[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Nýjasta mynd Angelinu Jolie , Mr. and Mrs. Smith , gæti kolfallið í aðsókn ef hinir fjölmörgu aðdáendur Jennifer Aniston láta verða af því að sniðganga hana.

Nýjasta mynd Angelinu Jolie , Mr. and Mrs. Smith , gæti kolfallið í aðsókn ef hinir fjölmörgu aðdáendur Jennifer Aniston láta verða af því að sniðganga hana. Framleiðendur myndarinnar óttast að funheitar ástarsenur Angelinu Jolie og Brad Pitt , fyrrverandi eiginmanns Aniston, geti orðið til þess að aðdáendur Aniston kæri sig ekki um sjá myndina. Sá þráláti orðrómur hefur verið ákreiki síðan gerð myndarinnar stóð yfir að Pitt og Jolie hafi átt í ástarsambandi og séu jafnvel enn saman.

Fullyrt er í breskum götublöðum að framleiðendur myndarinnar hafi ákveðið að hafa ástarsenurnar með til að gleðja aðdáendur Jolie en þeir sjái eftir því nú.

"Ég vil ekki fæla frá bíógesti sem eru harðir aðdáendur Jennifer Aniston og munu hata Angelinu Jolie ef ástarsenurnar eru of heitar," sagði Doug Liman , leikstjóri myndarinnar, í viðtali við dagblaðið Daily Mirror. "Fólk mun fara á myndina, sjá ástarsenurnar og segja: Jæja, svona fór Angie að því, hún notaði klókindi til að tæla hann."

Hótelerfinginn og samkvæmisljónið Paris Hilton er búin að trúlofa sig. Það er gríski skipaveldiserfinginn Paris Latsis , kærasti hennar til fimm mánaða, sem er sá heppni. "Þau eru hamingjusöm og spennt," sagði Rob Shuter , talsmaður Hilton. Latsis bað hennar síðastliðinn miðvikudag en ekki er búið að ákveða brúðkaupsdaginn.

Hvorugt þeirra hefur verið gift áður. Litla systir Hilton, Nicky, náði að gifta sig á undan henni, í ágúst í fyrra, en hjónabandið var ógilt eftir minna en þrjá mánuði.

Hilton, sem er 24, ára, hefur verið vinsæl hjá slúðurpressunni síðustu mánuði, m.a. fyrir að birtast á kynlífsmyndbandi og lenda í því að símanúmerabókinni hennar var stolið og númerin birt á Netinu.

Hún leikur nú í hryllingsmyndinni House of Wax og hamborgarauglýsingu sem hefur vakið mikla athygli og reiði þar sem sumir telja hana of grófa.