Greinar þriðjudaginn 3. júní 2025

Fréttir

3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Aftakaveður fram eftir degi

Gular- og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt landið í dag. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi vegna veðurs en spár gera ráð fyrir að þar verði veðrið sem verst Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Brúðubíllinn snýr loks aftur með sýningu í Árbæjarsafni

Brúðubíllinn snýr aftur eftir fjögurra ára pásu og frumsýnir leikritið Leikið með liti á Árbæjarsafni í dag klukkan 14. „Þá munu Lilli, Dúskur, Dónadúskur, Dúskamamma, tröllið undir brúnni og dýrin í Afríku mæta á svæðið og syngja og dansa… Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 284 orð | 1 mynd

Engin hugsun í fjöldastjórnun

Mildi þykir að enginn hafi látist eða slasast lífshættulega á tónleikum FM95Blö á laugardagskvöld. Þrír voru fluttir á bráðamóttöku Landspítala af tónleikunum og alls þurftu fimmtán manns aðhlynningu á bráðamóttökunni eftir tónleikana Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 120 orð | 2 myndir

Fjörugur sjómannadagur á Þórshöfn

Á sjómannadeginum var margt til gamans gert á Þórshöfn en gleðin hófst með siglingu um morguninn. Um hádegið var fjölmennt á Holtið þar sem Langanesbyggð bauð upp á kræsingar – ljúffenga súpu og bjargfuglaegg – en síðan lá leiðin að höfninni Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Gæti reynst erfitt í framkvæmd

Áform um breytingar á kílómetragjaldi valda talsverðum ­áhyggjum hjá Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ) hvað varðar áhrif á erlendar bifreiðir. Í umsögn sinni um frumvarpið telur SVÞ að skattlagning á erlend ökutæki kunni að stangast á við tilskipun Evrópuþingsins Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Höfuðkúpa í Landsbanka

Uppruni höfuðkúpu sem lengi hefur verið meðal húsmuna í útibúi Landsbankans á Ísafirði er nú orðinn verkefni vísindanna. Starfsfólk útibúsins vestra kallaði á dögunum til Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðing sem greindi gripinn, en í höfuðkúpuna eru greyptir stafirnir SIGRID Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 115 orð | 1 mynd

Ísland skrifaði ekki undir ákall til MDE

Ísland var ekki meðal þeirra níu Evrópuþjóða sem skrifuðu undir yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem farið er fram á endurmat á núgildandi túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á réttindum hælisleitenda sem gerst hafa uppvísir að glæpum Meira
3. júní 2025 | Erlendar fréttir | 210 orð | 1 mynd

Karol Nawrocki forseti Póllands

Karol Nawrocki, frambjóðandi stjórnarandstöðuflokksins PiS, bar sigur úr býtum í seinni umferð pólsku forsetakosninganna sem fram fóru á sunnudag. Talningu atkvæða lauk á fimmta tímanum í gærmorgun að íslenskum tíma og hlaut sagnfræðingurinn… Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 114 orð | 1 mynd

Kosta ríkið tugi ma. kr. á ári

Lög um opinbera starfsmenn hljóma ekki mjög öfgafull á yfirborðinu en þegar lögin eru borin saman við þá uppsagnarvernd sem starfsfólk í einkageiranum hefur kemur í ljós að opinberir starfsmenn njóta þrefaldrar uppsagnarverndar Meira
3. júní 2025 | Erlendar fréttir | 603 orð | 1 mynd

Krefjast minni afskipta MDE

Leiðtogar Danmerkur, Ítalíu, Austurríkis, Póllands, Belgíu, Tékklands, Eistlands, Lettlands og Litáen, með þær Mettu Fredriksen og Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Danmerkur og Ítalíu, í fararbroddi, krefjast þess í opnu bréfi til… Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Kvennalandsliðið vígir nýjan Laugardalsvöll í kvöld

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun vígja nýjan Laugardalsvöll í kvöld þegar það tekur á móti Frökkum í lokaleik Þjóðadeildar Evrópu. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Laugardalnum síðan í október í fyrra og nú er nýr völlur loksins klár Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 310 orð | 3 myndir

