Drónaárás Úkraínuhers á fjóra herflugvelli djúpt inni í rússnesku landi síðastliðinn sunnudag hefur stóraukið líkur á stigmögnun átaka. Hættan á því er nú metin „óásættanleg“. Þetta segir Keith Kellogg, sérstakur erindreki Bandaríkjaforseta gagnvart Úkraínu, í viðtali við Fox News
Meira
5. júní 2025
| Fréttaskýringar
| 556 orð
| 4 myndir
Skýr svör vantar frá ríkisstjórn um það hversu lengi skattgreiðendur þurfa að borga fyrir afnot af tómum húsum á vegum Vinnumálastofnunar. Þetta segir Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann lagði fram fyrirspurn til Ingu Sæland…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 338 orð
| 1 mynd
Sigríður Andersen þingmaður Miðflokksins kveðst lítið skilja í æðibunugangi stjórnarliða við að reyna að keyra öll sín stóru mál í gegn á þessu þingi. Samkvæmt starfsáætlun á að senda þingið heim annan föstudag, þótt líklegt sé að það verði framlengt eitthvað
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 499 orð
| 2 myndir
Óvíst er hverjir verða leigutakar á urriðasvæðunum í Laxá í S-Þingeyjarsýslu frá næsta ári eftir að Fiskistofa ógilti ákvörðun félagsfundar Veiðifélags Laxár og Krákár um að samþykkja tilboð Stangaveiðifélags Reykjavíkur
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 200 orð
| 2 myndir
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði leita leiða til að leysa úr þeim vanda sem skapast hefur á bílastæðum víðs vegar um bæinn. Bílastæðið við Hótel Velli er merkt sem skammtímastæði en er orðið að geymslusvæði fyrir hjólhýsi, bílhræ og rusl eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 266 orð
| 2 myndir
„Þetta er vinsælt. Viðskiptavinirnir eru ánægðir með þetta,“ segir Pétur Jónsson, annar eigenda veitingastaðarins Tasty í Skútuvogi. Nýverið bættist nýr réttur á matseðil veitingastaðarins, sem sérhæfir sig í hamborgurum
Meira
5. júní 2025
| Fréttaskýringar
| 351 orð
| 2 myndir
Ný gögn benda til þess að samband bandaríkjadals og 10 ára skuldabréfavaxta Bandaríkjanna hafi rofnað og nú eru skuldatryggingarálög ríkissjóðs farin að líkjast þeim sem áður einkenndu veik efnahagsríki Suður-Evrópu, á borð við Grikkland og Ítalíu
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 580 orð
| 1 mynd
Norska fiskvinnslufyrirtækið Pelagia hefur lagt einokunarmál fyrir Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), sem haft gæti bein áhrif á frumvarp um fyrirhugaða hækkun veiðigjalda. Pelagia, sem er eitt stærsta fiskvinnslufyrirtæki Noregs og með starfsemi víða í…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 468 orð
| 2 myndir
„Járningar hesta eru heilmikil list,“ segir Kristján Elvar Gíslason, járningameistari og kennari við Háskólann á Hólum. Þar er nú í undirbúningi nám í járningum sem hefst í haust. Þetta verður hluti af öðru starfi hestafræðideildar…
Meira
Fjöldi Íslendinga með Parkinson-sjúkdóminn mun tvöfaldast á næstu 15 árum. Beinn kostnaður ríkisins vegna sjúkdómsins mun fara úr fimm milljörðum króna í tíu milljarða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem birt var í gær og Parkinson-samtökin létu vinna fyrir sig
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 305 orð
| 3 myndir
Franska herskipið Mistral liggur nú við höfnina í Korngörðum í Reykjavík, en það tekur þátt í fimm mánaða hernaðarverkefni sem kennt er við Jóhönnu af Örk. Skipið er tæplega 200 metrar að lengd, 25.000 tonn að þyngd
