Basarinn er í dag KONUR í Thorvaldsensfélaginu halda upp á 104 ára afmæli Thorvaldsensbazarsins í dag, miðvikudaginn 1. júní, en ekki í gær eins og misritaðist í blaðinu í gær.

Leiðrétting 1. júní. Basarinn er í dag

KONUR í Thorvaldsensfélaginu halda upp á 104 ára afmæli Thorvaldsensbazarsins í dag, miðvikudaginn 1. júní, en ekki í gær eins og misritaðist í blaðinu í gær. Í tilefni dagsins bjóða félagskonur upp á kaffi og pönnukökur í versluninni frá kl. 10-18. Beðist er velvirðingar á þessu ranghermi.