Hjá Máli og menningu er komin út í kilju Siðprýði fallegra stúlkna . Þetta er þriðja bókin um kvenspæjarann knáa Precious Ramotswe eftir Alexander McCall Smith . Helga Soffía Einarsdóttir þýðir. Í þessari þriðju bók um Kvenspæjarastofu nr.

Hjá Máli og menningu er komin út í kilju Siðprýði fallegra stúlkna . Þetta er þriðja bókin um kvenspæjarann knáa Precious Ramotswe eftir Alexander McCall Smith . Helga Soffía Einarsdóttir þýðir.

Í þessari þriðju bók um Kvenspæjarastofu nr. 1 í Botsvana í Afríku glímir hin eitursnjalla og ómótstæðilega Precious Ramotswe við snúin mál í einkalífi og starfi.

Reksturinn á kvenspæjarastofunni er í járnum, og Ramotswe tekur þá mikilvægu ákvörðun að deila húsnæði með eiginmannsefninu, hr. J.L.B. Matekoni, og þótt í þessu felist hagræðing fyrir bæði fyrirtækin þá þarf hr. Matekoni talsvert á athygli Ramotsve að halda...

Jafnhliða þarf kvenspæjarastofan að glíma við mörg af sínum erfiðustu málum: hátt settur embættismaður telur mágkonu sína ætla að eitra fyrir bróður sínum og vill fletta ofan af henni; í fegurðarsamkeppni kemur í ljós að fegurðardísirnar eru svo illa innrættar að Ramotsve er falið að kanna hver þeirra hefur besta hjartalagið, - og svo er það dularfulli drengurinn sem fannst villtur, nakinn og angaði af ljónum...

Bækur Alexanders McCall Smith um Kvenspæjarastofu númer eitt hafa farið sigurför um heiminn á undanförnum árum. Þetta eru líka einstakar sögur sem hafa að geyma sjaldgæfa blöndu af spennu, gamansemi og mannúð. Áður hafa komið út á íslensku í þessum flokki Kvenspæjarastofa númer eitt og Tár gíraffans.

Bókin er 216 bls. Útgefandi er Mál og menning. Þýðandi: Helga Soffía Einarsdóttir. Verð: 1.799 kr.