MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu: "Fimm barna- og unglingageðlæknar hafa í Morgunblaðinu í dag áhyggjur af meðferð heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á sannleikanum.

MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu:

"Fimm barna- og unglingageðlæknar hafa í Morgunblaðinu í dag áhyggjur af meðferð heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á sannleikanum. Fullyrða barnageðlæknarnir fimm meðal annars að heilbrigðismálaráðherra fari með rangt mál þegar hann fullyrðir, að barna- og unglingageðlæknar hafi ekki nýtt greiðslueiningafjöldann sem kom í þeirra hlut sl. þrjú ár.

Að væna ráðherra um ósannindi með þessum hætti kallar á að hér sé birt yfirlit yfir greiðslueiningarnar til barnageðlæknahópsins. Samkvæmt tölum ráðuneytisins þá er fullyrðing ráðherra rétt eins og neðangreint yfirlit sýnir.

Frá janúar til októberloka á þessu ári hafa barna- og unglingageðlæknar unnið fyrir 141.720 einingar. Ef gert er ráð fyrir sömu þjónustu þá tvo mánuði, sem eftir lifðu árs í októberlok, má gera ráð fyrir að geðlæknar verði með um 170.000 einingar eða fari um 7.000 einingar fram úr umsömdu magni.

Verð á einingu á árinu 2005 er 214 krónur þannig að hér er um 1,5 milljóna króna heildarupphæð að ræða, en samninganefnd hefur boðið að hluti umframeininga verði greiddur að hluta.

Á árinu 2004 dróst þjónusta barnageðlækna saman um 30 þúsund greiðslueiningar frá því sem hið opinbera var tilbúið að kaupa af þeim án þess að hópurinn hefði á opinberum vettvangi sömu áhyggjur af þróuninni og hann hefur nú. Það vekur bæði undrun og áhyggjur.

Heilbrigðismálaráðherra semur sjálfur ekki við læknahópa eða einstaklinga í hópi sérfræðilækna. Það gerir samninganefnd heilbrigðismálaráðherra. Í gildi er nýlegur samningur þar sem samið var um magn þjónustu fyrir árin 2005 til 31. mars 2008. Þessi langtímasamningur var undirritaður 21. desember 2004, m.a. fyrir hönd barna- og unglingageðlækna.

Við samningsgerðina var það tillaga samninganefndar HTR að taka árið 2002 sem grunn að skiptingu greiðslueininga á milli sérgreina. Samninganefnd lækna kom með tillögu í lok samningagerðarinnar um að miða við samsetningu verka á árinu 2004. Samninganefnd HTR féllst á þessa tillögu frá fulltrúum í samninganefnd Læknafélags Reykjavíkur.

Samninganefnd HTR hefur á undanförnum mánuðum átt í viðræðum við samninganefnd lækna, sem jafnframt er samningsaðili fyrir barna- og unglingageðlækna, um framkvæmd samningsins og það hefur aldrei verið ætlunin að gera einhverja sérsamninga við einstakar sérgreinar á sama tíma og staðið er í viðræðum við formlegan samningsaðila. Niðurstaða úr þessum viðræðum er enn ekki fengin."