MICHAEL Owen skoraði öll þrjú mörk Englendinga þegar þeir sigruðu Kólumbíu, 3:2, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór á Giants-leikvanginum í New Jersey í Bandaríkjunum í gærkvöld.
MICHAEL Owen skoraði öll þrjú mörk Englendinga þegar þeir sigruðu Kólumbíu, 3:2, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór á Giants-leikvanginum í New Jersey í Bandaríkjunum í gærkvöld. Þetta var önnur þrenna Owens fyrir enska landsliðið en sú fyrri var í 5:1 sigri á Þjóðverjum í München fyrir fjórum árum. Owen skoraði mörkin á aðeins 22 mínútna kafla, sitt hvorum megin við leikhlé, eftir sendingar frá Joe Cole, Peter Crouch og David Beckham. Hann hefur nú gert 32 mörk fyrir enska landsliðið og komst í fjórða sætið á markalistanum, fór uppfyrir Alan Shearer. Fyrir ofan eru Bobby Charlton með 49 mörk, Gary Lineker með 48 og Jimmy Greaves með 44 mörk.