Litla Ljót VIÐ í 4. bekk Engjaskóla erum að leita að texta við lag úr leikritinu Litlu Ljót eftir Hauk Ágústsson. Textinn byrjar svona: Þú ert ljót Litla Ljót við erum sætar.
Litla Ljót
VIÐ í 4. bekk Engjaskóla erum að leita að texta við lag úr leikritinu Litlu Ljót eftir Hauk Ágústsson. Textinn byrjar svona: Þú ert ljót Litla Ljót við erum sætar. Ef einhver getur hjálpað okkur þá vinsamlegast hafið samband við Engjaskóla: 5101300 eða með tölvupósti ingbjor6@engjaskoli.is eða hrafnkellg@engjaskoli.is.Bestu kveðjur,
Kennarar og nemendur
4. I og 4. H.
Digital-myndavél í óskilum
DIGITAL-myndavél fannst í kirkjugarðinum í Grafarvogi. Upplýsingar í síma 660-8871.
Geisladiskamappa
Geisladiskamappa var tekin fyrir slysni þegar stúlka ók fólki úr miðbæ Reykjavíkur í Garðabæ aðfaranótt sunnudags. Eigandi möppunnar vinsamlega hafi samband með tölvupósti á netfangið: asdisar@hotmail.com svo hægt sé að koma henni til skila.
Armband týndist
SILFURLITAÐ armband með appelsínugulum steinum tapaðist föstudagskvöldið 11. febrúar, annaðhvort í eða við Gullhamra í Grafarholti eða fyrir utan Select, Vesturlandsvegi. Fundarlaun. Þeir sem gætu gefið upplýsingar hafi samband við Guðrúnu í síma: 5646423 og 8623708.
Úlpa tekin í misgripum
Föstudaginn 25. febrúar sl. var dökkgrá kvenúlpa tekin í misgripum á veitingastaðnum REX. Í vösunum var ýmislegt persónulegt sem eigandinn saknar sárlega. Er viðkomandi vinsamlegast beðinn að skila henni hið fyrsta á REX eða hafa samband í síma 8255562.