GUÐJÓN Þórðarson, nýráðinn knattspyrnustjóri enska 3. deildarliðsins Notts County, neitaði því í gær á vef félagsins að sonur hans, Þórður Guðjónsson, væri á leiðinni til hans. Fréttir um það hafa verið í gangi í enskum fjölmiðlum síðustu daga.
GUÐJÓN Þórðarson, nýráðinn knattspyrnustjóri enska 3. deildarliðsins Notts County, neitaði því í gær á vef félagsins að sonur hans, Þórður Guðjónsson, væri á leiðinni til hans. Fréttir um það hafa verið í gangi í enskum fjölmiðlum síðustu daga. "Þórður er góður leikmaður en hann er leikmaður Stoke City og á eitt ár eftir af samningi sínum þar. Við höfum ekki efni á honum og það er því ekkert til í þessum sögum. Við höfum mjög takmarkað fjármagn og verðum að vinna samkvæmt því. Það var viðbúið að hann yrði orðaður við okkur en Þórður kemur ekki hingað, það er alveg á hreinu," sagði Guðjón.