Kæra amma Maja, þú ert hjarta og stjarna. Kveðja

Eiríkur Elí Eiríksson.

Kæra amma, mér finnst leiðinlegt að þú þurftir að deyja svona fljótt. Ég vildi að ég gæti hitt þig oftar. Þú varst rosalega góð við mig. Þú varst mjög góð. Þú varst mjög rík. Áttir átta barnabörn. Þú áttir mjög fallegan garð þar sem hægt er að spila fótbolta og klifra í trjánum. Kveðja

Vilhjálmur Þórhallsson.