Greinar föstudaginn 16. maí 2025

Fréttir

16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 336 orð | 1 mynd

„Fordæmalaus eftirspurn“

Útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka lauk klukkan 17.00 í gær. Fjármála- og efnahagsráðuneytið greindi frá því rétt fyrir lokun að ákveðið hefði verið að selja allan eignarhlut ríkisins í bankanum með því að virkja heimild til magnaukningar í ljósi … Meira
16. maí 2025 | Erlendar fréttir | 91 orð

Aftaka 62 ára morðingja í Flórída-ríki

Glen Rogers, betur þekktur sem „landshornamorðinginn“, var tekinn af lífi í gær með þar til gerðum sprautum í Raiford-fangelsi í Flórída-ríki í suðurhluta Bandaríkjanna. Glen Rogers hlaut dauðarefsingu fyrir morð á Tinu Marie Cribbs í nóvember 1995 Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 487 orð | 4 myndir

Afþakkaði embætti á Austurlandi

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra bauð Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóra á Suðurnesjum, að taka við embætti lögreglustjórans á Austurlandi án þess að þurfa að sækja um það formlega, gegn því að hann hætti í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 98 orð | 1 mynd

Atriðið skemmtilegt

„Ég horfði allavega á íslenska atriðið,“ segir Eyþór Arnalds. Hann segist þó ekki hafa horft á alla undanúrslitakeppnina á þriðjudaginn. Aðspurður sagði hann VÆB-bræður hafa staðið sig með prýði Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 125 orð | 1 mynd

Áttaði sig ekki á þrýstingnum

„Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir stöðu fangelsismála, að staðan væri svona slæm. Það hefur verið talað um innviðaskuld sem vissulega er til staðar en það er afar mikill þrýstingur á kerfinu hvað varðar pláss,“ segir Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri til eins árs Meira
16. maí 2025 | Erlendar fréttir | 107 orð | 1 mynd

Barnaklám fannst í síma klerks

Ítalskur prestur, sem lögreglan grunar um að hafa haft barnaklám í fórum sínum, er í stofufangelsi. Lögreglan fann um 1.500 ljósmyndir og myndbönd af barnaklámi í síma hans. Klerkurinn þjónaði sem sóknarprestur í bænum Castelcovati, vestur af Brescia Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 157 orð | 1 mynd

„Eurovision er bara stuð“

„Já, ég horfi á Eurovision, það kemur fyrir,“ segir Magnús Ottó Friðriksson og brosir er blaðamaður ber upp spurninguna. Hann segist ekki alltaf spenntur fyrir Eurovision, en í ár ætlar hann að fylgjast vel með keppninni Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Diljá Ámundadóttir tekur sæti á Alþingi

Diljá Ámundadóttir Zoega tók sæti á Alþingi á miðvikudag, en hún er varamaður Jóns Gnarrs fyrir Viðreisn. Þingseta hefur ekki áhrif á setu Diljár í stjórn Ríkisútvarpsins ohf., þrátt fyrir að lög kveði á um að kjörnir fulltrúar til Alþingis og sveitarstjórna megi ekki sitja þar Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 345 orð | 1 mynd

Ein á vaktinni og kemst ekki yfir allt

„Þegar ég sá fram á að Flokkur fólksins færi í ríkisstjórn þá setti ég mig í samband við Ingu, við ræddum saman í þrígang og í framhaldi af því sendi ég henni umsókn,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálparinnar Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Framarar leiða gegn Valsmönnum

Reynir Þór Stefánsson var allt í öllu hjá Fram þegar liðið hafði betur gegn Val, 37:33, í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handbolta á Hlíðarenda í gær. Framarar leiða því 1:0 í einvíginu en næsti leikur liðanna fer fram í Framhúsi í Úlfarsárdal á mánudaginn kemur, 19 Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 100 orð | 1 mynd

Gleðin ein ríkjandi

Stefanía Reynis hefur fylgst með Eurovision í gegnum tíðina. Hún tengir viðburðinn við ákveðna árstíðarbundna stemningu. Eurovision sé merki um að vorið sé komið og því fylgir tilhlökkun og eitthvað sem brýtur upp hversdagsleikann Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 755 orð | 1 mynd

