Mikið hefur verið að gera hjá Óskari í Bólholti í Fellabæ vegna frosthörku vetrarins, en fyrirtækið sér um að tæma rotþrær og hreinsa stíflur úr klóakrörum. Björn Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri í Djúpavogi, gerði sér í hugarlund að húsfreyjurnar hefðu þurft að halda í sér:
Skeflt er yfir skíta rör
skatnar ráð þín líta snör,
reyndu samt að flýta för,
"freyjur" saman bíta vör.
Og frosthörkurnar eru auðvitað uppgrip fyrir fyrirtækið:
Upp til líta hans ég hlýt,
heila lítinn um þó brýt
við sér slíti dæla drít
svo dafni í flýti aurahít.
Haraldur Hjálmarsson orti þegar Gísli Ólafsson var að grafa skurð í bæjarvinnunni á Króknum um skeið:
Gísli Ólafs mokar möl
og mold til beggja handa.
Hann á ekki á öðru völ
eins og sakir standa.
pebl@mbl.is