SALA á nýjum fólksbílum hefur aukist um 53,3% fyrstu átta mánuði ársins. Alls hafa selst 12.903 bílar það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra seldust 8.417 bílar.
SALA á nýjum fólksbílum hefur aukist um 53,3% fyrstu átta mánuði ársins. Alls hafa selst 12.903 bílar það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra seldust 8.417 bílar. Toyota er sem fyrr langsöluhæsta tegundin og er markaðshlutdeild Toyota nú 24,9%, sem er reyndar minna en verið hefur síðustu misserin. Hlutfallslega mesta aukningin í sölu frá fyrra ári er á Kia.