Ísafjörður | Kómedíuleikhúsið á Ísafirði hefur fest kaup á samkomuhúsinu í Haukadal í Dýrafirði. Elfar Logi Hannesson forsvarsmaður þess segir í samtali við Bæjarins besta að ekki sé nákvæmlega ljóst hvað gert verður við húsið.
Ísafjörður | Kómedíuleikhúsið á Ísafirði hefur fest kaup á samkomuhúsinu í Haukadal í Dýrafirði. Elfar Logi Hannesson forsvarsmaður þess segir í samtali við Bæjarins besta að ekki sé nákvæmlega ljóst hvað gert verður við húsið. Sér hafi þótt húsið fallegt og þess virði að kaupa það þegar það var auglýst.Til stendur að sýna einþáttunginn Gísla Súrsson í Haukadal í sumar. Elvar Logi hefur sýnt hann á Vestfjörðum og víðar í vetur og vor. Samkomuhúsið var byggt á fjórða áratug síðustu aldar og er um 100 fermetrar að stærð.