Það er fjör hjá Savage-fjölskyldunni.
Það er fjör hjá Savage-fjölskyldunni.
SKJÁR einn tekur til sýninga nýja gamanþætti í kvöld, Complete Savages . Nick Savage (Keith Carradine) leikur einstæðan föður með fimm táningsstráka og er því fjör á þeim bænum.
SKJÁR einn tekur til sýninga nýja gamanþætti í kvöld, Complete Savages . Nick Savage (Keith Carradine) leikur einstæðan föður með fimm táningsstráka og er því fjör á þeim bænum. Hann er slökkviliðsmaður og finnst allt að því afslappandi að hlaupa inn í brennandi hús miðað við að gegna föðurskyldunum. Í þættinum í kvöld gefst enn ein ráðskonan upp á að þrífa hjá Savage-fjölskyldunni og Nick finnst tími til að börnin fari að læra að taka til eftir sig. Strákarnir eru hins vegar ekki sammála pabba sínum og gera allt svo að þeir fái nýja ráðskonu. Einn strákurinn, Sam (Andrew Eiden) reynir að telja í sig kjark til að bjóða stúlku á stefnumót.
Complete Savages er á Skjá einum kl. 20.45.