Hjartans þökk frá Borgnesingum | Sigrún Símonardóttir stýrði nýlega sínum síðasta fundi sem formaður félagsmálanefndar Borgarbyggðar en hún og eiginmaður hennar, Ólafur Steinþórsson, fluttu til Reykjavíkur í vor eftir að Sigrún lét af störfum á...

Hjartans þökk frá Borgnesingum | Sigrún Símonardóttir stýrði nýlega sínum síðasta fundi sem formaður félagsmálanefndar Borgarbyggðar en hún og eiginmaður hennar, Ólafur Steinþórsson, fluttu til Reykjavíkur í vor eftir að Sigrún lét af störfum á sýsluskrifstofunni og fór á eftirlaun.

Páll Brynjarsson bæjarstjóri afhenti Sigrúnu blómvönd af þessu tilefni en hún hefur í áratugi tekið virkan þátt í sveitarstjórnarmálum í Borgarnesi og Borgarbyggð, var bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar og hefur setið í ótal nefndum á vegum bæjarins. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Sigrún verið formaður félagsmálanefndar, barnaverndarnefndar og stjórnar Dvalarheimilisins.

Blómvendinum fylgdu þakkir í bundnu máli, að því er fram kemur á vef Borgarbyggðar: Nú hlýturðu frelsi og frí alla daga/ fegurðar nýtur í Breiðholtsþingum./ Farsælum störfum skal haldið til haga/ með hjartans þökk frá Borgnesingum.