BMW K1200 R var valið mótorhjól ársins af Motorcyclist.
BMW K1200 R var valið mótorhjól ársins af Motorcyclist.
BANDARÍSKA mótorhjólatímaritið Motorcyclist hefur valið BMW K1200 R mótorhjól ársins, en aðeins eru tveir mánuðir síðan hjólið kom á markað. Valið stóð á milli tólf hjóla, þar á meðal keppinauta frá Japan og Ítalíu.

BANDARÍSKA mótorhjólatímaritið Motorcyclist hefur valið BMW K1200 R mótorhjól ársins, en aðeins eru tveir mánuðir síðan hjólið kom á markað.

Valið stóð á milli tólf hjóla, þar á meðal keppinauta frá Japan og Ítalíu.

K1200 R er með sömu fjögurra strokka vélina og K1200 S ofurhjólið en að auki með nýstárlegu Duolever-fjöðrunina og rafstýrða fjöðrunarstillingu, sem er valbúnaður. Umfjöllun víða um heim hefur verið á þann veg að þetta 163 hestafla hjól hafi borið höfuð og herðar yfir aðrar nýjungar í mótorhjólaheiminum á árinu.