Þeir sem pirrast yfir því að bakaraofninn heima skili bara þurrum steikum og misbökuðum brauðum, geta nú glaðst því í haust ætlar Kitchen Aid að setja á markaðinn nýja uppfinningu, sem dælir gufu inn í bakaraofna.
Þeir sem pirrast yfir því að bakaraofninn heima skili bara þurrum steikum og misbökuðum brauðum, geta nú glaðst því í haust ætlar Kitchen Aid að setja á markaðinn nýja uppfinningu, sem dælir gufu inn í bakaraofna. Búnaðurinn tekur allt að tvo lítra af vatni og sprautar gufunni sjálfvirkt inn í ofninn með vissu millibili, allt eftir því hvað er verið að elda eða baka hverju sinni.