HANNES Þ. Sigurðsson framherji U-21 árs landsliðsins verður í leikmannahópi A-landsliðsins sem leikur gegn Möltu í kvöld. Hannes kemur í hópinn í stað Gylfa Einarssonar sem leikur með Leeds United en Gylfi er meiddur.
HANNES Þ. Sigurðsson framherji U-21 árs landsliðsins verður í leikmannahópi A-landsliðsins sem leikur gegn Möltu í kvöld. Hannes kemur í hópinn í stað Gylfa Einarssonar sem leikur með Leeds United en Gylfi er meiddur. Óvíst er hvort Heiðar Helguson framherji Watford getur leikið í kvöld. Hann æfði ekki með íslenska liðinu í gær vegna veikinda. Ásgeir Sigurvinsson þjálfari íslenska liðsins segir að Heiðari hafi ekki liðið vel undanfarna daga. Ásgeir vonaðist þó til þess að Heiðar yrði með í leiknum í kvöld.