Grafarvogsbúar gefast ekki upp

Mikill hiti var í um 400 Grafarvogsbúum sem mættu á samstöðufund gegn áformum borgaryfirvalda um að þétta byggð í Grafarvogi með uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á „smærri vannýttum svæðum“ innan hverfisins Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 70 orð | 1 mynd

Grænt svæði í skjóli og skugga gímaldsins

Íbúar í Árskógum 5-7 leita leiða til að bæta umhverfið við heimili sín og hafa látið helluleggja hluta lóðarinnar og sett upp útihúsgögn. Einn íbúi hússins segir í samali við blaðið að hann finni fyrir því að baráttan við græna gímaldið sé farin að… Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 279 orð | 2 myndir

Hálendisleiðir verða senn færar

Vænta má að fjallvegir á sunnanverðu landinu verði á þessu vori opnaðir nokkru fyrr en oft áður. Vegagerðin er nú búin að láta ryðja leiðir í Þjórsárdal, það er að Stöng og Háafossi, sem er við hálendisbrúnina Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 289 orð | 1 mynd

Hjalti Kristgeirsson

Hjalti Kristgeirsson lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 11. maí síðastliðinn, 91 árs að aldri. Hjalti fæddist 12. ágúst 1933 í Mið-Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi og var 13. í röð 15 systkina og átti sex alsystkini; Herborg Jónsdóttir, móðir hans,… Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 240 orð

Hópmálsókn verði ekki hlustað

Íbúar í Grafarvogi hyggjast skoða möguleikann á hópmálsókn eða íbúakosningu hlusti borgaryfirvöld ekki á mótmæli þeirra gegn þéttingaráformum í hverfinu. Í Skipulagsgátt Reykjavíkur má nú finna breytingartillögu við deiliskipulag borgarinnar til… Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 151 orð | 1 mynd

Icelandair bætir við áætlun til Edinborgar og Malaga

Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbúl og Miami. Vegna mikillar eftirspurnar hefur flugáætlun til Nashville… Meira
16. maí 2025 | Fréttaskýringar | 667 orð | 2 myndir

Ísland í efsta sæti á lífskjaralista SÞ

Ísland skipar efsta sæti á nýjum lífskjaralista sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna birtir árlega og byggir á lífslíkum íbúa, lengd skólagöngu og vergum þjóðartekjum á mann. Ísland var 3. sæti á listanum á síðasta ári en hefur nú skotið Noregi og Sviss, sem þá voru í efstu sætunum, aftur fyrir sig Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 489 orð | 2 myndir

Lifnar yfir Austurlandi að Glettingi

Hljómsveitin Austurland að Glettingi frá Egilsstöðum hefur heldur betur lifnað við eftir að hafa verið með á tónleikunum Austfirðingagiggi, sem Guðmundur Rafnkell Gíslason, söngvari í SúEllen, stóð fyrir í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir rúmu ári Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Lífskjör best á Íslandi að mati SÞ

Ísland skipar efsta sæti á nýjum lífskjaralista sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna birtir árlega og byggir á lífslíkum íbúa, lengd skólagöngu og vergum þjóðartekjum á mann. Fram kemur í skýrslu Þróunaráætlunarinnar að lífskjaravísitala Íslands,… Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 336 orð | 1 mynd

Matarverð hækkar stöðugt

Samkvæmt mælingum Verðlagseftirlits ASÍ varð 0,6% hækkun á dagvöru milli mars og apríl. Þriðja mánuðinn í röð er hækkunin meiri en hálft prósent, sem er meðalhækkun á matvöru undanfarið ár. Það lítur þó út fyrir að hækkanirnar séu að dragast saman Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 77 orð | 1 mynd

Nefndarfundi hnikað

Eftir nokkurt stapp var fundi í atvinnuveganefnd Alþingis nú í morgun frestað ögn, svo nefndarmenn ættu færi á því að sækja morgunfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga með KPMG á Nordica, þar sem greining á áhrifum frumvarps um hækkun veiðigjalda á sjávarbyggðir verður kynnt Meira
16. maí 2025 | Fréttaskýringar | 772 orð | 3 myndir

Óljóst hvað yfirstjórnin vissi

Gagnalekamálið svonefnda hefur lítið skýrst undanfarna daga, en þrátt fyrir að ýmis gögn hafi komið upp á yfirborðið eru fæst þeirra til þess fallin að varpa skýru ljósi á heildarmyndina eða skera úr um nákvæmlega hvernig málin voru vaxin Meira
16. maí 2025 | Erlendar fréttir | 310 orð | 1 mynd

