HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu tæplega 10,5 milljörðum króna , þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir tæplega 7 milljarða. Mest hækkun varð á bréfum Burðaráss, 4,6%, en mest lækkun varð á bréfum OgVodafone, -1%.

HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu tæplega 10,5 milljörðum króna , þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir tæplega 7 milljarða.

Mest hækkun varð á bréfum Burðaráss, 4,6%, en mest lækkun varð á bréfum OgVodafone, -1%.

Úrvalsvísitala aðallista hækkaði um 0,87% og er nú 4.041 stig.