— Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík | Nú hafa börnin í Vík tekið gleði sína. Búið er að hleypa vatninu á vatnsrennibrautina í nýju sundlauginni. Var það gert við formlega athöfn og var fagnað ógurlega, ekki síst af börnunum sem nýttu sér þessa nýju aðstöðu til hins ýtrasta frá byrjun.
Vík | Nú hafa börnin í Vík tekið gleði sína. Búið er að hleypa vatninu á vatnsrennibrautina í nýju sundlauginni. Var það gert við formlega athöfn og var fagnað ógurlega, ekki síst af börnunum sem nýttu sér þessa nýju aðstöðu til hins ýtrasta frá byrjun. Mýrdælingar hafa verið að safna fyrir rennibrautinni frá því laugin var opnuð síðastliðið haust.