Sendinefndirnar ræða saman í dag

Gert er ráð fyrir því að embættismenn frá Úkraínu, Rússlandi og Tyrklandi eigi formlegan fund í Istanbúl í Tyrklandi í dag um hugsanlegt vopnahlé í Úkraínu. Til stóð að fyrsti fundur sendinefnda Úkraínu og Rússlands yrði í gær en óvissa ríkti fram eftir degi um hvort af þessum viðræðum yrði Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Skrítin en skemmtileg

Una Friðriksdóttir ætlar að horfa á Eurovision í ár og finnst keppnin alltaf hafa ákveðinn sjarma. Hún segir orðið „skemmtilegt“ kjarna viðburðinn í heild sinni. Ár eftir ár sé eitthvað við Eurovision-keppnina sem nái henni og alltaf séu einhver skrítin og skondin atriði Meira
16. maí 2025 | Erlendar fréttir | 107 orð | 1 mynd

Stalín snýr aftur í Moskvu

Eftirlíking lágmyndar af sovéska einræðisherranum Jósef Stalín hefur verið sett upp í Taganskaja-lestarstöðinni í Moskvu. Myndin sýnir einræðisherrann í hermannabúningi, umkringdan börnum og verkamönnum sem horfa á hann og teygja sig í áttina að honum Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 42 orð

Styrkir til flokkanna

Þau mistök urðu í Morgunblaðinu í gær, fimmtudag, að Miðflokkurinn var undanskilinn í upptalningu á ríkisstyrkjum til stjórnmálaflokka í ár. Í þokkabót var styrkur Miðflokksins færður inn sem styrkur Framsóknarflokksins Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 88 orð | 1 mynd

Ukulellur spila á Árbæjarsafni

Í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks verður boðið til tónleika með gleðisveitinni Ukulellum á morgun, laugardag, kl. 15 í Landakoti á Árbæjarsafni. „Ukulellur eru skemmtileg og dásamlega djörf hljómsveit samansett af nokkrum miðaldra hinsegin konum Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 211 orð

Vinnuvikan skreppur saman

Vinnuvikan á Íslandi hefur styst umtalsvert á síðustu árum og er nú að jafnaði svipuð og meðalvinnuvika í löndum Evrópusambandsins samkvæmt tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Á síðasta ári var vinnuvikan á Íslandi að meðaltali 36,3… Meira
16. maí 2025 | Innlendar fréttir | 120 orð | 1 mynd

Væntir þess ekki að fundur skili friði

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna er ekki bjartsýnn á að viðræður milli Rússlands og Úkraínu skili miklum árangri í átt til friðar í Úkraínu. Í gærkvöldi stóð enn til að viðræður milli samningamanna ríkjanna tveggja færu fram í Istanbúl í Tyrklandi í dag Meira

Ritstjórnargreinar

16. maí 2025 | Leiðarar | 416 orð

Fjáraustrinum haldið áfram

Fossvogsbrúin þolir ekki að beðið sé eftir úttekt á yfirgengilegri framúrkeyrslu Meira
16. maí 2025 | Staksteinar | 198 orð | 2 myndir

Kostnaðurinn af stjórnleysinu

Guðni Ágústsson skrifar athyglisverða grein um ástandið á landamærunum og afleiðingar þess hér í blaðið í gær. Hann vitnar í viðtal við Ragnar Árnason hagfræðing þar sem fram hafi komið að opnu íslensku landamærin kosti þjóðina 100 milljarða króna á ári Meira
16. maí 2025 | Leiðarar | 289 orð

Stutt er í vonda niðurstöðu

Ofureflið sigrar Meira

Menning

16. maí 2025 | Menningarlíf | 133 orð | 1 mynd

Alþjóðlega safnadeginum fagnað

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim sunnudaginn 18. maí, en deginum hefur verið fagnað frá árinu 1977. „Þetta er sá dagur ársins þar sem samtakamáttur safna nær hámarki og söfn vekja athygli á starfi sínu, mikilvægi og framlagi til samfélagsins Meira
16. maí 2025 | Menningarlíf | 155 orð | 1 mynd

