Í KVÖLD verður haldið Spunakvöld í Klink og Bank eins og gert hefur verið að undanförnu fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Í kvöld verður árs afmæli fagnað.

Í KVÖLD verður haldið Spunakvöld í Klink og Bank eins og gert hefur verið að undanförnu fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Í kvöld verður árs afmæli fagnað. Í tilkynningu frá aðstandendum kemur eftirfarandi fram:

"Markmið Spuna er að stuðla að almennum spuna, í hvaða formi sem er. Öllum er velkomið að taka þátt, eina skilyrðið er að viðkomandi mæti á undirbúningsfund og tilkynni atriði sitt til þátttöku. Þátttaka og áhorf eru öllum heimil að endurgjaldslausu."

Afmælið hefst kl. 20.00.

Að venju er öllum heimil þátttaka sem fylgja nokkrum einföldum reglum

Spunakvölda.

1. Mæta ekki síðar en kl. 21.00 þegar undirbúningsfundur hefst.

2. Tilkynna þar sitt atriði og raðast í dagskrá.

3. Hefja sinn spuna á þeim tíma sem dagskrá segir til um.