Búbbólínuhátíð | Hátíðar- og skemmtikvöld til heiðurs Guðbjarti Jónssyni fimmtugum verður haldið í Skútunni, Hólshrauni 3 í Hafnarfirði á morgun, laugardag, kl. 21.

Búbbólínuhátíð | Hátíðar- og skemmtikvöld til heiðurs Guðbjarti Jónssyni fimmtugum verður haldið í Skútunni, Hólshrauni 3 í Hafnarfirði á morgun, laugardag, kl. 21. Vinir og félagar Guðbjarts, sem kenndur er við veitingahúsið Vagninn á Flateyri, og Önfirðingafélagið í Reykjavík standa fyrir samkomunni.

Margt er til skemmtunar og verður samkoman í anda fyrri Búbbólínuhátíða í bland við önnur atriði. Að lokinni skemmtidagskrá leikur hljómsveit Lýðs Árnasonar, Vítamín, fyrir dansi.