri en hjá eldri íbúðum. Kári S. Friðriksson, hagfræðingur í Arion greiningu, segir að verðmiðinn á nýjum íbúðum þyrfti að lækka til að laða að fleiri kaupendur
Meira
Að renna blint í sjóinn (með eða um e-ð): að gera e-ð í óvissu, er frá því fyrir tíma fiskileitartækja en enn í fullu gildi. „Því miður lét ég ekki kanna fylgi mitt til forsetaframboðs heldur renndi blint í sjóinn með það.“ Áríðandi að…
Meira
Magnús Halldórsson hafði gaman af þýðingu á frétt Reuters, þar sem Pietro Parolin var sagður mögulegur „málamyndakandídat“ í embætti páfa. Hann yrkir: Við hann ýmsir vonir binda, varla mun að neinu leyti klikka, ef hann verður málamynda, milliliður Guðs og kaþólikka
Meira
Atlaga stjórnar Donalds Trumps að æðstu menntastofnunum í Bandaríkjunum er óvænt en kemur þó ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti. Bæði Trump og JD Vance varaforseti hafa áður gagnrýnt elítu-háskóla í Bandaríkjunum
Meira
Bandaríkjamaðurinn og kúrekinn Bob Sr. átti eina hinstu ósk: að fara síðasta reiðtúrinn á uppáhaldshestinum sínum. Eftir andlát hans var öskunni komið fyrir í hnakknum og hesturinn látinn þeysa áfram um víðáttuna – eins og í gömlum vestrum
Meira
40 ára Pálmi er Reykvíkingur, ólst upp í Vesturbænum en býr í Norðlingaholti. Hann er tónlistarmaður og matreiðslumaður að mennt og starfar sem trúbador. Hann er frímúrari og áhugamálin eru tónlist, matargerð, útivist og akstursíþróttir
Meira
Reykjavík Diyar Zarsanj fæddist 14. júlí 2024 í Reykjavík. Hann vó 3.188 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Ehsan Zarsanj og Roya Gholamnejad.
Meira
Margrét Hrafnsdóttir fæddist 25. apríl 1975 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún gekk í Austurbæjarskóla, flutti ásamt foreldrum sínum til Óslóar níu ára og þaðan til Kaupmannahafnar 11 ára. „Þar gekk ég í alþjóðlegan skóla sem mótaði mig mikið
Meira
Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR og Arnar Pétursson úr Breiðabliki urðu í gær Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi en þá var Víðavangshlaup ÍR haldið í 110. skipti í miðborg Reykjavíkur. Andrea kom fyrst kvenna í mark í hlaupinu en hjá körlum varð fyrstur Jan Halberstat frá Tékklandi
Meira
Andri Már Rúnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, átti stórleik með Leipzig í Þýskalandi í gær. Hann skoraði níu mörk og átti þrjár stoðsendingar en Leipzig tapaði naumlega fyrir Rhein-Neckar Löwen á útivelli, 35:34
Meira
KA varð í fyrrakvöld Íslandsmeistari karla í blaki með því að sigra Þrótt úr Reykjavík, 3:1, í þriðja úrslitaleik liðanna á Akureyri og vann þar með einvígið 3:0. Hrinurnar enduðu 26:24, 25:22, 18:25 og 26:24
Meira
Einstökum þrettán ára ferli Jamies Vardys með enska knattspyrnuliðinu Leicester lýkur í vor. Vardy kom 25 ára gamall til félagsins árið 2012 eftir að hafa eingöngu spilað í ensku utandeildinni. Hann var lykilmaður þegar Leicester varð enskur…
Meira
FH-ingar sneru blaðinu heldur betur við í einvíginu við Fram í undanúrslitunum um Íslandsmeistaratitil karla í handknattleik með því að vinna stórsigur í þriðja leik liðanna í Kaplakrika í gærkvöld, 36:20
Meira
Selfyssingar náðu í gær forystu í einvíginu við Gróttu um sæti í úrvalsdeild karla í handbolta með því að vinna góðan sigur á Seltjarnarnesi í þriðja leik liðanna, 37:35. Staðan er því 2:1, Selfyssingum í hag, og þeir fá nú tækifæri til að tryggja…
Meira
Stjarnan stendur afar vel að vígi í undanúrslitunum um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik eftir sigur á Grindvíkingum, 100:99, í gríðarlega spennandi leik á heimavelli Grindavíkurliðsins í Smáranum í Kópavogi í gærkvöld
Meira
Áður en Íslandsmótið í fótbolta hófst spáðu flestallir því að Afturelding, ÍBV og Vestri yrðu sér á báti í Bestu deild karla og fallbaráttan stæði á milli þeirra þriggja. Það gæti vel gengið eftir, aðeins þrjár umferðir eru búnar af 27, en nú er…
Meira
Tryggvi Snær Hlinason varð í fyrrakvöld Evrópubikarmeistari með Bilbao frá Spáni. Lið hans tapaði 84:82 fyrir PAOK í seinni úrslitaleik liðanna í Grikklandi en það nægði Bilbao sem hafði unnið heimaleikinn 72:65 og vann því með fimm stigum samanlagt
Meira
Það vita ekki allir að Hellisheiðarvirkjun er stærsta jarðvarmavirkjun í Evrópu og að jarðhitinn er í raun lykillinn að lífsgæðum íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Meira
Mikilvægast er að almenningur viti að ef orkuna í kerfinu okkar þrýtur hefur það neikvæðar afleiðingar fyrir hag almennings og fyrirtækja. Þess vegna verður að taka skynsamlegar ákvarðanir tímanlega til að tryggja raforkuöryggi.
Meira
Við hefðum því viljað vera komin lengra í uppbyggingu raforkukerfisins á tuttugu ára afmæli Landsnets en okkur hefur tekist, en þemað á afmælisárinu okkar er að við ætlum að horfa til framtíðar og fara í vitundarvakningu um hvað þarf að gera til að mæta framtíðinni sem við viljum sjá.
Meira
Við menntum fólk sem getur tekið þátt í að leysa stórar áskoranir framtíðarinnar. Þau eru tilbúin til að verða leiðandi á sínu sviði og leggja sitt af mörkum til að nýta orku á sjálfbæran hátt.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.