Carmina Burana flutt í Hörpu í kvöld

„Eitt vinælasta og stórbrotnasta tónverk tónbókmenntanna Carmina Burana eftir Carl Orff verður flutt í Norðurljósum Hörpu föstudaginn 16. maí kl. 20,“ segir í viðburðarkynningu á tónleikum kvöldsins Meira
16. maí 2025 | Menningarlíf | 1007 orð | 2 myndir

Hvatvís og óhefluð um sextugt

„Ég er enn þá að klípa mig í handlegginn,“ segir Sigríður Pétursdóttir sem bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir, með nóvellunni Hefnd Diddu Morthens. Sigríður, sem er kvikmyndafræðingur að mennt og vann lengst… Meira
16. maí 2025 | Fjölmiðlar | 181 orð | 1 mynd

Íslenskan: 100% reisíó í fænalið

„Íslenskan er með 100% reisíó að komast í fænalið,“ sagði sigurreifur Stóri-VÆB, Hálfdán Helgi Matthíasson, í einkasamtali við Gunnar Birgisson, fréttamann Ríkisútvarpsins, eftir að atriðið sem hann á aðild að hafði komist í sjálf úrslit Júróvisjón-keppninnar í Basel á þriðjudagskvöldið Meira
16. maí 2025 | Menningarlíf | 913 orð | 2 myndir

Óumræðilega stolt af þessu verkefni

„Sannarlega er ljúft að fá Eyrarrós, eftir öll þessi ár, það er dásamlegt og mikil viðurkenning. Ég er óumræðilega stolt af þessu verkefni okkar,“ segir Una B. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sköpunarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði… Meira

Umræðan

16. maí 2025 | Aðsent efni | 551 orð | 1 mynd

Einföldum íþrótta- og æskulýðsstarf

Skipulag íþótta- og æskulýðsmála í okkar litla landi er óþarflega flókið af sögulegum ástæðum og nú er lag að taka stór skref til einföldunar. Meira
16. maí 2025 | Aðsent efni | 564 orð | 1 mynd

Heyrn er ekki munaður – hún er þátttaka

Fólk á ekki að þurfa að velja á milli grunnþarfa og þess að geta tekið þátt í samtali við barnabörn sín. Meira
16. maí 2025 | Pistlar | 408 orð | 1 mynd

Samspil hlutanna

Ísland býr yfir dýrmætum náttúruauðlindum. Flest erum við sammála um að nýting sameiginlegra auðlinda skuli vera í þágu okkar allra. Sömuleiðis erum við flest sammála um að þjóðin eigi að njóta réttláts hluta af þeim arði sem skapast af nýtingu auðlinda Meira
16. maí 2025 | Aðsent efni | 971 orð | 1 mynd

Um frelsið

Sennilega er það veikleikamerki að reyna að telja vantrúuðum hughvarf. Verkalýðsleiðtogar með takmarkað umboð fara sínu fram. Meira

Minningargreinar

16. maí 2025 | Minningargreinar | 1190 orð | 1 mynd

Ásgeir Sölvi Sölvason

Ásgeir Sölvi Sölvason, Geiri Sölva eins og hann var alltaf kallaður, skipstjóri fæddist í Hnífsdal 25. september 1930. Hann lést á Vífilsstöðum 8. maí 2025. Foreldrar hans voru Fanney Annasdóttir úr Reykjavík, f Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 1416 orð | 1 mynd

Drífa Hrönn Gunnlaugsdóttir

Drífa Hrönn Gunnlaugsdóttir fæddist á Höfn í Hornafirði 14. mars 1971. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 3. maí 2025. Foreldrar hennar eru Linda Helena Tryggvadóttir matráður með meiru, f. 3. febrúar 1947, og Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarmaður, f Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 2039 orð | 1 mynd

Erla Þórunn Ásgeirsdóttir

Erla Þórunn Ásgeirsdóttir fæddist 12. febrúar 1960 í Bolungarvík. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á Sjúkrahúsinu á Akureyri 10. maí 2025. Foreldrar hennar voru Ásgeir Guðmundsson, f. 1919, d. 1997, og Kristrún Steinunn Benediktsdóttir, f Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 3683 orð | 1 mynd

