Björg Hjördís Ragnarsdóttir fæddist á bænum Sandbrekku, Fáskrúðsfirði, 30. apríl 1930. Hún lést á líknardeild Landspítans í Kópavogi 1 júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ragnar Sigurðsson, f. 17. júní 1902, d. 14. september 1964. og Unnur Hjartardóttir, f. 28. janúar 1909, d. 1931. Alsystir Hjördísar hét Ragnheiður f. 1929, d. 1981. Systurnar Hjördís og Ragnheiður voru teknar í fóstur kornungar eftir lát móður þeirra af Hóseasi Björnssyni og Ingibjörgu Bessadóttur að Höskuldsstaðaseli í Breiðdal. Uppeldissystkini þeirra eru séra Kristinn, Ragnheiður, Sigrún og Helgi. Hálfsystkini Hjördísar henni samfeðra voru þrjú, Unnur Svanhildur f. 1940, d. 1994. Þórey, f. 1941, d. 2001, og Eiríkur Björn, f. 1942, d. 1995.

Eiginmaður Hjördísar er Tómas Ó. Tómasson húsasmíðameistari, f. 7. júní 1930, þau voru gefin saman árið 1953. Foreldrar Tómasar voru Tómas Magnússon, f. 10. febrúar 1897, d. 29. maí 1975 og Ólína Eyjólfsdóttir f. 15. desember 1902, d. 8. september 1981. Börn Hjördísar og Tómasar eru: 1) Ragnar, f. 1949, kvæntur Sigurveigu Björnsdóttur f. 1950. Börn þeirra eru Hjördís, Björn, Erna og Björg. Sonur Ragnars frá fyrra hjónabandi hét Ragnar Halldór, d. 1976. 2) Ólafur Ingi, f. 1953, kvæntur Önnu Pálsdóttur, f. 1952. Börn þeirra eru: Páll og Hjördís Ýr. 3) Unnur Ósk, f. 1957.

Börn hennar eru Tómas Þorgeirsson, Guðbjörg Þorgeirsdóttir og Sigríður Ósk Ingvarsdóttir.

Hjördís fluttist til Reykjavíkur árið 1946 og nam í Húsmæðraskóla Reykjavíkur, hún vann ýmis störf en lengst af vann hún á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur ásamt húmæðrastörfum. Hjördís var mikil hannyrðakona og eftir hana liggja mikil og stórglæsileg hannyrðaverk af ýmsum stærðum og gerðum.

Útför Hjördísar fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi í dag og hefst athöfnin klukkan 15.

Elskuleg tengdamamma mín kvaddi þennan heim á fallegum morgni eftir hetjulega baráttu við sjúkdóm sinn. Þó veikindi Hjördísar hafi verið erfið þá var alltaf stutt í húmorinn hjá henni. Það er erfitt að hugsa til þess að hún sé farin frá okkur.

Það var fastur liður að kíkja til ykkar hjónanna í kaffi á sunnudögum þar sem alltaf var uppdekkað borð með bróderuðum dúk og kræsingum. Margar ánægjulegar stundir áttum við og fjölskyldan saman við eldhúsborðið.

Þau hjónin voru samstíga í að hafa heimilið sitt fallegt og snyrtilegt. Hjördís var mikil hannyrðakona og eftir hana eru mörg listaverk á heimilum allra barna og barnabarna hennar og má þar nefna alls kyns jólamuni. Ósjaldan gætti hún barnabarnanna þegar þau voru ung og þeim fannst alltaf jafn spennandi að fá að sofa hjá ömmu og afa. Í sumarfríum voru barnabörnin oft tekin með í sumarbústaði og er þessara ferða oft minnst.Við nutum þess að hafa Hjördísi með í för þegar yngsta barnabarnið var fermt á Sauðárkróki í apríl sl. Talaði hún um þessa ferð og var þakklát fyrir að hafa haft heilsu til ferðarinnar. Á milli okkar Hjördísar var alltaf gott og sérstakt samband sem ég hef alltaf metið mikils, hún var ekki bara tengdó heldur vorum við miklar vinkonur.

Að leiðarlokum vil ég elsku Hjördís þakka þér fyrir samfylgdina, allt sem þú veittir mér og fjölskyldu minni með þinni ást og umhyggju og megi góður Guð veita Tomma þínum og fjölskyldunni styrk til að takast á við sorgina og missinn.

Anna.

Elsku amma mín.

Ég bjóst ekki við því þegar ég kvaddi þig og afa eftir jólin, áður en ég fór aftur til Ítalíu að það yrði síðasta skiptið sem ég hitti þig. Við fengum fréttir af veikindunum þegar mamma og pabbi voru í heimsókn hjá mér, þá bjóst ég ekki við að þetta væri svona slæmt því maður reynir víst alltaf að búast við því besta. Mér þykir leiðinlegt að hafa ekki fengið tækifæri til þess að hitta þig og kveðja almennilega. Ég fékk þó að tala við þig í símann um daginn og þá var röddin í þér góð og þú talaðir eins og ekkert væri að, með húmorinn í lagi og ótrúlega sterk. Mamma, pabbi og Palli sögðu mér nánast á hverjum degi frá heilsu og líðan þinni en þau nefndu alltaf hversu mikill djókari þú varst þrátt fyrir veikindin.

