JÓLALEST Coca-Cola kemur í bæinn í dag, laugardaginn 10. desember, og er þetta í 10. skipti sem hún fer hring um höfuðborgarsvæðið. Lestin leggur af stað ljósum prýdd frá Vífilfelli, Stuðlahálsi kl. 16.
JÓLALEST Coca-Cola kemur í bæinn í dag, laugardaginn 10. desember, og er þetta í 10. skipti sem hún fer hring um höfuðborgarsvæðið. Lestin leggur af stað ljósum prýdd frá Vífilfelli, Stuðlahálsi kl. 16. Áætlað er að lestin fari niður Laugaveginn um kl 16.45 og verði við Smáralind kl. 17.50. Ferðinni mun ljúka um kl. 19 að Stuðlahálsi eftir um akstur um Reykjavík, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð, Breiðholt og Árbæ.