Gunnlaugur Claessen

Gunnlaugur Claessen fæddist 18. ágúst 1946. Hann lést 1. maí 2025. Útför Gunnlaugs fór fram 15. maí 2025. Við vinnslu minningargreina sem birtust á útfarardegi urðu þau leiðu mistök að grein Hauks Claessen, sonar hins látna, datt út Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 1526 orð | 1 mynd

Hrafn Bragason

Hrafn Bragason fæddist á Akur­eyri 17. júní 1938. Hann lést á Sóltúni 28. apríl 2025. Foreldrar Hrafns voru hjónin Bragi Sigurjónsson, f. 1910, d. 1995, og Helga Jónsdóttir, f. 1909, d. 1996. Systkini hans eru Sigurjón, d Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 576 orð | 1 mynd

Jón Snorrason

Jón Snorrason fæddist í Hleiðargarði í Eyjafirði 4. nóvember 1946. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 26. apríl 2025. Foreldrar hans voru Snorri Hannesson bóndi í Hleiðargarði, f. 1901, d. 1963 og Sigríður Jóna Jóhannsdóttir, f Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 1050 orð | 1 mynd

Sigríður Bjarney Einarsdóttir

Sigríður Bjarney Einarsdóttir fæddist 7. júní 1927 í Varmahlíð, V-Eyjafjallahreppi í Rangárvallasýslu. Hún lést 30. apríl 2025 á Landspítalanum í Fossvogi. Foreldrar hennar voru Einar Sigurðsson, f. 4.4 Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 1559 orð | 1 mynd

Sigurjón Jónsson

Sigurjón Jónsson fæddist í Hafnarfirði 7. júlí 1934. Hann lést á Sólvangi 1. maí 2025. Foreldrar hans voru Jón Vídalín Hinriksson, f. 8.12. 1904, d. 20.4. 1961, og Guðrún Helga Einarsdóttir, f. 3.5. 1900, d Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 1094 orð | 1 mynd

Stefán Jónsson

Stefán Jónsson fæddist á Grettisgötu í Reykjavík 18. júní 1942. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 28. apríl 2025. Foreldrar hans voru Jón Dalmannsson gullsmiður í Reykjavík, f. 24. júní 1898, d Meira  Kaupa minningabók
16. maí 2025 | Minningargreinar | 1568 orð | 1 mynd

Svava Friðþjófsdóttir

Svava Friðþjófsdóttir fæddist á Ólafsfirði 27. júní 1940. Hún lést á Landspítalanum Hringbraut 9. maí 2025. Foreldrar hennar voru Friðþjófur Jóhannesson, f. 23. nóvember 1897, d. 23. desember 1979, og Sigrún Ólfjörð Jónsdóttir, f Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

16. maí 2025 | Viðskiptafréttir | 543 orð | 3 myndir

Allt gull komist fyrir í sundlaug

Allt gull sem framleitt hefur verið í heiminum er um 100.000 tonn og kemst fyrir í einni sundlaug. Þetta kom fram í máli Elds Ólafssonar, forstjóra Amaroq Minerals, á fundi Morgunblaðsins, Kompanís, sem fram fór í Hádegismóum í gær Meira

Fastir þættir

16. maí 2025 | Í dag | 65 orð

[4028]

„Myndin var svo óeftirminnileg að þegar ég ætlaði inn úr hléinu mundi ég ekki hvaða mynd ég var á.“ Við erum kvikmyndavön og kunnum að beygja hléið. En tré og hné eiga ekki að bæta við sig þágufalls-i: „tréinu“ og… Meira
16. maí 2025 | Í dag | 243 orð

Af sumri, Macron og Evróvisjón

Árni Bergmann segir menn seint munu temja sér hófsemi: Komi aftur okkar hænur með eggin sín vænu. Komi kötturinn Mosi með kynlegu brosi Komi smáfuglar snjallir til snæðings á palli. Komi enn og aftur einbeittur kraftur til aldraðra tveggja ellimóðra víst beggja Meira
16. maí 2025 | Í dag | 192 orð

Grætt á óvissunni V-NS

Norður ♠ K96 ♥ K10862 ♦ G7 ♣ D93 Vestur ♠ G108743 ♥ D4 ♦ 10 ♣ 10864 Austur ♠ 2 ♥ Á9753 ♦ 98652 ♣ Á5 Suður ♠ ÁD9 ♥ G ♦ ÁKD43 ♣ KG72 Suður spilar 5♦ Meira
16. maí 2025 | Í dag | 884 orð | 4 myndir