Á hverjum sunnudegi var farið til ömmu og afa í Kópó, en þar var alltaf spjallað yfir veglegum kræsingum. Þegar ég var yngri fengum við systkinin að gista og það leiddist engum hjá ömmu og afa. Það var alveg ótrúlegt hvað þú nenntir að spila mikið við okkur. Það var spilaður ólsen ólsen eða veiðimaður, farið með afa í sund, keypt nammi, vakað yfir sjónvarpi fram eftir nóttu og svo sofið alveg til hádegis.

Á hverjum jólum var gapað yfir öllum mununum sem þú varst búin að búa til þar sem engin smávinna lá að baki. En þér fannst svo gaman að búa til hluti í höndunum og enginn átti orð yfir þessum myndaskap en allir urðu að fá eitthvað fallegt. Þessir hlutir eru án efa stór hluti af minningunni um þig og munu án vafa skreyta íbúðir barna og barnabarna þinna.

Núna situr þú uppi á himnum, fylgist með okkur og saumar handa englunum okkar. Eitt sem ég veit er að ég er rosalega stolt og heppin að hafa átt þig sem ömmu og að fá að bera nafn þitt. Takk fyrir allt og gerðu englana glaða eins og þú gerðir okkur glöð, ég veit að þú ert að því núna. Þetta er mikill missir fyrir okkur og allra mest fyrir afa en ég veit að hann er sterkur maður eins og þú varst sterk kona.

Þúsund kossar og kveðjur til himna, þín sonardóttir,

Hjördís Ýr Ólafsdóttir.

Elsku amma, ég kveð þig með miklum söknuði en í sorg minni rifjast upp ógrynni minninga um þær stundir sem við áttum saman og hve mikil áhrif þú hafðir á mig. Meðal þess sem ég minnist er hve mikinn áhuga þú hafðir á því hvað við barnabörnin vorum að gera og hvað var að gerast í kringum okkur. Þá verða alltaf í minningu minni þær fjölmörgu helgar sem ég og Tommi fengum að eyða hjá þér og afa og fjörugar samræður okkar við eldhúsborðið um bókstaflega allt á milli himins og jarðar.

Þú varst og verður ein elskulegasta og skemmtilegasta manneskja sem ég hef kynnst og ég þakka allt það sem þú hefur gefið mér. Ég sendi hlýjar kveðjur til allra þeirra sem hafa notið nærveru þinnar og þurfa að kveðja þig á þessari hinstu stundu.

Páll Ólafsson.

Elsku amma mín, nú hefur Guð tekið þig til sín og ég vona að þér líði vel við hlið hans. Það er sárt að kveðja þig og söknuður minn er ólýsanlegur. Það er ekki aðeins ástkær amma mín sem hefur hvatt okkur heldur góð vinkona. Ég er ævinlega þakklát fyrir að hafa þekkt þig og átt þig að, þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og veitt mér mikinn styrk þegar ég hef átt erfitt. Við náðum svo vel saman og vorum með þó nokkuð líkar skoðanir á hlutunum þrátt fyrir mikinn aldursmun. Við gátum talað um allt milli himins og jarðar og ég gleymi aldrei þeim stundum sem við sátum við eldhúsborðið í Efstahjallanum, hlógum saman, borðuðum góðu kökurnar þínar og spjölluðum um daginn og veginn. Minningarnar um þig eru allar góðar og svo margar, ég geymi þær í hjarta mínu á meðan ég lifi.

Þú varst alltaf svo hress og skemmtileg og þrátt fyrir að hafa þurft að glíma við langvarandi veikindi og sársauka gastu alltaf sagt brandara og brosað í gegnum tárin, styrkur þinn var mikill og ég er svo stolt að því að vera barnabarn þitt.

Mín elskulega amma, ég kveð þig nú með þessum fallega sálmi.

Nú hverfi oss sviðinn úr sárum

og sjatni öll beiskja í tárum,

því dauðinn til lífsins oss leiðir,

sjá, lausnarinn brautina greiðir.

(Þýð. Sigurbjörn Einarsson.)

Hjördís Ragnarsdóttir.

Elsku amma mín, það er svo sárt að kveðja þig. Þú varst mér allt, mín besta vinkona. Ég mun ætíð minnast þín sem frábærrar konu sem tók alltaf vel á móti manni. Þú ert hetjan mín því þú gafst aldrei upp þó þú fyndir til og þegar þér leið illa.