Lifandi hafnarsvæði í hjarta bæjarins

„Þetta eru ákaflega spennandi tímamót í uppbyggingu á nýju Torfunefi,“ segir Pétur Ólafsson, hafnarstjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands. Samningur milli HN og verktakafyrirtækisins Húsheildar/Hyrnu um byggingu fyrsta hússins á… Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 255 orð | 1 mynd

Maímánuðurinn sló öll hitamet

Veðrið í maímánuði lék við landann og aldrei hefur íslenska vorið mælst jafn hlýtt frá upphafi mælinga. Árið 2025 hefur verið óvenju hlýtt og er þetta næsthlýjasta ársbyrjun síðastliðin 75 ár. Hitamet maímánaðar ársins 1974 voru slegin í ár og var afar hlýtt og bjart á landinu Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 227 orð | 2 myndir

Nýr þjóðarleikvangur tilbúinn

Nýr grasvöllur á Laugardalsvelli verður frumsýndur í kvöld þegar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tekur á móti því franska í síðasta leik Þjóðadeildar Evrópu og síðasta leik landsliðsins fyrir Evrópumeistaramótið Meira
3. júní 2025 | Fréttaskýringar | 626 orð | 3 myndir

Ósamræmi einkunna leiði til ójafnrar stöðu

Ef ekki er stuðst við samræmd próf við innritun í framhaldsskóla og ekki er eðlilegt samræmi í námsmati milli grunnskóla eru líkur til þess að umsækjendur um skólavist í framhaldsskólum standi ekki jafnir að vígi, í andstöðu við lög og góða stjórnsýsluhætti Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 258 orð | 1 mynd

Ósamræmi muni bitna á nemendum

Ef ekki er stuðst við samræmd próf við innritun í framhaldsskóla og ekki er eðlilegt samræmi í námsmati milli grunnskóla eru líkur til þess að umsækjendur um skólavist í framhaldsskólum standi ekki jafnir að vígi, í andstöðu við lög og góða stjórnsýsluhætti Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 330 orð | 2 myndir

Ráðgáta úr Landsbankanum á Ísafirði

„Af hverju höfuðkúpan endaði í bankanum er ráðgáta sem verður að leysa,“ segir Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur í samtali við Morgunblaðið. Hún starfar á Vestfjörðum og á dögunum var leitað til hennar vegna höfuðkúpu sem… Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 316 orð | 1 mynd

Ráðuneytið hjólar í frumvarpið

Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna tengingar greiðslna úr almannatryggingakerfinu nemi uppsafnað um 10-11 milljörðum króna undir lok tímabils fjármálaáætlunar. Miðað við forsendur fjárlaga fyrir árið 2025 hefði kostnaður vegna greiðslna bóta hækkað um 3-4 milljarða Meira
3. júní 2025 | Erlendar fréttir | 92 orð | 1 mynd

Réðst á hóp fólks með eldsprengjum

Átta eru særðir eftir að karlmaður vopnaður bensínsprengjum réðst á friðsaman hóp fólks í borginni Boulder í Colorado í Bandaríkjunum. Var fólkið komið saman til að sýna ísraelskum gíslum stuðning en árásarmaðurinn, sem er 45 ára gamall og af egypskum uppruna, er stuðningsmaður Palestínu Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 439 orð | 2 myndir

Seldi hlut sinn en fer áfram með stjórn

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, hefur selt 51% eignarhlut sinn í Sleppu ehf. en eiginkona Sigurjóns, Svava Ingimarsdóttir, heldur áfram á 49% hlut í félaginu Meira
3. júní 2025 | Erlendar fréttir | 90 orð | 1 mynd

Smíða tólf árásarkafbáta

Smíðaðir verða 12 kjarnorkuknúnir árásarkafbátar á næstu árum og mun breski sjóherinn fá fyrstu báta í sína þjónustu í kringum árið 2030. Breytt landslag í öryggismálum Evrópu samhliða útþenslustefnu Rússlands kallar á mikla uppbyggingu breska heraflans Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 235 orð | 2 myndir

