Í vikunni kemur til landsins víðfrægur og mikilsvirtur bandarískur danskennari, Darrin Henson.
Í vikunni kemur til landsins víðfrægur og mikilsvirtur bandarískur danskennari, Darrin Henson.
EINN af fremstu danshöfundum heims, Darrin Henson, er kominn hingað til lands í boði Dansstúdíós World Class í Laugum til að kynna nýjustu strauma og stefnur í dansi frá New York.

EINN af fremstu danshöfundum heims, Darrin Henson, er kominn hingað til lands í boði Dansstúdíós World Class í Laugum til að kynna nýjustu strauma og stefnur í dansi frá New York. Henson hefur unnið að fjölda myndbanda hjá mörgum af skærustu poppstjörnum heimsins og hefur hlotið verðlaun hjá MTV Music Awards sem besti danshöfundur. Þá starfar hann einnig sem leikari og leikstjóri og hefur m.a. leikið í kvikmyndum á móti Vivicu Fox, Vanessu Williams og í sjónvarpsþáttunum Soul Food í Bandaríkjunum.

Darrin kennir einungis nú um helgina, í dag kl. 18.30-20.30 og á morgun kl. 14-16.

Skráning er hafin hjá Dansstúdíói World Class í Laugum í síma 553-0000.