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 62 orð
| 1 mynd
Franska þyrlumóðurskipið Mistral kom til Reykjavíkur í gær við krefjandi aðstæður sökum veðurs. Um borð í þessu 25 þúsund tonna herskipi eru franskir hermenn, þar af yfir 600 sjóliðar sem hljóta nú hagnýta þjálfun á alþjóðavettvangi
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 214 orð
| 2 myndir
Ekkert lát virðist vera á vinsældum rithöfundarins Ragnars Jónassonar í Þýskalandi. Nýjasta bók hans, Hulda, kom út þar í landi á dögunum og stökk beint í þriðja sætið á metsölulista Spiegel sem birtur var í gær
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 325 orð
| 5 myndir
Halla Tómasdóttir forseti Íslands var aðalgestur á málþingi um jafnréttismál sem haldið var í Tsuda-háskóla í Sendagaya í Tókýó síðastliðinn laugardag. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur tók þátt í síðari hluta málþingsins, sagði frá…
Meira
5. júní 2025
| Erlendar fréttir
| 263 orð
| 1 mynd
Réttarhöld eru hafin í Stokkhólmi í Svíþjóð yfir herskáum íslamista sem sagður er hafa tekið þátt í aftöku orrustuflugmanns frá Jórdaníu árið 2014. Ódæðismaðurinn heitir Osama Krayem, 32 ára gamall, og afplánar hann nú þegar dóm sem hann fékk fyrir…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 71 orð
| 1 mynd
Íslenski dansflokkurinn heldur brátt til Noregs þar sem flokkurinn sýnir verkið Ball eftir þau Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Roberts á True Northern Art Festival 28. júní
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 978 orð
| 9 myndir
Jakob er eigandi Jómfrúarinnar og Benni er búinn að vinna þar í mörg ár samhliða því að vera á fullu í tónlist og hljómsveitarrekstri en hann er trommuleikari sveitarinnar Une Misére auk þess að spila með fjölda listamanna, til að mynda með Emmsjé Gauta
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 562 orð
| 2 myndir
Veðrið í upphafi júnímánaðar hefur svo sannarlega leikið landsmenn grátt og eru margir eflaust farnir að sakna hlýjunnar sem var í maí. Óveður í júní og hið svokallaða júníhret eru þó ekki óalgeng hér á landi
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 347 orð
| 1 mynd
Útgerðarfélagið Sleppa ehf., sem Sigurjón Þórðarson formaður atvinnuveganefndar fer fyrir, hefur ekki nýtt 682 kg grásleppukvóta sem strandveiðibátur félagsins, Sigurlaug ÓF 38, fékk úthlutað í ár. Fyrirséð er því að kvótinn verði ekki nýttur í ár þar, sem grásleppuvertíð er lokið
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 182 orð
| 1 mynd
Landfari, umboðsaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi, heldur opnunarhátíð að Álfhellu 15 í Hafnarfirði nk. laugardag kl. 11-15. Þar gefst almenningi kostur á að skoða nýtt þjónustuverkstæði og nýjustu atvinnubílana frá Mercedes-Benz…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 176 orð
| 1 mynd
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að væntanleg launahækkun æðstu embættismanna íslenska ríkisins um 5,6 prósent geti grafið undan sátt á vinnumarkaði. „Ég vek athygli á því að ríkisstjórn sem hefur lýst því yfir að…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 113 orð
| 1 mynd
Norðurlandamót í bridds hefst í dag að Laugarvatni. Ísland sendir lið í kvennaflokki og opnum flokki og verður spiluð sveitakeppni, tvöföld umferð. Mótinu lýkur á sunnudag. Kvennalið Íslendinga skipa þær Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, María Haraldsdóttir Bender og Harpa Fold Ingólfsdóttir
