Ísafjörður | Fjórtán sóttu um starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Ísafjarðarbæjar en umsagnarfrestur rann út 25. maí. Að sögn Björns Helgasonar núverandi íþrótta- og tómstundafulltrúa verður byrjað að fara yfir umsóknir á morgun.

Ísafjörður | Fjórtán sóttu um starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Ísafjarðarbæjar en umsagnarfrestur rann út 25. maí. Að sögn Björns Helgasonar núverandi íþrótta- og tómstundafulltrúa verður byrjað að fara yfir umsóknir á morgun. Kemur þetta fram á vef Bæjarins besta á Ísafirði.

Þeir sem sóttu um eru Ásgeir Aðalsteinsson, Baldur Ingi Jónasson, Birgitta Baldursdóttir, Guðný Stefanía Stefánsdóttir, Hrafn Franklin Friðbjörnsson, Jakob Þór Haraldsson, Jóhann Króknes Torfason, Jón Björnsson, Jón Hálfdán Pétursson, Leifur Halldórsson, Margrét Halldórsdóttir, Stefán Már Guðmundsson, Unnar Þór Reynisson og Örnólfur Oddsson.