Hálft ár varð að þrettán árum

Gerður Sæmundsdóttir fæddist 16. maí 1950 á heimili foreldra sinna í Hveragerði. „Það var ljósmóðir sem bjó í næstu götu sem tók á móti mér. Hveragerði var hálfgert bændasamfélag, þótt það væri þorp í sveit og allir þekktu alla Meira
16. maí 2025 | Í dag | 351 orð | 1 mynd

Ísabella Ósk Másdóttir

30 ára Ísabella er Ísfirðingur í húð og hár. Hún er mikið fyrir útivist og var mikið á snjóbrettum fyrir vestan. Eftir grunnskólann fór hún í Menntaskólann á Ísafirði. Þá var farið suður í Háskóla Íslands í stjórnmálafræði, og hún var eitt ár í Stokkhólmsháskóla sem skiptinemi frá HÍ Meira
16. maí 2025 | Dagbók | 79 orð | 1 mynd

Kemur þú vininum út með glærum?

Í kvöld, föstudag, fer fram heldur óhefðbundinn stefnumótaviðburður í Lofti í miðborg Reykjavíkur, þar sem PowerPoint-glærur geta ráðið úrslitum um næsta stefnumót. Viðburðurinn nefnist Pitch or Ditch og þar fá þátttakendur fimm mínútur til að kynna … Meira
16. maí 2025 | Í dag | 164 orð | 1 mynd

Skák

1. d4 d5 2. Rf3 e6 3. e3 Rf6 4. Bd3 b6 5. 0-0 Bd6 6. Re5 0-0 7. Rd2 Bb7 8. f4 Re4 9. Df3 f5 10. Kh1 Rd7 11. Dh3 Rxd2 12. Bxd2 Rxe5 13. fxe5 Be7 14. g4 g6 15. Hf3 Hf7 16. Hg1 Hg7 17. gxf5 exf5 18. Be1 Bc8 19 Meira
16. maí 2025 | Dagbók | 33 orð | 1 mynd

Verðir fá þvag og saur yfir sig

Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, segir frá þeim áskorunum sem fangelsin glíma við. Þau eru gjarnan yfirfull og af 180 plássum eru að jafnaði 70 upptekin undir gæsluvarðhaldsfanga. Álagið hefur vaxið mikið frá 2022. Meira

Íþróttir

16. maí 2025 | Íþróttir | 72 orð | 1 mynd

Akureyringurinn Svíþjóðarmeistari

Aldís Ásta Heimisdóttir og liðsfélagar hennar í Skara tryggðu sér í gær sænska meistaratitilinn í handknattleik með því að leggja fráfarandi meistara Sävehof að velli, 31:28, í framlengdum fjórða leik liðanna á heimavelli Sävehof í Gautaborg Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 71 orð | 1 mynd

Barcelona Spánarmeistari

Lamine Yamal reyndist hetja Barcelona þegar liðið tryggði sér spænska meistaratitilinn í annað sinn á þremur árum með 2:0-sigri gegn Espanyol á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Börsungar eru á toppnum með sjö stiga forskot á Real Madríd þegar einungis tvær umferðir eru eftir Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 450 orð | 1 mynd

Framarar byrja betur

Reynir Þór Stefánsson var allt í öllu hjá Fram þegar liðið hafði betur gegn Val í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handbolta á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Fram, 37:33, en Reynir Þór skoraði tólf mörk og var langmarkahæstur hjá Frömurum Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 309 orð | 1 mynd

Knattspyrnumaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur skrifað undir nýjan…

Knattspyrnumaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Víking úr Reykjavík sem gildir út árið 2028. Viktor, sem er 25 ára gamall, lék sína fyrstu leiki í efstu deild fyrir Víking sumarið 2016 Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 535 orð | 2 myndir

Krefjandi riðill Íslands á EM

Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur í F-riðli Evrópumótsins 2026 ásamt Ungverjalandi, Póllandi og Ítalíu en dregið var í riðla í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg í Austurríki í gær Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 401 orð | 2 myndir