Telur svarið gott og gilt

„Frá okkar hlið er þetta ekki mál. Við rákum augun í það að í þessu frumvarpi var Vegagerðin talin upp sem álestraraðili. Við gerðum athugasemd og fengum það svar að Vegagerðinni væri ekki ætlað aukið hlutverk Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Tólf laxa dagur við opnun Þjórsár

Laxveiðitímabilið fór formlega af stað 1. júní þegar veiði hófst í Urriðafossi í Þjórsá. Óhætt er að segja að opnunin hafi verið með ágætum og staðið undir væntingum, en veiðimenn lönduðu 12 löxum fyrsta daginn Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 169 orð | 2 myndir

Tvö sækjast eftir embætti forseta

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Kristján Örn Elíasson hafa tilkynnt framboð sín til embættis forseta Skáksambands Íslands. Kosningar fara fram á aðalfundi sambandsins þann 14. júní næstkomandi. Gunnar Björnsson, sitjandi forseti sambandsins, hefur… Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 115 orð | 1 mynd

Ungmenni njóti útiverunnar

Leggjum frá okkur símana og gerum eitthvað skemmtilegt saman. Þetta eru þau skilaboð sem foreldraráð Hafnarfjarðar sendir ungmennum bæjarins í átaki sem ætlað er að stuðla að minni skjátíma í sumar. Vilja foreldrar með þessu hvetja unga Hafnfirðinga … Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 75 orð | 1 mynd

Valur hafði betur gegn Fram

Valur hafði betur gegn Fram, 2:1, í síðasta leik 10. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu að Hlíðarenda í gærkvöldi. Patrick Pedersen og Tryggvi Hrafn Haraldsson skoruðu mörk Vals en Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði mark Framara Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 125 orð | 2 myndir

Vilja fresta afgreiðslu

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa bæði verulegar áhyggjur af frumvarpi Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem mælir fyrir um að tengja skuli greiðslur úr almannatryggingakerfinu við launavísitölu Meira
3. júní 2025 | Innlendar fréttir | 458 orð | 2 myndir

Yngstur til að fara holu í höggi í Eyjum

Um 160 kylfingar að meðaltali ná því að fara holu í höggi á golfvöllum hérlendis á ári, að sögn Guðmundar Óskarssonar formanns Einherjaklúbbsins. Rúmlega 4.000 draumahögg hafa verið tilkynnt til klúbbsins Meira

Ritstjórnargreinar

3. júní 2025 | Leiðarar | 549 orð

Almenningur hefur nef

Aldrei má gleyma viti fjöldans Meira
3. júní 2025 | Staksteinar | 188 orð | 2 myndir

Byggt á bílastæðum í Breiðholti

Borgaryfirvöld halda áfram að þétta byggð af miklum þrótti þó að borgarbúum sé að verða æ ljósara að allt of langt hefur verið gengið í þeim efnum. Morgunblaðið sagði frá tveimur stórtækum áformum um þetta í liðinni viku Meira

Menning

3. júní 2025 | Tónlist | 645 orð | 2 myndir

Allt á dýptina

Salurinn í Kópavogi Rómantískir risar ★★★★★ Tónlist: Franz Schubert (píanótríó í Es-dúr, nr. 2), Liam Kaplan (Frederic) og Clara Schumann (píanótríó í g-moll, op. 17). Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (selló), Herdís Mjöll Guðmundsdóttir (fiðla) og Liam Kaplan (píanó). Tónleikar í röðinni Klassík í Salnum haldnir sunnudaginn 25. maí 2025. Meira
3. júní 2025 | Menningarlíf | 61 orð | 1 mynd

Gróskumessa á Garðatorgi stendur nú yfir

Gróskumessan á Garðatorgi í Garðabæ stendur nú yfir þar sem 59 listamenn sýna um 125 listaverk. Sýningin er í tilkynningu sögð tvískipt, á torginu gefur að líta stór olíu- og akrýlmálverk en á annarri hæð eru vatnslitaverk og teikningar Meira
3. júní 2025 | Menningarlíf | 135 orð | 1 mynd