Það verður skrýtið að halda áfram án þín, því alltaf þegar það liðu meira en tveir dagar án þess að ég heyrði í þér þá var það alltof langur tími í hugum okkar beggja.

Ég var vön að koma til þín á næstum hverjum einasta degi síðan ég fæddist. Leikskólinn minn var líka beint á móti íbúðinni þinni og skólinn minn ekki nema 300 metra frá, svo það var ekki langt að fara ef maður vildi koma til þín. Og alltaf fékk ég nýjar lífslexíur eða góð ráð frá þér.

Við gátum talað um allt á milli himins og jarðar og mjög oft vorum við ósammála um hluti og þá var gaman hjá þér því við skemmtum okkur best yfir léttu þrasi við eldhúsborðið þar sem þú varst í tíma og ótíma með þinn kaffibolla og þína sígarettu. Eldhúsborðið var aðalstaðurinn, þar sem við spiluðum olsen olsen og borðuðum vöfflur með rabarbarasultu og rjóma, eða heitt hermannakakó og snúð.

Þú gafst mér svo mikið og baðst aldrei um neitt í staðinn nema kannski smáþras af og til.

Alltaf mun ég hafa þessar frábæru minningar, eins og þegar mamma var að vinna þegar ég var lítil, eins og kom fyrir mjög oft þá fékk ég að gista heima hjá þér á dýnu á gólfinu við hliðina á rúminu þínu sem þú kallaðir alltaf ömmuskot, og líka þegar ég fór út, þá sagðir þú alltaf "Ekki fara langt í burtu, ömmuhús".

Þú varst alltaf svo góð og skemmtileg og með frábæran húmor sem við dáðum öll, og þú hélst þínum húmor til dánardags.

Elsku amma mín, Takk fyrir allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman og megi Guð geyma þig og varðveita. Þú ert og verður alltaf skvísan mín.

Megi Guð gefa okkur öllum styrk til að halda áfram án þín, þar til við hittumst á ný.

Guð blessi þig amma mín.

Þín

Guðbjörg.

Mikið tómarúm hefur skyndilega myndast. Amma Hjördís er dáin.

Fyrir tæplega 5 árum kynnti Tommi mig fyrir ömmu Hjördísi og afa Tómasi í Efstahjallanum, enda þeim sem sonur. Við amma Hjördís náðum strax vel saman. Eftir vinnu kom ég við til að spjalla. Hún var alltaf að gera eitthvað í höndunum. Handavinnan sem amma Hjördís gerði er algjört listaverk og ömmu var mikið í mun að virðing væri borin fyrir henni enda mikið í hvern hlut lagt.

Ömmusósa er eitt af því sem er orðinn hluti af búskap okkar Tomma, enda engin venjuleg sósa þar á ferð. Við borðuðum oft hjá ömmu og afa og alltaf var veislumatur á borðum, allt til alls.

Þegar við Tommi eignuðumst Tómas Pálmar í janúar 2004 komu amma Hjördís og afi strax fyrsta daginn til að kíkja á prinsinn. Mér kemur upp í hugann eitt skipti þegar ég fór í bæjarferð þegar Tómas Pálmar var nýfæddur og hann var heima hjá pabba sínum. Eftir smá tíma fór prinsinn að vera eitthvað órólegur. Hann var heppinn því að langamma kom í heimsókn og hann fékk þetta fína fótanudd og var alveg alsæll.

Ef tveir til þrír dagar liðu frá því að við, fjölskyldan, komum í heimsókn í Efstahjallann eða létum í okkur heyra tók amma Hjördís upp símann bara til að heyra í okkur. Rosalega þótti mér vænt um það. Hún vildi okkur allt fyrir bestu. Ótrúleg hlýja og ást streymdi frá henni allt fram á síðasta dag.

Við gerðum ráð fyrir því að amma Hjördís yrði með okkur nú á vordögum þegar við Tommi giftum okkur. Því miður var það ekki hægt. Við fórum í öllum skrúðanum á sjúkrahúsið og það þótti ömmu vænt um. Það er stutt á milli gleði og sorgar því daginn eftir brúðkaupið var ljóst í hvað stefndi. "Þetta verður allt í lagi" sagðir þú þegar við komum að heimsækja þig. Þú lofaðir að vera alltaf með okkur og klóra okkur í hnakkann.

Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og sakna þín.

Elsku Tommi ég veit að þú hefur misst mikið. Guð gefi þér styrk til að takast á við sorgina.

Ég bið góðan Guð að styrkja afa og aðra aðstandendur í þessari miklu sorg.

Sædís Magnúsdóttir.

Kveðja til langömmu.

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sig. Jónsson frá Presthólum.)

Elsku amma Hjördís (langamma). Við fengum stuttan tíma saman en þú varst mér alveg sérstaklega góð. Vildir alltaf passa mig og fá að vera með mér. Ég elska þig og á eftir að sakna þín mjög mikið.

Tómas Pálmar Tómasson.