Feluleikur.
Norður | |
♠D10763 | |
♥Á864 S/Enginn | |
♦G93 | |
♣5 |
Vestur | Austur |
♠4 | ♠92 |
♥DG105 | ♥K972 |
♦ÁD6 | ♦K854 |
♣ÁG1072 | ♣863 |
Suður | |
♠ÁKG85 | |
♥3 | |
♦1072 | |
♣KD94 |
Vestur | Norður | Austur | Suður |
-- | -- | -- | 1 spaði |
Dobl | 4 spaðar | Pass | Pass |
Pass |
Hvernig myndi lesandinn spila?
Um leið og blindur birtist horfir sagnhafi framan í fjóra tapslagi - þrjá á tígul og einn á lauf. En þrátt fyrir hagstætt útspil fær vörnin annað tækifæri til að hirða slagina sína, því sagnhafi verður að spila laufi og fría þar niðurkast.
Kannski dugir að spila laufi á kóng í öðrum slag, því vestur er með ÁD í tígli og óttast skiljanlega að hreyfa litinn. Góður varnarspilari gæti þó fundið upp á því að leggja niður tígulásinn. En það er mun þyngra að finna þá vörn ef sagnhafi spilar laufi á NÍUNA í öðrum slag! Vestur fær slaginn ódýrt á tíuna og reiknar ekki með að það liggi lífið á að spila tígli. Hann mun vafalítið spila hjarta áfram og þá nær sagnhafi að trompsvína í laufinu og losa sig við einn tígul úr borði.