Hátíðarsýning Á rauðu ljósi eftir Kristínu

Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona fagnar 100. sýningu Á rauðu ljósi og heldur af því tilefni sérstaka hátíðarsýningu á Stóra sviðinu laugardaginn 27. september. „Sýning Kristínar Þóru Haraldsdóttur, Á rauðu ljósi, hefur vakið mikla athygli… Meira
3. júní 2025 | Menningarlíf | 156 orð | 1 mynd

Hrátt líf hinsegin fólks ljósmyndað

Hrátt og heiðarlegt líf hinsegin listafólks er í forgrunni nýrrar ljósmyndasýningar, Family Portrait: Sögur úr glimmeri og blóði, sem verður opnuð í dag í Núllið galleríi í Bankastræti Meira
3. júní 2025 | Menningarlíf | 102 orð | 1 mynd

Nýr dansflokkur frumsýnir verk í Tjarnarbíói

Ballet axis er nýr verkefnamiðaður dansflokkur í Reykjavík sem mun frumsýna sitt fyrsta dansverk Point of axis eftir Sally Cowdin 5. júní. Í tilkynningu segir að verkið sé í dansstíl sem íslenskir dansunnendur hafa ekki fengið að sjá lengi á Íslandi Meira
3. júní 2025 | Menningarlíf | 849 orð | 2 myndir

Súrrealisminn leynist víða

„Það er afskaplega mikill kraftur í rannsóknum á súrrealisma núna,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir bókmenntafræðingur í samtali við Morgunblaðið. Hún stendur ásamt fleirum að alþjóðlegri ráðstefnu um hnattrænan súrrealisma sem fram fer dagana 6.-7 Meira
3. júní 2025 | Fjölmiðlar | 178 orð | 1 mynd

Umbrotatímar og átök á Sikiley

Hlébarðinn nefnast nýir þættir sem gerast á Sikiley og gerðir eru eftir samnefndri skáldsögu, sem Tómas Guðmundsson þýddi á sínum tíma. Sagan er eftir Giuseppe Tomasi di Lampedusa, prins og hertoga á Sikiley, og gerist á sjöunda áratug 19 Meira
3. júní 2025 | Menningarlíf | 54 orð | 1 mynd

Þokkabót heldur aukatónleika vegna eftirspurnar

Hljómsveitin Þokkabót efnir til aukatónleika í tilefni af 50 ára afmæli hljómsveitarinnar þann 5. júní í Salnum í Kópavogi. Fyrri tónleikarnir voru haldnir 21. mars og seldist strax upp segir í tilkynningu Meira

Umræðan

3. júní 2025 | Aðsent efni | 447 orð | 1 mynd

Auðlind og auðmagn

Þversögn málflutnings þeirra birtist best í þeirri gjaldtöku sem þeir sjálfir stunda í kvótaleigu og telja eðlilega. Meira
3. júní 2025 | Pistlar | 396 orð | 1 mynd

Fjárfestinga- og innviðaáætlun fyrir Ísland

Fjölmörg rök hníga að því að ráðast í fjárfestingarátak á Íslandi. Innviðaskuld er staðreynd og hefur hlaðist upp. Hún er metin á 680 milljarða af Samtökum iðnaðarins en ekkert formlegt mat liggur fyrir af hálfu opinberra aðila Meira
3. júní 2025 | Aðsent efni | 761 orð | 1 mynd

Frjálsari viðskipti, meiri velmegun

Í heimi sem glímir við ójöfnuð og efnahagslega óvissu eru frjálsari viðskipti enn eitt öflugasta tækið til sameiginlegrar alþjóðlegrar velmegunar. Meira
3. júní 2025 | Aðsent efni | 921 orð | 1 mynd

Lýðræðið og íslam

Sagan hefur sýnt það sem ritningar íslams einnig upplýsa, að jíhad er líka beitt í formi pólitísks áróðurs, hræðsluáróðurs, hryðjuverka og styrjalda. Meira
3. júní 2025 | Aðsent efni | 241 orð | 1 mynd

