Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is GEORGE W.
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is

GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að skipulögð hefði verið mesta neyðaraðstoð sem sögur fari af í Bandaríkjunum til hjálpar fórnarlömbum fellibylsins Katrínar, sem skall á nokkrum sambandsríkjum við Mexíkóflóa á mánudag. Forsetinn sagði að um einhverjar mestu náttúruhamfarir í sögu landsins væri að ræða. "Uppbyggingin mun taka langan tíma...mörg ár," sagði forsetinn eftir að hafa kannað ástandið úr lofti.

Ekki er enn ljóst hve margir létu lífið í hamförunum en óttast að um þúsundir sé að ræða, eignatjónið er gífurlegt og milljónir manna eru enn án rafmagns. "Tala látinna á eftir að hækka geysilega," sagði Harold Cross, undirhershöfðingi og yfirmaður þjóðvarðliðsins í ríkinu Mississippi, en þar er talið að manntjónið hafi verið mest.

Herskip send til Mexíkóflóa

Varnarmálaráðuneytið í Washington hefur sent fjölda hermanna, herskipa og þyrlna til að aðstoða við hjálparstarfið en sums staðar er enn verið að ná í fólk sem hefst við á húsþökum á flóðasvæðunum. Flugvélamóðurskipið USS Harry S. Truman verður sent að ströndinni við Mexíkóflóa og verður notað sem fljótandi miðstöð fyrir björgunaraðgerðir. Víða er skortur á mat og nothæfu drykkjarvatni. Ljóst er að finna þarf bráðabirgðaheimili handa mörg hundruð þúsund manns og enn fljóta lík á götum New Orleans og víðar. Miklir hitar eru á svæðinu og óttast að sjúkdómar eins og kólera geti breiðst út þegar líkin fara að rotna.

"Ég hef fullan skilning á því að fólk vill að aðgerðirnar hefðu hafist í gær," sagði Bush í útvarpsviðtali í Hvíta húsinu í gærmorgun. "Ég skil vel kvíða fólks... En ég vil að fólk viti að von er á mikilli aðstoð," sagði forsetinn. Hann sagði að taka yrði hart á öllum sem misnotuðu sér neyðarástandið með því að stela og ræna, einnig yrði að refsa þeim sem notfærðu sér skort á bensíni til að okra á fólki eða reyndu að svindla á tryggingafélögum.

Bush var gagnrýndur í fjölmiðlum fyrir að bregðast of seint við ástandinu og birti dagblaðið The New York Times hvassyrtan leiðara í gær þar sem Bush var sagður hafa sýnt skort á leiðtogahæfileikum. Einnig er gagnrýnt að ekki hafi verið veitt nægilega mikið fé til að efla flóðavarnir við New Orleans síðustu árin þótt margir sérfræðingar hafi lengi varað við því að öflugustu fellibyljir gætu valdið miklu manntjóni á svæðinu ef flóðgarðar brystu. Borgin liggur að miklu leyti undir sjávarmáli.

Skotið á björgunarþyrlu

Byrjað var að flytja nauðstadda frá Superdome-leikvanginum til Houston í Texas-ríki í gær en þar er ætlunin að allt að 25.000 manns fái bráðabirgðahæli á gömlum leikvangi, Astrodome. Aðstæður á Astrodome þykja mun betri en á Superdome, þar er loftkæling, sem ekki var fyrir hendi á Superdome. Lasburða fólk var flutt á brott frá New Orleans þegar í gærmorgun og farið var með það í neyðarskýli í borginni Baton Rouge í Louisiana.

Björgunaraðgerðum við Superdome-leikvanginn var þó slegið á frest í gær þegar skotið var á Chinook-herþyrlu sem notuð var til að ná í nauðstatt fólk á leikvanginum. Einnig var talsvert um íkveikjur í hverfinu við leikvanginn sem torveldaði strætisvögnum að aka þangað og lýstu sumir ástandinu sem skelfilegri ringulreið vegna þess að allt of fáir lögreglumenn væru á staðnum.

Fjöldi fólks úr húsum í grennd við Superdome-leikvanginn flykktist að honum til að fá far með vögnunum. Heimildarmenn sögðu að bráðaliðar, sem sendir hefðu verið til að veita aðstoð í borginni, væru víða dauðskelfdir vegna þess að margir hinna nauðstöddu á leikvanginum og annars staðar veifuðu byssum. Er fullyrt að í sumum hverfum hafi vopnaðir glæpamenn bókstaflega tekið völdin.

Ráðamenn í Louisiana vilja að allir íbúar New Orleans sem eftir eru yfirgefi staðinn sem fyrst og mun vera áformað að senda mörg þúsund lögreglumenn og þjóðvarðliða af stað til að koma á lögum og reglu. Ljóst þykir að flestir hinna 80.000 borgarbúa sem enn eru eftir af þeim 200.000 sem ekki héldu á brott þegar viðvaranir bárust um helgina séu úr röðum fátækra blökkumanna.

Mörg þúsund manns höfðust enn við á Superdome-leikvanginum síðdegis í gær, þrátt fyrir rafmagnsleysi og yfirfull salerni. Skothríðin á þyrluna kom í kjölfar fregna um vaxandi ofbeldi og þjófnað í borginni. Ray Nagin borgarstjóri hefur skipað mestöllu lögregluliði borgarinnar að hætta neyðaraðstoð og snúa sér að því að koma böndum á þjófa. Skotið hefur verið nokkrum sinnum á lögreglumenn og flutningabílum með birgðum til nauðstaddra er sagt hafa verið rænt.

Hætta á sjúkdómum

Nær ekkert nothæft drykkjarvatn er í New Orleans, fimm milljónir manna á hamfarasvæðunum eru án rafmagns og rotnandi lík mörg hundruð fórnarlamba flóðanna fljóta í vatnsborðinu víða um borgina. Eru sjúkdómar á borð við kóleru taldir geta breiðst út. Drjúgur hluti af olíuiðnaði Bandaríkjanna er á hamfarasvæðunum og er vitað um alls 20 borpalla á Mexíkóflóa sem virðast hafa slitnað upp og eru horfnir. Ríkisstjórnin í Washington hefur þegar gripið til þess ráðs að opna olíubirgðastöðvar sem ætlaðar eru til að bregðast við í neyðartilfellum. Er vonast til að þannig megi draga úr verðhækkunum á eldsneyti.