Garðblómabókin - Handbók um fjölærar skrautjurtir og sumarblóm eftir Hólmfríði A. Sigurðardóttur er komin út. "Garðblómabókin kemur nú út í aukinni og endurskoðaðri útgáfu en fyrsta útgáfa bókarinnar, sem kom út árið 1995, er löngu uppseld.
Garðblómabókin - Handbók um fjölærar skrautjurtir og sumarblóm eftir Hólmfríði A. Sigurðardóttur er komin út.

"Garðblómabókin kemur nú út í aukinni og endurskoðaðri útgáfu en fyrsta útgáfa bókarinnar, sem kom út árið 1995, er löngu uppseld. Talsverðar breytingar hafa orðið á garðblómaflóru á Íslandi síðastliðinn áratug. Í bókinni er þeim breytingum komið til skila. Umfjöllunum um fjölmargar nýjar tegundir hefur verið bætt inn í bókina, en í henni er fjallað um öll algengustu garðblóm í görðum landsmanna," segir í kynningu um bókina.

Úgefandi er Skrudda.