Meira
Grundvöllur nýs útreiknings á veiðigjöldum á uppsjávarfisk kann að bresta fallist Eftirlitsstofnun EFTA á kæru norska sjávarútvegsfyrirtækisins Pelagia um að einokunarstaða norska síldarsölusamlagsins Norsk Sildesalgslag (NSSL) brjóti í bága við 31
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 144 orð
| 1 mynd
Verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi verður opnuð að nýju í dag, fimmtudaginn 5. júní eftir umfangsmiklar endurbætur. Þessi verslun hefur verið starfrækt í alls 12 ár og nú þótti kominn tími á yfirhalningu
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 226 orð
| 1 mynd
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis á þinginu að ljúka þann 13. júní en óvíst er hvort það takist. Ríkisstjórnin er með talsverðan fjölda mála sem þarf að afgreiða fyrir þinglok. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og fyrrverandi umhverfisráðherra, gat lítið tjáð sig um stöðu mála á Alþingi
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 139 orð
| 1 mynd
Plássið svonefnda í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns hefur af Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfisráðherra verið staðfest sem verndarsvæði í byggð, að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps. Svæðið er um 3,7 hektarar að stærð og nær um elsta hluta byggðar bæjarins
Meira
Afkoma Þórsmerkur ehf. versnaði um 139 milljónir króna á milli ára og var tap ársins 2024 rúmar 348 milljónir króna. Þórsmörk ehf. er móðurfélag Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins og mbl.is, Landsprents ehf., Póstdreifingar ehf
Meira
5. júní 2025
| Erlendar fréttir
| 115 orð
| 1 mynd
Gera má ráð fyrir því að geymslur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar Sellafield í Suffolk á Englandi haldi áfram næstu áratugi að leka hágeislavirkum vökva út í náttúruna. Gæti lekinn staðið yfir fram til ársins 2050, eða þar til búið verður að tæma …
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 254 orð
| 1 mynd
Jón Þór Dagbjartsson hlaut í gær sex ára dóm fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu sína og barnsmóður í Vopnafjarðarmálinu svokallaða. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands í gær. Dómurinn hefur ekki verið birtur en Austurfrétt greinir frá dómsuppkvaðningunni
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 973 orð
| 4 myndir
Sett var upp á dögunum skilti við húsið að Leifsgötu 12 í Reykjavík sem sýnir og segir að þar hafi verið Steinkudys sem svo var kölluð. Heitið vísar til þess að á þessum stað, austanvert í Skólavörðuholti, voru huslaðar jarðneskar leifar Steinunnar…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 115 orð
| 1 mynd
Fjöldi eigna sem Vinnumálastofnun tók á leigu fyrir fólk sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi stendur auður. Í svari Ingu Sæland, félags- og húsnæðisráðherra, við fyrirspurn Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins um þetta mál…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 483 orð
| 2 myndir
Um 83% sjúkraflutningamanna sem starfa í bakvaktakerfi í dreifðari byggðum landsins telja sig ekki fá nægilega sí- og endurmenntun til að viðhalda hæfni í starfi samkvæmt verkefni sem unnið var af nemendum í Háskólanum á Bifröst
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 197 orð
| 1 mynd
