Bláskógabyggð | Dýragarðurinn í Slakka verður opinn um helgina, þetta er síðasta helgin á þessu sumri sem útisvæðið er opið. Mjög góð aðsókn hefur verið og hafa um 20.000 manns heimsótt garðinn í sumar.
Bláskógabyggð | Dýragarðurinn í Slakka verður opinn um helgina, þetta er síðasta helgin á þessu sumri sem útisvæðið er opið. Mjög góð aðsókn hefur verið og hafa um 20.000 manns heimsótt garðinn í sumar. Inniaðstaða með minigolfi og púttvelli hefur verið vel nýtt og verður opið í vetur í golfið og innidýragarð fyrir hópa. Hægt verður að panta ýmsar gerðir af frábærum veitingum og er þetta því tilvalinn staður fyrir óvissuferðir fyrir t.d. fyrirtæki og aðra hópa í vetur, segir í fréttatilkynningu.