Þétting umfram allt

Það lítur út fyrir að Íslendingar séu að undirbúa sig fyrir hamfarahlýnun á næstu áratugum og sjái það helst í stöðunni að byggja sem þéttast og útiloka sem mest áhrif sólarljóss og hita. Þetta er þekkt aðferð víða og árþúsunda gömul Meira

Minningargreinar

3. júní 2025 | Minningargreinar | 1912 orð | 1 mynd

Guðmundur Hólm Hjörleifsson

Guðmundur Hólm Hjörleifsson fæddist í Hafnarfirði 20. nóvember 1948. Hann lést á Royal Infirmary-spítalanum í Edinborg 7. maí 2025. Foreldrar hans voru Hjörleifur Elíasson, f. 22.2. 1922 í Tungu, Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu, d Meira  Kaupa minningabók
3. júní 2025 | Minningargreinar | 3956 orð | 1 mynd

Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir

Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, fæddist í Kaupmannahöfn 24. mars 1958. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 26. maí 2025 eftir stutt veikindi. Faðir Guðrúnar er Sigurbjörn Guðmundsson, f Meira  Kaupa minningabók
3. júní 2025 | Minningargreinar | 2425 orð | 1 mynd

Gunnar S. Björnsson

Gunnar S. Björnsson, fv. framkvæmdastjóri og formaður Meistara- og verktakasambands byggingarmanna, fæddist á bænum Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði 4. september 1932. Hann lést 20. maí 2025. Foreldrar hans voru Björn Jónsson, f Meira  Kaupa minningabók
3. júní 2025 | Minningargreinar | 1186 orð | 1 mynd

Jóhannes Harnald Ásbjarnarson

Jóhannes Harnald Ásbjarnarson fæddist í Stykkishólmi 7. janúar 1952. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 15. maí 2025. Foreldrar Jóhannesar voru Ásbjörn J. Guðmundsson bifreiðarstjóri frá Höfða í Eyjahreppi, f Meira  Kaupa minningabók
3. júní 2025 | Minningargreinar | 848 orð | 1 mynd

Sigríður Benediktsdóttir

Sigríður Benediktsdóttir fæddist í Ytra-Dalsgerði í Saurbæjarhreppi 5. október 1936. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 15. maí 2025. Foreldrar hennar voru Vilhelmína Sigríður Kristinsdóttir, f Meira  Kaupa minningabók
3. júní 2025 | Minningargreinar | 400 orð | 1 mynd

Sigurbjarni Guðnason

Sigurbjarni Guðnason fæddist 20. ágúst 1935. Hann lést 15. maí 2025. Útförin fór fram 26. maí 2025. Meira  Kaupa minningabók
3. júní 2025 | Minningargreinar | 1251 orð | 1 mynd

Skúli Reynir Ferdinandsson

Skúli Reynir Ferdinandsson fæddist 11. september 1945 á Efri-Ási í Hjaltadal í Skagafirði. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki 24. maí 2025. Foreldrar hans voru Ferdinand Rósmundsson, f Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

3. júní 2025 | Viðskiptafréttir | 716 orð | 1 mynd

Stýring og tækjafjármögnun hindrun

Ef yrði af sameiningu Arion og Kviku myndi Samkeppniseftirlitið að öllum líkindum fetta fingur út í stærð eignastýringarstarfsemi sameinaðs banka. Ef yrði af sameiningu Íslandsbanka og Kviku myndi SKE helst hafa áhyggjur af stærð tækjafjármögnunarstarfsemi sameinaðs banka Meira
3. júní 2025 | Viðskiptafréttir | 168 orð | 1 mynd

Tölurnar styðji við lækkun vaxta

Verg landsframleiðsla jókst hraustlega um 2,6% á fyrsta fjórðungi, en það er langt umfram spá Seðlabankans um 0,1% vöxt á fjórðungnum. Ágætum vexti útflutnings er það að þakka en kröftugur vöxtur í innlendri eftirspurn skilaði sér að litlu leyti inn … Meira