Fjölmennt var á golfmóti á Bárarvelli síðastliðinn föstudag, 30. maí, þegar fulltrúar Lionsklúbbs Grundarfjarðar mættu þangað til þess að afhenda styrk til tveggja félaga í byggðarlaginu. Um var að ræða afrakstur af kútmagakvöldi Lions í marsmánuði síðastliðnum
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 623 orð
| 3 myndir
Mikil uppbygging á sér nú stað í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit sem er um 10 kílómetra fyrir sunnan Akureyri. Þar eru nú í byggingu alls 16 íbúðarhús og svipuðum fjölda lóða hefur verið úthlutað, þar sem vænta má að framkvæmdir hefjist síðar á þessu ári eða því næsta
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 346 orð
| 1 mynd
Tómar hillur hafa mætt ferðalöngum við komuna í fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli að undanförnu. Nýr rekstraraðili, þýska fyrirtækið Heinemann, tók við fríhöfninni í síðasta mánuði og er óhætt að segja að mótbyr hafi verið í rekstrinum
Meira
5. júní 2025
| Erlendar fréttir
| 100 orð
| 1 mynd
Varnarmálaráðuneyti Taílands hefur ákveðið að kaupa fjórar nýjar orrustuþotur af sænska framleiðandanum Saab, en vélarnar eru af gerðinni Gripen. Með þessu var fallið frá fyrri áformum hersins að kaupa hina bandarísku F-16-orrustuþotu
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 56 orð
| 1 mynd
Einvígi Oklahoma City Thunder og Indiana Pacers um NBA-meistaratitilinn hefst í nótt og þar þarf fjóra sigurleiki til að standa uppi sem sigurvegari. Hvorugt liðanna hefur unnið meistaratitilinn áður og Gunnar Valgeirsson, NBA-sérfræðingur…
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 425 orð
| 3 myndir
„Að sjá vélina frá Akureyri koma hér fram Hofsárdalinn með stefnu beint inn á braut vekur alltaf góða tilfinningu,“ segir Nikulás Árnason, flugvallarvörður á Vopnafirði. Þar í sveit er flugið afar mikilvæg samgönguæð, enda er langt í næstu byggðir
Meira
5. júní 2025
| Innlendar fréttir
| 57 orð
| 1 mynd
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra ÁTVR til fimm ára frá 1. september. Hún tekur við starfinu af Ívari J. Arndal, sem gegndi því í 20 ár. Þorgerður var framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar frá 2014 en starfaði áður í…
Meira
Albert Þór Jónsson viðskiptafræðingur fjallar um atlöguna að íslenskum sjávarútvegi í grein hér í blaðinu í gær. Þar bendir hann á að stjórnmálamenn sem aðhyllist „aukna skattheimtu og ríkisstyrkta sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu…
Meira
Þegar Amy Jandrisevits starfaði sem félagsráðgjafi á barnadeild í Bandaríkjunum áttaði hún sig á hve mikilvægar dúkkur eru fyrir börn með alvarleg veikindi. Leikmeðferð var ómetanleg, en dúkkurnar – með sítt hár, löng augnhár og fullkomið bros, líktust oft ekki börnunum sem héldu á þeim
Meira
Fimm ára drengur hefur vakið heimsathygli fyrir einstakt listaverk tileinkað einum virtasta náttúrufræðingi heims. Max Evans-Browning ákvað að teikna 99 dýr í afmæliskort fyrir 99 ára afmæli Sir Davids Attenborough, sem hann lítur á sem helstu fyrirmynd sína
Meira
Jólasýning Þjóðleikhússins í ár er Óresteia í leikgerð og leikstjórn Benedicts Andrews og nýrri þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. Í tilkynningu frá leikhúsinu kemur fram að Óresteia byggi á sígildum þríleik Æskílosar, en forngrísku verkin eru flokkuð…
Meira
Bogomil Font heldur ásamt hljómsveitinni Snillunum í tónleikaferð um landið í júní. Sveitina skipa þeir Einar Scheving á trommur, Pálmi Sigurhjartarson á hljómborð, Birgir Steinn Theodorsson á bassa og Jóel Pálsson á saxófón
