Teknir með fíkniefni | Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa undir höndum 157 grömm af hassi og 4,21 gramm af amfetamíni.

Teknir með fíkniefni | Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa undir höndum 157 grömm af hassi og 4,21 gramm af amfetamíni. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða 70 þúsund krónur í sekt. Þá var hann sviptur ökuleyfi í hálft ár fyrir ölvunarakstur.

Maðurinn var ásamt tveimur öðrum mönnum í bíl, sem lögreglan á Akranesi stöðvaði á Vesturlandsvegi við Kúludalsá í janúar á þessu ári. Fíkniefnin fundust í bílnum en samkvæmt ákæru hugðust mennirnir flytja þau til Akureyrar og selja hluta þeirra.