Pétur hættir | Tilkynnt var við skólaslit Öxarfjarðarskóla að Pétur Þorsteinsson, aðstoðarskólastjóri, fyrrverandi skólastjóri og kennari við skólann í um þrjátíu ár, léti af störfum í sumar.
Pétur hættir | Tilkynnt var við skólaslit Öxarfjarðarskóla að Pétur Þorsteinsson, aðstoðarskólastjóri, fyrrverandi skólastjóri og kennari við skólann í um þrjátíu ár, léti af störfum í sumar. Hann hefur ráðið sig sem skólastjóra Hallormsstaðarskóla í Fljótsdal. Á vefnum, dettifoss.is, kemur fram að Pétur nefndi að ein af ástæðum þess að hann hætti væri árekstur hans við sveitarstjóra í vetur og ósamkomulag þeirra á milli varðandi verkefni hans.