Ian Campbell
Ian Campbell
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.
Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is

UMHVERFISRÁÐHERRA Ástralíu, Ian Campbell, hefur brugðist ókvæða við bréfi Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra, en þar gagnrýndi Árni Ástrali fyrir að andmæla vísindahvalveiðum Íslendinga í ljósi þess að Ástralir stundi sjálfir umfangsmikla fækkun á úlföldum og kengúrum. Campbell segir hneykslanlegt af Árna að bera saman hvalveiðar og grisjun úlfalda og kengúra, þessu sé ekki saman að líkja. Á dögunum sagði Campbell hvalveiðar Íslendinga ganga þvert á ákvörðun meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins og að ekki þyrfti að slátra hvölum til að rannsaka þá. Þá lýsti Campbell sig andsnúinn vísindaveiðunum, sem hann sagði illa dulbúnar hvalveiðar í hagnaðarskyni.

Árni Mathiesen segist munu svara athugasemdum Campbells efnislega á næstu dögum, en hins vegar sé hann meira hissa á óvönduðum kveðjum sem Campbell sendir sjávarútvegsráðherra.

Spurt um veiðar á kengúrum og úlföldum

Um miðjan mánuðinn sendi Árni Mathiesen Campbell bréf þar sem hann sagði m.a. að samkvæmt ályktun um aðferðir við hvalveiðar séu stjórnvöld ekki eingöngu hvött til að leggja fram upplýsingar um hvalveiðar, heldur einnig sambærilegar upplýsingar um veiðar á öðrum stórum spendýrum. Í því sambandi sé áhugavert að skoða veiðar á þúsundum villtra úlfalda í Ástralíu, en dýrin séu skotin úr þyrlu. Auk þess séu milljónir kengúra veiddar árlega í landinu. Sagði Árni að í ljósi þess hversu mikinn áhuga Campbell hafi á aðferðum Íslendinga við hvalveiðar gerði hann ráð fyrir því að Ástralir muni leggja fram gögn um veiðar sínar á úlföldum og kengúrum.

Fréttavefurinn news.com.au kveður Campbell hafa sagt: "Er maðurinn fífl? Er hann að fara fram á að við leggjum fram nákvæmar upplýsingar um líffjölbreytni á beitarlöndum á fundi um hvali? Þeir ættu að skammast sín fyrir þetta."

Ekki vanur slíku orðbragði

Segir Campbell ennfremur fráleitt að bera saman hvalveiðar og fækkun á kengúrum og úlföldum. Gífurleg fjölgun úlfalda og kengúra á bújörðum og beitarlandi í Ástralíu hafi leitt til þess að í umhverfisverndarskyni hafi reynst nauðsynlegt að fækka þessum dýrum. "Að láta sér detta í hug að bera saman fækkun á kengúrum, sem gerð er í því skyni að vernda umhverfið, og hvalveiðar er hneykslanlegt," er haft eftir Campbell.

"Ég er afskaplega hissa á þessu orðbragði mannsins," segir Árni Mathiesen um orðljótar athugasemdir Campbells. Árni telur það síst venju í samskiptum milli vestrænna ríkja að leggja sér slík fúkyrði í munn. "Það var ekki eins og við værum að gagnrýna hann beinlínis fyrir þessar aðgerðir þeirra, en ég hef greinilega hitt á einhvern veikan blett. Ég var eingöngu að minna hann á að skila inn upplýsingum sem Ástralir hafa beðið hann um að skila inn.

Ég mun auðvitað svara þessu efnislega á næstu dögum, en ég þarf eiginlega að leita mér upplýsinga hjá mér fróðari mönnum um hvernig maður svarar svona orðbragði. Maður er bara ekki vanur því að menn tjái sig svona á þessum vettvangi."