Meira
Kanadíska söngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan hlaut á dögunum hin virtu sænsku Polar-tónlistarverðlaun en auk hennar voru verðlaunuð bandaríski tónlistarmaðurinn Herbie Hancock sem og breska hljómsveitin Queen
Meira
5. júní 2025
| Fólk í fréttum
| 185 orð
| 7 myndir
Kínverski förðunarmeistarinn Valentina Li hannaði Les Beiges-förðunarlínuna í samvinnu við franska tískuhúsið Chanel. Li er búsett í Frakklandi en hún ákvað að freista gæfunnar í háborg tískunnar, París
Meira
„Fjórfaldir útgáfutónleikar“ fara fram í Iðnó í kvöld kl. 20. Tónlistarfólkið Pan Thorarensen, Jóhannes Pálmason, Hekla og Unfiled (Atli Bollason og Guðmundur Úlfarsson) fagna öll útgáfu platna sinna með sameiginlegum tónleikum
Meira
„Við ætlum að bjóða upp á átta tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum en alls koma fram á sjöunda tug listamanna, bæði söngvarar og hljóðfæraleikarar,“ segir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, sem ásamt …
Meira
Ljósvakahöfundur brá sér í stutta utanlandsferð og horfði þar ekki á sjónvarp heldur fylgdist með mannlífi, fór inn í kaþólskar kirkjur og las bækur. Þegar heim var komið vildi ljósvakahöfundur, sem er í eðli sínu borgaralegur, fá sinn skammt af…
Meira
Þegar íslensku hjónin Guðný Matthíasdóttir og Róbert Halbergsson lögðu af stað í húsbílaferð með börnunum sínum haustið 2022, ætlaði fjölskyldan að vera erlendis í tvo mánuði. En lífið á hjólum heillaði, og nú, nær þremur árum síðar, býr fjölskyldan …
Meira
Ljósmyndaverkið Sundkona 3 eftir Katrínu Elvarsdóttur er hluti af sex mynda röð ljósmynda frá 2016 sem ber titilinn Leitin að sannleikanum. Verkin sex bættust í safneign Listasafns Íslands árið 2018
Meira
Keníski rithöfundurinn Ngugi wa Thiong'o er látinn, 87 ára að aldri. Þessu greinir AFP frá. Þar kemur fram að hann hafi verið álitinn einn fremsti afríski höfundur samtímans
Meira
Listasafnið á Akureyri Tími – Rými – Efni ★★★★½ Sýning á verkum Þóru Sigurðardóttur. Texti með sýningu eftir Ann-Sofie Gremaud. Sýningin var opnuð 17. maí 2025 og stendur til 7. september 2025. Sýningin er opin alla daga kl. 10-17.
Meira
Offline Club hófst sem lítið framtak í Hollandi en hefur nú breiðst út til borga á borð við London, Kaupmannahöfn, París, Berlín og Buffalo. Hugmyndin er einföld: sleppa skjánum, tengjast og njóta nærveru
Meira
Samsýning norðlenskra listamanna, Mitt rými, og yfirlitssýning á verkum Margrétar Jónsdóttur, Kimarek – Keramik, verða opnaðar í kvöld í Listasafninu á Akureyri
Meira
„Eftir því sem par er lengur saman stækkar ástin, en um leið líka vandamálin,“ segir danski leikstjórinn Niclas Bendixen í viðtali við Morgunblaðið. Hann frumsýndi nýverið rómantísku gamanmyndina Róm hér á landi og náði blaðamaður tali…
Meira
Velferðarnefnd lýkur brátt umræðu sinni um um frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar. Með frumvarpinu, sem Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, lagði fram, er verið að fylgja eftir stefnu ríkisstjórnarinnar um að rétta við hlut …
Meira
Í Suðurnesjabæ eru fiskveiðar og fiskvinnsla gríðarlega mikilvægar atvinnugreinar – þær vega um 14% í útsvarsgrunni bæjarins samkvæmt greiningu KPMG.
Meira
Tvöföldun veiðigjalda getur grafið undan innlendri vinnslu og aukið útflutning á óunnum fiski. Verðmætasköpun byggist á vinnslu, ekki aðeins veiði.
