FÁLKINN hf. hefur keypt framleiðslurétt á vindmyllum til rafmagnsframleiðslu.

FÁLKINN hf. hefur keypt framleiðslurétt á vindmyllum til rafmagnsframleiðslu.

Seljandi er Hljóðvirkinn sem hefur í um tvo áratugi framleitt og selt vindknúnar rafstöðvar fyrir íslenskar aðstæður til nota við sjálfvirkar veðurathugunarstöðvar, vegamyndavélar, sumarbústaði, fjallakofa, seglskútur og annars staðar þar sem veðurálag er mikið.

Framleiðsla og sala vindmyllanna, sem og viðgerðarþjónusta, verður framvegis hjá þjónustuverkstæði Fálkans.