Fastir þættir

3. júní 2025 | Í dag | 57 orð

[4044]

Margt gerir maður sér, meðal annars gerir sér vonirum hitt og þetta: vonar það eða væntir þess. Hins vegar bindur maður vonir við hitt og þetta Meira
3. júní 2025 | Í dag | 239 orð

Af sæmd, dirfsku og sjómönnum

Haldið var upp á sjómannadaginn um allt land á sunnudaginn var. Ingólfur Ómar Ármannsson sendir sjómönnum þessa lands heillaóskir og gaukar að þættinum sjómannaljóði í tilefni dagsins: Hugrakkir og hraustir drengir heyja stríðið ægi við Meira
3. júní 2025 | Í dag | 308 orð | 1 mynd

Arnfríður Henrysdóttir

50 ára Arnfríður fæddist á Landspítalanum. Þegar hún var tveggja ára flutti fjölskyldan til Óðinsvéa í Danmörku þegar faðir hennar fór í tækniháskóla. „Ég man óljóst eftir fallegum sumrum og skemmtilegum leikskóla, en svo flutti ég til… Meira
3. júní 2025 | Í dag | 909 orð | 3 myndir

Húsfreyjan á hvítu hestunum

Kristfríður, eða Fía eins og hún er alltaf kölluð, fæddist 1940 í Stóru-Gröf í Norðurárdal, yngst sjö systkina. Þegar Fía var þriggja ára fluttist fjölskyldan í Sveinatungu í Norðurárdal og þar ólst hún upp Meira
3. júní 2025 | Dagbók | 97 orð | 1 mynd

Óboðnir gestir vöktu lukku

Brúðhjón sem gengu í hjónaband rétt við Hvíta húsið í Washington trúðu varla eigin augum þegar óboðnir gestir létu sjá sig í miðri athöfn, rétt þegar þau skiptust á heitum. Þar var á ferð önd með ungana sína sem arkaði rólega niður ganginn eins og hún ætti fullan rétt á sæti við altarið Meira
3. júní 2025 | Í dag | 174 orð | 1 mynd

Skák

1. Rf3 d5 2. g3 Rc6 3. d4 Bf5 4. Bg2 Rb4 5. Ra3 e6 6. Rh4 Bg4 7. c3 Rc6 8. Db3 Hb8 9. e4 dxe4 10. Bxe4 Be7 11. Rc4 Bxh4 12. gxh4 Rge7 13. Hg1 Bf5 14. Bf3 0-0 15. h5 Kh8 16. h6 g6 17. Bg5 f6 18. Bd2 b5 19 Meira
3. júní 2025 | Í dag | 188 orð

Stóra sviðið A-Allir

Norður ♠ K8 ♥ 762 ♦ ÁG8 ♣ ÁK1072 Vestur ♠ G95 ♥ ÁK5 ♦ D4 ♣ DG863 Austur ♠ 76 ♥ D1043 ♦ 107632 ♣ 95 Suður ♠ ÁD10432 ♥ G98 ♦ K95 ♣ 4 Suður spilar 4♠ Meira

Íþróttir

3. júní 2025 | Íþróttir | 76 orð | 1 mynd

Dagbjartur í 39. sæti í Columbus

Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR komst ekki á opna bandaríska meistaramótið, US Open, en hann tók þátt í lokaúrtökumóti í Columbus í Ohio-ríki í gær. Kylfingarnir léku tvo hringi á sama degi og hafnaði Dagbjartur í 39 Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 66 orð | 1 mynd

Framlengdi hjá Val til 2027

Kanadíski körfuknattleiksþjálfarinn Jamil Abiad hefur framlengt samning sinn við Val um að þjálfa áfram kvennalið félagsins næstu tvö árin. Um leið hefur Margrét Ósk Einarsdóttir verið ráðin áfram aðstoðarþjálfari með honum til tveggja ára Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 66 orð | 1 mynd