Meistararnir féllu úr leik

Vestri gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Breiðabliks að velli, 2:1, í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Vestri, sem hefur átt góðu gengi að fagna í Bestu deildinni á tímabilinu, varð þannig… Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 70 orð | 1 mynd

Naumur sigur Magdeburgar

Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson þrjú þegar liðið hafði betur gegn Gummersbach, 32:31, á útivelli í Íslendingaslag í 29. umferð þýsku 1. deildarinnar í handbolta í gær Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 73 orð | 1 mynd

Perla á leiðinni til Louisiana

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, efnilegasti kvenkylfingur landsins og Íslandsmeistari 2022, er á leið til Bandaríkjanna í haust. Hún hefur þá nám við LSU-háskóla í Louisiana og stundar þar golf við bestu aðstæður Meira
16. maí 2025 | Íþróttir | 454 orð | 1 mynd

Valin til að spila báða

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir er komin í hópinn á ný fyrir leikina gegn Norðmönnum og Frökkum í Þjóðadeildinni í fótbolta og Agla María Albertsdóttir snýr aftur í hópinn eftir átján mánaða fjarveru Meira

Ýmis aukablöð

16. maí 2025 | Blaðaukar | 104 orð | 21 mynd

Allt sem þarf til að líta vel út

Það er tími til kominn að græja sig upp fyrir útivist sumarsins. Líkur eru á að það þurfi að endurnýja smáhluti eins og brúsa, sokka eða jafnvel skóbúnaðinn og því er gott að vera tímanlega á ferð. Góður jakki í útivistina er svo mikilvægur því að hér á landi má búast við alls konar veðri Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 1360 orð | 4 myndir

„Ég dýrka hjólið mitt!“

Það þarf allt að passa saman og á sama tíma að vera þægilegt á hjólinu. Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 1075 orð | 3 myndir

„Ég er ekki að fara á verðlaunapall“

Það er þrennt sem gefur mér núvitund í lífinu og það er að spila á píanó, að lesa fréttir og að fara út að hlaupa. Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 827 orð | 3 myndir

„Ég er spennusækinn“

Ég fékk að prufukeyra hjól hjá þeim og smitaðist um leið. Þetta sama kvöld, að mig minnir, keyptum við Aldís okkur sams konar hjól. Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 1369 orð | 6 myndir

„Græn svæði eru rosalega mikilvæg fyrir fólk“

„Börn sem verja meiri tíma í náttúrunni eru heilsuhraustari og með sterkara ónæmiskerfi.“ Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 1001 orð | 5 myndir

„Náttúran er uppspretta ævintýra“

„Það er smá allt-eða-ekkert í menningunni okkar hér.“ Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 1539 orð | 9 myndir

„Segja má að „djammið“ hafi farið úr böndunum “

„Ég hef þó frekar haft augastað á fallegum fjöllum en háum, svokölluðum „montfjöllum“ eins og ég kýs að kalla þau. Þar sem ég horfi á fegurð fjallanna og umhverfisins í kring frekar en stærð þeirra. Þetta eru fjöll eins og Baula, Kirkjufellið, Hekla og Snæfellsjökull sem eru formfögur fjöll og kennileiti á sínum landsvæðum.“ Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 24 orð

„Þú þarft að læra að bjarga þér sjálfur“

Hákon Broder Lund lærði margt af því að gegna herskyldu í Noregi. Hann flutti til Íslands 2013 til þess að kynnast íslensku fjölskyldunni sinni. Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 29 orð

Fjalladjamm

Birna Bragadóttir gekk á 100 fjöll í fyrra í tilefni af 50 ára afmæli sínu. Hún lítur á útivist sem sitt djamm og hefur ekki lagt gönguskóna á hilluna. Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 21 orð

Hjólar allra sinna ferða og elskar það

Eva Pandora Baldursdóttir finnur mikinn líkamlegan mun á sér eftir að hún lagði bílnum og fór að hjóla allra sinna ferða. Meira
16. maí 2025 | Blaðaukar | 33 orð

Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Winkel Jónasdóttir Blaðamenn Edda…

Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Winkel Jónasdóttir Blaðamenn Edda Gunnlaugsdóttir edda@mbl.is Elínrós Líndal elinros@mbl.is Erna Ýr Guðjónsdóttir ernagu@mbl.is Guðrún Sigríður Sæmundsen gss@mbl.is Auglýsingar Ásgeir Aron Ásgeirsson… Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.