Á fullum dampi | Tólgarbræðsla er nú á fullum dampi á Stóruvöllum í Bárðardal eftir miklar hremmingar þar á síðasta ári þegar verksmiðjan brann, ekki einu sinni heldur tvisvar.

Á fullum dampi | Tólgarbræðsla er nú á fullum dampi á Stóruvöllum í Bárðardal eftir miklar hremmingar þar á síðasta ári þegar verksmiðjan brann, ekki einu sinni heldur tvisvar. En Garðar Jónsson forstjóri og hans fólk lét ekki bugast og hefur nú verið reist veglegt hús fyrir framleiðsluna á grunni þess gamla.

Framleiðslan er nú komin á fullt skrið enda bæði útikertin og hamsatólgin þekkt fyrir mikil gæði segir á vef Þingeyjarsveitar.