BECHTEL, sem byggir álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð og Samskip hafa gert með sér samning um uppsetningu og rekstur á risakrana við hina nýju álvershöfn.
BECHTEL, sem byggir álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð og Samskip hafa gert með sér samning um uppsetningu og rekstur á risakrana við hina nýju álvershöfn. Kraninn mun verða settur upp og starfræktur af Samskip og verða notaður við uppskipun á stórförmum og gámum með hráefni til álverksmiðjunnar. Samskip munu setja kranann upp í júlí og á hann að verða tilbúinn 30. júlí.