Guðmundur í stað Daníels

Guðmundur Baldvin Nökkvason miðjumaður Stjörnunnar hefur verið kallaður inn í 21-árs landsliðið í knattspyrnu. Hann kemur í staðinn fyrir Daníel Tristan Guðjohnsen sóknarmann Malmö sem dró sig út úr hópnum vegna meiðsla Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 222 orð | 1 mynd

KA fer beint í 2. umferð í Evrópukeppni

Öll þátttökulið í Evrópumótum karla í knattspyrnu 2025-26 liggja fyrir og um leið er endanlega staðfest að KA fer beint í 2. umferð í undankeppni Sambandsdeildar karla sem bikarmeistari Íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt karlalið situr hjá í 1 Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 227 orð | 1 mynd

Laugardalsvöllurinn er bara geggjaður

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fær Frakkland í heimsókn í A-deild Þjóðadeildar á nýjum Laugardalsvelli í dag. „Hann er bara geggjaður, ótrúlega flottur. Ég hef aldrei æft á svona góðum Laugardalsvelli Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 430 orð | 2 myndir

Lettneski körfuboltamaðurinn Linards Jaunzems hefur náð samkomulagi við KR…

Lettneski körfuboltamaðurinn Linards Jaunzems hefur náð samkomulagi við KR um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili. Jaunzems, sem er 30 ára, átti frábært tímabil með KR í úrvalsdeildinni í vetur en hann var að meðaltali í leik með 20,8 stig, 7,9 fráköst og 3,4 stoðsendingar Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 392 orð | 1 mynd

Mikið í húfi á nýjum velli

Mikið er í húfi hjá kvennalandsliðinu í fótbolta þegar það tekur á móti firnasterku liði Frakka á endurbyggðum Laugardalsvellinum klukkan 18 í dag. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn til að tryggja sér áframhaldandi sæti í A-deild… Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 200 orð | 1 mynd

Sigurmark Skotanna undir lokin í Falkirk

Skotland sigraði Ísland, 2:1, í vináttulandsleik U23 ára kvenna í knattspyrnu í skoska bænum Falkirk í gær. Þetta var seinni leikur liðanna en þau skildu jöfn, 2:2, í þeim fyrri á sama stað á föstudaginn Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 70 orð | 1 mynd

Sævar kemur í stað Arnórs

Sævar Atli Magnússon, sem er nýkominn til Brann í Noregi frá Lyngby í Danmörku, hefur verið kallaður inn í A-landsliðið í knattspyrnu fyrir vináttuleikina gegn Skotlandi og Norður-Írlandi. Sævar kemur í stað Arnórs Sigurðssonar, leikmanns Malmö í Svíþjóð, en hann getur ekki tekið þátt vegna meiðsla Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 321 orð | 2 myndir

Valur í toppbaráttuna

Valur vann þriðja leik sinn í röð í Bestu deild karla í knattspyrnu í lokaleik tíundu umferðarinnar gegn Fram, 2:1, að Hlíðarenda í gærkvöldi. Eftir leikinn er Valur kominn í þriðja sæti deildarinnar með 18 stig og aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Víkings úr Reykjavík Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 236 orð | 1 mynd

Það er tilhlökkunarefni að mæta á Laugardalsvöllinn í kvöld og sjá fyrsta…

Það er tilhlökkunarefni að mæta á Laugardalsvöllinn í kvöld og sjá fyrsta knattspyrnuleikinn á honum eftir gagngerar endurbætur. Leikur Íslands og Frakklands í Þjóðadeild kvenna hefst klukkan 18 og nú verður leikið á upphituðu og nýju blendingsgrasi sem á að vera hægt að nota árið um kring Meira
3. júní 2025 | Íþróttir | 234 orð | 1 mynd

Þannig getum við strítt þeim

„Veðurspáin er nokkuð slæm og það á eftir að hjálpa okkur,“ sagði landsliðskonan Hildur Antonsdóttir í samtali við Morgunblaðið fyrir lokaleik Íslands gegn Frakklandi í 2. riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu sem fram fer á nýju grasi á Laugardalsvelli í kvöld Meira

Veldu dagsetningu

PrevNext
June 2025
SuMoTuWeThFrSa
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930     
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.