Meira
Minningargreinar
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 1034 orð
| 1 mynd
Ásdís Hjörleifsdóttir fæddist á Sólvöllum í Önundarfirði 21. apríl 1930. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 15. maí 2025. Foreldrar hennar voru hjónin Gunnjóna Sigrún Jónsdóttir frá Ytri-Veðrará og Hjörleifur Guðmundsson frá Görðum í Önundarfirði
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 2981 orð
| 1 mynd
Elín Hrefna Ólafsdóttir fæddist á Óspaksstöðum í Hrútafirði 14. ágúst 1932. Hún lést 14. maí 2025. Foreldrar hennar voru Ólafur V. Ingþórsson símaverkstjóri, f. 26. október 1906, d. 31. desember 1976, og Aðalheiður Guðmundsdóttir, f
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 472 orð
| 1 mynd
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir fæddist 24. janúar 1942 á Gerði í Suðursveit. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði 21. maí 2025. Foreldrar hennar voru Guðný Sigurbjörg Jónsdóttir frá Flatey á Mýrum, f. 8
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 606 orð
| 1 mynd
Hjalti Snær Árnason fæddist 9. maí 2002. Hann lést 13. maí 2025. Foreldrar hans eru Gerður Ósk Hjaltadóttir og Árni Jökull Gunnarsson. Systkini hans eru Anna Sunna og Kristján Már. Hann bjó í Dalsgerði 5i á Akureyri
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 1225 orð
| 1 mynd
Hjörtur Valdimarsson fæddist á Skjaldartröð á Hellnum á Snæfellsnesi 7. nóvember 1933. Hjörtur fékk alvarlegt heilablóðfall 18. maí og andaðist 24. maí 2025 á Landspítalanum í Fossvogi. Hann var sonur þeirra Valdimars Kristóferssonar og Guðmundu Júlíusdóttur
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 2683 orð
| 1 mynd
Jón Sören Jónsson fæddist á Akureyri 6. janúar 1941. Hann lést á Vífilsstöðum 22. maí 2025. Foreldrar hans voru hjónin Gyða Sigrún Jónsdóttir húsmóðir, f. 1916, d. 1989, og Jón Björn Benjamínsson húsasmíðameistari, f
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 300 orð
| 1 mynd
Margrét Hauksdóttir fæddist í Reykjavík 3. apríl 1955. Hún lést í sumarhúsi fjölskyldunnar á Hallandaengjum í Flóa 25. maí 2025. Foreldrar Margrétar voru Jón Haukur Gíslason, bóndi og hreppstjóri á Stóru-Reykjum í Hraungerðishreppi, f
MeiraKaupa minningabók
5. júní 2025
| Minningargreinar
| 1066 orð
| 1 mynd
Sigríður Björgvinsdóttir fæddist í Neskaupstað 30. ágúst 1932. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 14. maí 2025. Hún var dóttir hjónanna Björgvins Bjarnasonar, f. 3. febrúar 1908, d. 30. apríl 1976, og Önnu Kristínar Árnadóttur, f
MeiraKaupa minningabók
Á Drangsnesi hefur fiskvinnslan Drangur verið starfrækt sleitulaust í aldarfjórðung. Óskar Torfason hefur staðið í brúnni sem framkvæmdastjóri frá fyrsta degi en hefur þó starfað enn lengur í húsi fiskvinnslunnar, eða í 45 ár
Meira
Viðskipti
5. júní 2025
| Viðskiptafréttir
| 367 orð
| 2 myndir
Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem birt var í gær
Meira
5. júní 2025
| Viðskiptafréttir
| 221 orð
| 1 mynd
Fasteignafélagið Bergey hefur fest kaup á Herkastalanum við Kirkjustræti 2. Bergey keypti Herkastalann á uppboði á 865 milljónir króna en lögreglan samþykkti ekki upphaflegt tilboð fasteignafélagsins sem var töluvert hærra
Meira
Þetta er fjórða sumarið mitt í þessu starfi, ég var sautján ára þegar ég tók þetta að mér fyrst, blautur á bak við eyrun og nánast skegglaus, en ég var nýkominn með bílpróf, sem gerði gæfumuninn því það er í raun ekki hægt að ganga inn í svona…
Meira
