VERSLUN Eggerts feldskera á Skólavörðustíg hlaut viðurkenningu Þróunarfélags miðborgarinnar fyrir fallegustu skreytingu verslunar fyrir jólin 2005. Viðurkenningin var afhent við athöfn í versluninni í gær.
VERSLUN Eggerts feldskera á Skólavörðustíg hlaut viðurkenningu Þróunarfélags miðborgarinnar fyrir fallegustu skreytingu verslunar fyrir jólin 2005. Viðurkenningin var afhent við athöfn í versluninni í gær. Þróunarfélagið hefur undanfarin ár veitt viðurkenningu fyrir fallegustu jólaskreytinguna og jólagluggann í miðborg Reykjavíkur. Verðlaununum er "ætlað að vera hvatning til kaupmanna og hvetja þá til að huga vel að útliti og "andliti" verslana sinna, framhlið og gluggum" að því er segir í fréttatilkynningu vegna viðurkenningarinnar.