HYUNDAI-merkið er metið á 3,48 milljarða bandaríkjadala í síðustu úttekt Interbrand Corp. á verðmætustu vörumerkjum heims, 2005 Global Brand Scoreboard. Hyundai komst þar með í 84.
HYUNDAI-merkið er metið á 3,48 milljarða bandaríkjadala í síðustu úttekt Interbrand Corp. á verðmætustu vörumerkjum heims, 2005 Global Brand Scoreboard. Hyundai komst þar með í 84. sætið á lista 100 verðmætustu vörumerkjanna og er þetta jafnframt í fyrsta sinn sem framleiðandinn nær þeim áfanga að vera á meðal þeirra 100 verðmætustu. Ef stærstu bílaframleiðendurnir eru eingöngu skoðaðir er Hyundai níunda verðmætasta merkið, einu sæti fyrir ofan Nissan, sem er í tíunda sæti og einu fyrir neðan Audi sem er í því áttunda.