„Jeg er fús til að gera hann skaðlausan og kaupa af honum bindin fyrir kostnaðarverð.“ Hér þýðir skaðlaustjónlaus – af viðskiptunum. En „andstæðingar hans lögðu hann í einelti í von um að gera hann skaðlausan“, þ.e
Meira
Magnús Halldórsson las á Mbl.is að ekki væru skýringar á því hvers vegna hauskúpu dagaði uppi í Landsbankanum á Ísafirði: Hvort arðsemi þar auka sog, öldruð Skotta' og Móri? En gæti verið gleymdur og gagnslaus bankastjóri
Meira
Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona og fyrsta konan sem kjörin hefur verið formaður Samtaka íþróttafréttamanna, fór um víðan völl í Ísland vaknar í gærmorgun. Þar ræddi hún meðal annars óvænta uppákomu fyrir landsleik Íslands og Frakklands í…
Meira
40 ára Helgi ólst upp á Kjarlaksvöllum í Dölum og gekk í grunnskóla á Laugum í Dalasýslu. Hann var virkur í íþróttum sem voru í boði í sveitinni, sérstaklega frjálsum íþróttum og fótbolta. Eftir grunnskólann fór hann í framhaldsskóla á Akranesi og lærði þar rafvirkjun
Meira
Sveinn Jóhannsson fæddist 5. júní 1940 á Norðfirði og ólst upp á Miðstræti 24. Hann var einn af tíu systkinum, var sjötta barnið í röðinni og fyrsti strákurinn í fjölskyldunni. „Þegar ég var að fæðast var föðurafi minn heima og hann varð gífurlega kátur þegar ég fæddist
Meira
KópavogurJóel Kári Eyþórsson fæddist 14. ágúst 2024 kl. 3.43. Hann vó 3.535 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Eyþór Bergvinsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.Meira
Staðan kom upp á lokuðu alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Kronborg í Danmörku. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2.528) hafði hvítt gegn sænskum kollega sínum Ralf Åkesson (2.353)Meira
Það hallar undir þinglok, en enn eru að koma ný mál í þingið og fátt sem bendir til að sáttfýsi í helstu málum. Andrés Magnússon ræðir við Sigríði Andersen, þingmann Miðflokks, um vinnubrögð og vandamál á Alþingi.
Meira
„Þetta byrjaði ekkert eins og mann var að dreyma um en síðan er allt liðið búið að ná frábærum stöðugleika í síðustu leikjum, kannski fyrir utan síðustu tvo. En mér finnst mín frammistaða búin að vera allt í lagi og það er alltaf gaman að geta …
Meira
Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Melsungen þegar liðið gerði jafntefli gegn Lemgo, 26:26, í 33. og næstsíðustu umferð þýsku 1. deildarinnar í handbolta á heimavelli í gær. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyrir Melsungen sem eygir veika …
Meira
Er ástæða til að hafa áhyggjur af því að kvennalandsliðið í fótbolta skuli ekki vera búið að vinna neinn af síðustu tíu leikjum sínum? Já, sagði Þorsteinn þjálfari eftir tapið gegn Frökkum. „Auðvitað vill maður vinna alla fótboltaleiki.“ Nei, sagði Glódís fyrirliði
Meira
Indiana Pacers og Oklahoma City Thunder munu berjast um meistaratitilinn í NBA-deildinni eftir að undanúrslitunum lauk í síðustu viku. Fyrsti leikur liðanna hefst í nótt í Oklahoma og að venju er hægt að sjá fyrir sér bæði lið vinna titilinn áður en …
Meira
Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk fyrir Pick Szeged þegar liðið hafði betur gegn Veszprém í öðrum úrslitaleik liðanna í baráttunni um ungverska meistaratitilinn í handbolta í Szeged í gær. Leiknum lauk með öruggum sigri Pick Szeged, 32:27, en…
Meira
Reynir Þór Stefánsson, handknattleiksmaðurinn ungi úr Fram og nýliði í íslenska landsliðinu, er á leið til þýska liðsins Melsungen. Reynir staðfesti við Morgunblaðið að hann væri á förum og viðkomandi félag muni tilkynna komu hans á næstu dögum
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.