Eins og sjá má er CX-7 ekki ósvipaður hugmyndabílnum.
Eins og sjá má er CX-7 ekki ósvipaður hugmyndabílnum.
NÝLEGA náðust njósnamyndir af nýjum borgarjeppa Mazda sem kallast CX-7. Bíllinn var fyrst sýndur sem hugmyndabíllinn MX-Crossport á bílasýningunni í Detroit.
NÝLEGA náðust njósnamyndir af nýjum borgarjeppa Mazda sem kallast CX-7. Bíllinn var fyrst sýndur sem hugmyndabíllinn MX-Crossport á bílasýningunni í Detroit. Hann kemur fyrst á markað í Bandaríkjunum í lok næsta árs en líklega ekki fyrr en á árinu 2007 í Evrópu. CX-7 keppir ekki á móti vinsælum borgarjepplingum eins og Honda CR-V og Nissan X-Trail heldur BMW X3 og Nissan Murano. Sem sagt aflmeiri vélar, meiri búnaður og munaður. Eins og myndirnar sýna heldur CX-7 helstu útlitseinkennum MX-Crossport-hugmyndabílsins.